Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Side 85

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Side 85
FLETT TVEIM NÝJUM BÓKUM með nístandi augu að baki sér. Ljúflingur brosir í nánd feigra manna, en nornir dansa á hindarheiði. Þriðji kaflinn fjallar enn framar um svip- uð efni: minningu og arfsögn, heiðna nátt- úru, blóðmetta geirarða, geirmerkta eld- menn, fomeskju. Og enn lítur skáldið tré veruleikans og hinn gula veg lífsins með sömu tortryggninni og fyrr. I fyrsta kvæði hins fjórða kafla gnísta bræður fornra hrímþursa að vísu tönnum „framaní dagsbirtuna", en „við erum í sálarjafnvægi undir heillastjömu og fögn- um því er þeir leggja upp í sína síðustu ferð“. Þá vitrast egypzkur faraó allt í einu skáldinu í draumi, en stökkur þegar á hrott, „svartur sem bik“, er það biður hann um sígarettu. Hverfur þá fjármanni Þverárhlíð- ar sálarjafnvægið og vex honum nú þvflíkt ásmegin að blóð hans „öskrar eins og haf- sjór“ í næstu kvæðum, þar sem ráðizt er heiftarlega á kattarmjálmsmenningu vora, hótanir blóðbókarinnar, nýlendupólitík og engladansleiki almættisins og aðra ónáttúru himins og jarðar. En grafarar þeir sem leggja guði blekkinganna og lyginnar tfl hvílu þruma sitt stef: „veiztu það mold að við emm frelsarar heimsins“. I þessum kafla sýður reiði hins frána kolbíts sem mundar spjótið fagurlega á fjórðu mynd bókarinar og svo djúpt hefur sótt inn í myrkrið að honum þykir sem brotthvarf þess muni valda hruni. Er þá komið að lokakaflanum, hinum fimmta, þar sem skáldinu er runnin reiðin og það gengur í hljóðri sorg á vit skógar og dýra, vorgresis og laufvinda. Enn er þó uggurinn hinn sami: „myrkrið er svo þúngt í brjósti mínu“, ormstunga, blóðferill. Mað- urinn biður konuna að fyrirgefa hvað steinninn er svartur, en hann er þó spegill hins ljósa dags —- undursins sem eitt sinn kann að „brosa við öllu úngviði heimsins“. Síðasta kvæðið heitir Járn — „ég stóð við hliðið og hugsaði um nálægar tíðir" segir þar að lokum. Af þessu lauslega yfirliti ætti að mega ráða meginsvip bókarinnar. Hún er með nokkrum hætti nútímasaga íslenzka ljóð- bóndans í hnotskurn eins og hún hefur kristallazt í ungs manns brjósti á þessu um- rótsskeiði þjóðlífs og veraldar. Allur tónn verksins einkennist af ótta og trega, en ljóst er að því veldur ekki einvörðungu sú sam- eiginlega tortímingarhætta sem nú þjakar gervalla mannkind, heldur einnig örlaga- glíma átthagans við framandi og óræð máttarvöld. í raun réttri eru þetta harmljóð hjarðsveins sem sogast inn í sviptibylji heimsmenningarinnar og leitar sér viðnáms í einskonar fagnaðarkenndri örvæntingu. Bókin er sköpuð í vörn hins uppflosnaða dalamanns. Svið hennar er náttúra landsins, efld hrolli hausts og vetrar og geigvænum grunsemdum. Skáldið segir á einum stað: ég vænti mér ekki hlíjSar en dalur hví ertu mér harSleikinn og hef ég þó engu níSi fariS um þessa byggS Sá sem ekki skynjar sársaukann í þessu andvarpi hefur trauðla gist né skoðað tré íslenzks veruleika hin síðari árin. En enda þótt höfundurinn sé í vöm leitar hann sífellt sóknargengis í gömlum for- teiknum sögu og sveitar: skírskotar til yngl- inga, sveiflar um sig fomyrtu vígamáli, grípur jafnvel til Ijóðstafa og ríms einmitt þegar heljarkulið nístir sem bitrast. Vistin í svartholi efans er orðin þessu unga skáldi kvöl og neyð. Það vill brjótast út úr því og berjast. Það vill finna arfi sínum stað í sigurgöngu komandi dags. Hver cggjar mig lögeggjan sverS mitt bíSur hitaS í morgunroSanum segir það á einum stað. Islenzkur veruleiki þarf nú þegar á sverði skáldsins að halda 227
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.