Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Side 10
Tímarit Máls og menningar
hann stóð í skilum. Hvernig sem allt veltist þá stóð hann alltaf í skil-
um við bankana.
Mig langar til að frœðast svolítið frekar um Félag byltingarsinnaðra
rithöfunda. Kristinn segir að þú hafir komið með tillögu um að setja
félaginu engin lög.
Já, það var alveg rétt. Og það var samþykkt. Mér fannst það alveg
tilgangslaust að vera að setja svona félagi einhver lög, það gat bara
samþykkt það sem það vildi á sínum fundum. Svo hef ég kannske verið
svolítið nálægt anarkistum. En það tóku allir vel undir það.
Hvað fór fram á fundum félagsins meðan það starfaði? Það virðist
hafa haldið talsvert tíða fundi.
Það voru helst umræður um stjórnmál og bókmenntir, svo gagn-
rýndu menn verk hvers annars.
Eg sé að á einum fundi hafið þið spreytt ykkur á að setja saman
lögreglusögur.
Já, þær áttu reyndar að vera fleiri. Meira að segja Kristinn var bú-
inn að lofa að skrifa eina. Svo sveikst hann um það og ég man eftir
því að Björn Franzson var alveg bálreiður út af því, en Kristinn hló
að honum og sagði að sér hefði aldrei dottið það í hug. Björn skrifaði
nefnilega eina og var þess vegna svo reiður yfir því að Kristinn skyldi
ekki hafa staðið við sín orð. Svo voru á þessum félagsfundum líka hald-
in smáerindi, Gísli Asmundsson hélt t. a. m. erindi um þýskar bókmenntir,
bara svona innan félagsins. Þetta var fyrst og fremst klúbbur áhuga-
manna um bókmenntir og byltingarsinnaða pólitík.
Var heiti félagsins síðan breytt í Félag róttcekra rithöfunda?
Nei, það hét nú svona ýmist eftir því hvað menn vildu hafa mikið
við.
En þegar Rauðir þennar fóru að koma út þá hafið þið auðvitað unnið
að þeim á fundunum.
— Ja, það var eiginlega Kristinn sem sá að mestu leyti um það. Það
var orðinn voðalega knappur tími að koma þessu út, en Kristinn hafði
ekki neina atvinnu, hann hafði verið eitthvað þrjá mánuði á Landsbóka-
safninu í staðinn fyrir Þorkel Jóhannesson, en svo var sú atvinna búin
og hann hafði ekki nokkurn skapaðan hlut að gera og engar tekjur.
Þóra vann í bókabúð Heimskringlu og fékk eitthvað smávegis fyrir það,
svo hafði Kristinn einhverja smákennslu líka, en hann þurfti tíma til
að koma Rauðum pennum út. Við tókum nokkrir að okkur að safna
120