Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Blaðsíða 6
Tíviarit Máls og menn'tngar
Baráttuhreyfing gegn heimsvaldastefnu
Á þriðja þingi Víetnamnefndarinnar á íslandi 4. júní s.l. var ákveðið að leggja
nefndina niður en stofna í hennar stað ný samtök: Baráttuhreyfingu gegn
heimsvaldastefnu. Lög og stefnuskrá þessarar nýju hreyfingar voru samþykkt
á þinginu. í stefnuskránni segir m. a.: „Baráttuhreyfing gegn heimsvaldastefnu
(BGH) er samstöðuhreyfing með baráttu kúgaðra þjóða og alþýðu hvarvetna.
Höfuðandstæðingurinn í þessari baráttu er heimsvaldastefna Bandaríkjanna og
tengdra ríkja. BGH styður því baráttuna fyrir afnámi herstöðva á íslandi og
úrsögn íslands úr Atlantshafsbandalaginu.“
Skipulag Víetnamnefndarinnar var orðið henni slíkur dragbítur að löngu
var orðið tímabært að breyta því. Með því að gera hana að liðsmannasamtök-
um og útvíkka verkefnasvið hennar hefur nú skapast vettvangur fyrir alla
þá er starfa vilja að samstöðumálum. í þessu síðastnefnda felst einkum þrennt:
1) að kynna sér og öðrum heimsvaldastefnuna og það ástand sem hún skapar
í hinum ýmsu heimshlutum, 2) að sýna í verki samstöðu með kúgaðri alþýðu
þróunarlandanna, og 3) að sýna fram á þá staðreynd að við eigum líka í höggi
við heimsvaldastefnuna í baráttu okkar gegn herstöðvum og erlendri stóriðju
á íslandi, þ. e. að við eigum samleið með alþýðu annarra landa.
Ætlunin er að hreyfingin starfi á grundvelli starfshópa, er skipti með sér
verkum og fjalli hver hópur um ákveðið heimssvæði eða svið (t. d. ákveðinn
þátt heimsvaldastefnunnar). Nú þegar eru starfandi tveir hópar: Afríkuhópur
og Suður-Ameríkuhópur. Þeir stefna báðir að því að koma upp leshringum
fyrir haustið og fá þannig inn nýja félaga. Einnig er hreyfingin opin þeim
sem hug hafa á að stofna hópa um einhver ákveðin svið.
Eitt meginviðfangsefni hreyfingarinnar er og verður útgáfa tímaritsins
Samstöðu. Samstaða er tímarit um alþjóðleg málefni og tilgangur þess er
fyrst og fremst sá að útskýra bakgrunn þeirra viðburða sem hæst ber í frétt-
um frá þróunarlöndunum. Ekki mun af veita, svo ófullkomin og tilviljana-
kennd sem sú fréttaþjónusta er sem hér ríður húsum að öllum jafnaði. Nýr
ritstjóri tekur við Samstöðu frá og með næsta hefti: Einar Örn Stefánsson.
Samstaða mun koma út þrisvar til fjórum sinnum á ári að minnsta kosti. Af
henni hafa þegar komið út þrjú hefti síðan hún var endurvakin í fyrra.
Aðstandendum BGH þykir stefnuskrá hreyfingarinnar nægilega sveigjanleg
til þess að undir hennar merki geti starfað fólk með hin ólíkustu viðhorf.
Engu að síður kom það í ljós á þinginu að sumir vinstrisinnar eru komnir
svo langt til vinstri að þeir virðast lentir hægramegin, óvart. Þeirra höfuð-
andstæðingur er ekki „heimsvaldastefna Bandaríkjanna og tengdra ríkja“, ekki
116