Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Blaðsíða 23
Hallormsstaðarbréf
gerast æ tíðari viðburðir og það með dularfullu ívafi, dagarnir verða
órólegir og eins fer að verða reimt um nætur, og við erum áður en
varir dregin inn í leikinn. Það hefst með því að sjálfur húsbóndinn
þeysir með okkur gandreið um hérað, fjalldali og firði, og á þessu ferða-
lagi er eins og bresti öll tímans bönd, og við hættum að greina hvort þú
ert að tala um þá sem nú lifa á bæjunum eða þá sem uppi voru fyrir þúsund
árum eða aldirnar þess á milli, eða farinn að spá í framtíðina. Svo mikið
er víst að sveitin varð eins og slegin einhverjum töfrasprota og aldirnar
komnar á hræringu, og allt í einu eru bæirnir farnir að rekja sögu sína
og byggðin að fyllast fólki frá ýmsum tímum, og ég hætti að greina að
ailar þær raddir sem bárust í eyru og fór að leiða hugann að Lagarfljóts-
orminum og líta yfir í Fellin til að fá einhverja jarðfestu, en hrökk upp
við að þú segir, það var hingað að Mjóanesi sem Helgi fluttist eftir að
hann missti fyrri konu sína er drukknaði í Þrælavík, og ekki veit ég
hvort þú tókst eftir því, en ég setti upp sorgarsvip og hélt að þú værir
að tala um nákomna ættingja og vissi ekki að við værum í fylgd með
Helga Asbjarnarsyni er heygður var endur fyrir löngu.
Upp úr þessu fór að magnast ágangur og aðsókn að staðnum og við
komumst ekki hjá, hvað hlutlaus sem við vildum vera, að komast í
snertingu við atburði og verða margra hluta vör, ýmist raunsannra að
við höldum eða forneskjulegra og þjóðsagnakenndra. Við teljum það til
að mynda raunverulegt að við höfum setið hjá þér að drykkju með aðal-
eiganda Morgunblaðsins, konu hans og tengdaföður, ásamt Eiríki sjón-
varpsstjörnu og gáfaðasta bónda héraðsins. En margt var áreiðanlega
ekki með felldu. Við urðum til dæmis vitni að því að menn seiddu til
sín um nætur fegurðardísir úr nyrstu byggðum frá bændum þeirra og
búum og kváðu amorsvísur í eyru þeim. Og við fórum að hafa bæði þig
og Sigrúnu grunuð um að þið væruð ekki öll þar sem þið eruð séð.
Við vissum að þú ert í innsta hring Framsóknarflokksins, einkavin-
ur Eysteins, oddviti og áhrifavald í sveitinni, og við sáum að jafnvel
pólitíið, mikill raumur sem kominn var inn á mitt stofugólf, varð að
sitja og standa eins og þú vildir og hlíta fyrirskipunum þínum. En
brátt komumst við að því að þú ert kommúnisti af hreinræktasta tagi,
skírður í eldi Rauðra penna, hugfanginn af ljóðum Jóhannesar úr Kötl-
um, viðkvæmur eins og við fyrir gengi Rússa og sigri Spasskís, og við
blygðuðumst okkar ofan í tær fyrir Alþýðubandalagið að við skyldum
þurfa að leita inn í Framsóknarflokkinn til að finna kommúnista. En
133