Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Side 64

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Side 64
Tímaril Máls og menningar frjálsum verkalýösfélögum. I þriðja lagi eru auk hinna hálf-löglegu samtaka andstöðunnar til opinber landssamtök þar sem kaþólska kirkjan er, sem hefur vit á því að fara ekki of snemma að leika andstöðuhlutverk, en sem er ósamvinnu- þýðari og áhrifameiri en hliðstæður hennar í öðrum Austur-Evrópulöndum. Fyrir bragðið hefur ekki tekist að bræða hana inn í stjórnskipulagið og hún hefur haldið víðtækum andlegum og pólitískum völdum. Kaþólska kirkjan er einhver mikilvægasti valdaaðilinn i hinum komandi átökum, sé tekið mið af því að páfinn er pólskur og að hún stórjók tök sin á pólsku samfélagslifi í hinum flóknu átökum áratugarins eftir Gomúlka. Ennfremur hafa menntamennirnir borið gæfu til að forðast „lobbýisma" margra austur-evrópskra félaga sinna og þess í stað orðið málflytjendur almennra kvörtunarefna þjóðarinnar, einkum og sér i lagi verkalýðsstéttarinnar — sem er framvörður félagslegrar uppreisnar i Póllandi. I fyrsta sinn í sögu austur-evrópsks andófs hefur gagnrýnið menntafólk, jafnvel yfirlýstir stjórnarandstæðingar, skotið rótum meðal iðnverkafólks og eignast í því vörn sem dugir. Gangi leynilögreglan of langt gagnvart þessu fólki er hætta á pólitísku verkfalli um land allt. Á hinn bóginn hefur verkafólk þar með eignast baráttufúsan umboðsaðila sem býr yfir málakunnáttu og góðum tengslum við erlenda fjölmiðla, sem geta gert kröfur þeirra heyrinkunnar um allan heim samstundis. Sovétrikin eiga því varla annarra kosta völ en að beita hernaðarmætti til að bæla niður uppreisn í Póllandi. Það er hefð fyrir því að þjóðin sé á móti Rússum af þjóðrembulegri ákefð. Hefðbundna goðsagan um hina óbugandi Pólverja eflist óðum. í efnahagslifinu vilja 33 milljónir manna lifa við allsnægtir, eða a. m. k. sæmilega á vestur-evrópskan mælikvarða, og óþarfi er að taka fram að hér hafa Rússar upp á fátt að bjóða. Það má vera að myndin hér að ofan sé ekki máluð nógu dökkum dráttum til að leggja áherslu á hversu alvarlegt ástandið er. En það er á þessum vígvelli sem barist verður um örlög Austur-Evrópu það sem eftir lifir aldarinnar. Allir þeir sem kynnt hafa sér vel sögu áranna eftir aðra heimsstyrjöld vita, að þótt ýmislegt hafi enn verið óráðið 1944 — 5 (framtíð Finnlands, hugsanlega lika Ungverja- lands, Austurríkis og Tékkóslóvakíu), og þó að sovéski herinn hafi verið að þrotum kominn, átti Stalín sér eitt takmark sem hann var reiðubúinn til að heyja nýtt stríð um: yfirráð yfir Póllandi. Stefna hansgagnvart Lublin nefndinni (sú stjórn Póllands sem Moskva skipaði og sem einfaldlega lýsti kommúnískan minnihlutahóp „hinn eina löglega fulltrúa pólsku þjóðarinnar“ meðan stríðinu við Þýskaland var enn ólokið) var ekki beinlínis formföst og tekur af allan vafa um hvað hann áleit Pólland mikilvægt. Það er líka órökrétt að gera ráð fyrir að 310
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.