Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 38

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1977, Page 38
Tímarit Máls og menningar hafi borist mótmæli frá 59 félögum fyrir 24. mars. „Æði mikið skortir á að mótmæli hafi borist frá „flestum bæjum og félögum“ segir Páll Heiðar og viðurkennir þó að hann viti ekki hvað kunni að hafa borist eftir 24. mars (bls. 180—81). Talsvert mál er um þann atburð þegar lögregluvörður meinaði Lúðvík Jósepssyni aðgang að þinghúsinu 29. mars af því að varðmenn þekkm hann ekki sem þingmann. Meðal annars er vitnað í bréf frá Einari Olgeirssyni þar sem segir að lögreglumenn hafi lagt hendur á Lúðvík. Við það bætir Páll Heiðar: „... og er það raunar enn ein útgáfan — þar sem hvergi kom fram í máli Lúðvíks, að „hendur hefðu verið lagð- ar á þingmanninn“.“ (Bls. 179). En aðeins tveim blaðsíðum fyrr hefur verið vitnað í þingræðu Lúðvíks þar sem segir: „Þar var tekið á móti mér af nokkrum lögregluþjónum og ég fangaður.“ Loks má nefna frásögnina af útrás hvítliðasveitarinnar úr alþingis- húsinu 30. mars. Páll Heiðar segir: „Nokkurs tvískinnungs gætir í skrifum Þjóðviljans um þá varaliðsmenn, þar sem þeim er ýmist lýst sem „blóðþyrstum hvítliðaskríl“ eða „ragmennum“, sem lögðu á flótta strax og á móti var tekið.“ (Bls. 244). Eg fæ ekki betur séð en þessi lýsing eigi nákvæmlega við liðið eins og Páll Heiðar hefur sjálf- ur lýst því með hjálp heimildarmanna sinna á næstu blaðsíðum á und- an, þegar þess er gætt auðvitað að Þjóðviljinn notar orð í sterkara lagi. „... ljóst er að viðbrögð einstakra varaliðsmanna voru mjög mismun- andi“, segir höfundur sjálfur (bls. 236—37). Heimildarmenn sem ekki eru rengdir segja að þeir hafi gengið „geysilega harkalega fram“. „Þeir börðu hvað sem fyrir var“. Orn Clausen, sem verður víst ekki sakaður um að draga taum kommúnista, segir: „Maður sá náttúrlega ýmislegt — ...“ (Bls. 236). Um hræðslu varaliðsmanna má benda á frásögn Jóhannesar Proppé (bls. 235) sem er of löng til að taka hana upp hér. Eða orð Torfa Jónssonar lögregluþjóns: „... þeir voru alveg dauðhrædd- ir greyin — og ég held að þeir hafi ekki gert sér grein fyrir því hvað fyrir höggunum varð-----------.“ (Bls. 237). Mér er spurn: Hver er svo tvískinnungur Þjóðviljans? Þetta kunna að virðast smáatriði, en samt er þessi leynilögregluleik- ur hlutleysisbrot í að minnsta kosti þrennum skilningi. I fyrsta lagi eru sósíalistum gerðar upp rangfærslur þegar þeir fóru í rauninni rétt með. I öðru lagi er lesandinn látinn dveljast langtímum saman við ónákvæmni og ýkjur í málflutningi sósíalista, en sams konar hlutum hjá andstæð- 148
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.