Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 112

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 112
Tímarit Máls og menningar una: Mendelslögmál eru engin lögmál. Líklega hefur Lysenko heldur engar til- raunir gert til aS sanna eða afsanna Mendelslögmál. En hann taldi hugmynd- ina um erfðaefnið eða genin fjarstæðu. Um vorunartilraunir Lysenko er til grein eftir Áskel Löve í tímaritinu Náttúrufrceðingnum IX. árgangi, 1939: Stytting vaxtartíma jurtanna. I annarri grein í sama árgangi, um erfðalögmál Mendels, segir Áskell raunar að lögmál Mendels hafi „kollvarpað stórum hluta hins mikla verks Darwins“. I tímaritinu Naturens Verden, árið 1948, segir Mogens Westergárd að erfðafræðikenningar Lysenko og fullyrð- ingar hans að unnt sé að stjórna ferlum náttúrunnar að vild séu „alhæfingar út frá óvissum niðurstöðum tilrauna á tak- mörkuðu sviði“, og bætir við: „eiga sér ekki hliðstæðu í hinni annars furðulegu sögu vísindanna.. Smndum er ef til vill erfitt að skera úr um hvort einhver regla í vísindum hafi almennt gildi og eigi skilið að heita náttúrulögmál. Sjálfur get ég að vísu ekki rætt þessi mál fræðilega, til þess skortir mig þekk- ingu. En ég held ekki að rétt sé hermt að kjarninn í erfðafræðikenningum Lysenko hafi verið að áunnir eiginleik- ar erfðust fortakslaust, heldur að þeir gæm orðið erfanlegir við viss skilyrði og væri þá einkum um að ræða áhrif sem verða á fósturstigi lífveranna (jurta og dýra). Sú ályktun út frá líffræðikenningum Lysenko að verkalýðsstéttin eigi sér ekki viðreisnar von vegna líffræðilegra áhrifa langvarandi kúgunar er auðvitað fjar- stæða, enda þótt „glöggir" marxistar séu bornir fyrir henni. Slík kenning virðist mér engu betri en sósíaldarwinisminn og raunar hliðstæða við hann. Mér þykir trúlegt, eins og haldið er fram í grein Þ.V., að hagsmunir ein- staklinga og stétta móti að meira eða minna leyti lífsskoðanir manna og heim- spekileg viðhorf. Sumir telja að hug- myndin um náttúruval sé komin frá hagfræðikenningu Malthusar, að mann- kyninu fjölgi ætíð meira en svo að unnt sé að afla fæðu handa öllum. Sú kenn- ing fær ekki lengur staðist, en kenning Darwins er hins vegar enn í fullu gildi. Þó að vitað sé með vissu að núlifandi tegundir jurta og dýra hafi orðið til á óralöngum tíma við breytingu og þróun frá einfaldari og fmmstæðari lífverum, þá er þó ekki þar með svarað spurning- unni um upphaf lífsins. Hvernig varð lifandi efni til af líflausu efni í upp- hafi? Um þetta vandamál hefur rússneski vísindamaðurinn A. I. Oparin fjallað öðmm betur í bók sinni: Uppruni lífs- ins á jörðinni (3. útg. 1957). Utdráttur eða styttri gerð þessarar bókar kom á íslensku á forlagi Heimskringlu 1960. Oparin hefur sýnt fram á, að löngu áður en líf varð til á jörðinni myndaðist líf- rænt efni, þ. e. sambönd kolefnis o. fl. efna, og þróaðist á löngum tíma í flók- in efnasambönd, sem líktust eggjahvím- efnum þeim sem einkenna allar lifandi verur. Þá er enn löng leið til myndunar lifandi efnis og myndunar fyrsm lífver- anna, sem vom mun ófullkomnari en einföldusm lífvemr sem nú þekkjast. Eg reyni ekki að lýsa hugmyndum Opar- ins hvernig þetta hafi orðið, en vísa til bókar hans sem áður var nefnd. Þ.V. notar orðið stalínismi í dálítið óljósri, en þó niðrandi merkingu (að því er mér virðist). Þyrfti það nánari skilgreiningar við, því það er ævinlega ókosmr í fræðilegri umræðu ef merking orða er óglögg. Hvað er þá stalínismi 222
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.