Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Page 109

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Page 109
Eru Islendingar kristnir? kirkju, til þess samfélags sem Kristur stofnaði. Siðbreytingin (eða siðaskiptin, sem svo hafa verið nefnd,) hefur eflaust aukið á þennan klofning. En hvað sem um það má segja, þá má hér eflaust finna skýringuna á ýmsum sérkennum íslenskrar kristni fyrr og síðar og lika á þeirri staðreynd að margir Islendingar eru hikandi við að svara afdráttarlaust og af einlægni spurningunni hvort þeir séu kristnir eða ekki. Hvort eða hvenær til þess kemur að íslendingar taki trúarlif sitt til ræki- legrar endurskoðunar skal engu spáð um, þaðan af síður hver yrði niðurstaða þeirrar skoðunar. En slík endurskoðun er okkur nauðsyn, ef við viljum þekkja sjálf okkur og vera við sjálf. Og til hvers lifum við, hvaða gagn gerum við heiminum, ef við vitum ekki hver við sjálf erum? ATHUGASEMD Ein athugasemd leiðir af sér aðra, þótt í litlu sé. I 2. hefti Tímaritsins, bls. 247 — 48, er ábending frá Gunnari Stefánssyni til umsjónarmanns ritsafns Jóhanns Sigurjónssonar, Atla Rafns Kristinssonar, varðandi nokkur bréf frá skáldinu, m. a. þau sem hann ritaði Þórði Sveinssyni lækni. Gunnar bendir réttilega á, að sex þessara bréfa hafi verið prentuð í Samvinnunni 6. h. 1969, bls. 56—69- Þá birtir Timaritið svar umsjónarmannsins. ritað i Kaliforníu vestur, og lýsir hann þar ítrekuðum viðtölum sínum við sonu Þórðar og tengdadóttur, en var svo óheppinn að ramba ekki á þann niðjann, sem bréfin birti, Hrafn Gunnlaugsson. Enn fremurgetur Atli þess, að umrædd prentun bréfanna hafi ekki verið í skrám Landsbókasafns, og ritstjóri bætir við, að svo sé ekki enn. Allt þetta ramb og ról hefðu menn getað sparað sér með því einu að fletta upp i Bókmenntaskrá Skirnis, en þar er prentun bréfanna tilfærð við árið 1969. Bókmennta- skrá þessa hefur Hið islenska bókmenntafélag gefið út árlega síðan 1968. Hún tekur til siðari tima bókmennta, og eru nöfn höfunda færð upp i stafrófsröð og undir nafni hvers og eins tilfært allt sem um þá hefur verið ritað á umliðnu ári, eftir þvi sem til hefur náðst. Þetta átti aldrei að vera annað en litil ábending um ofur einfaldan hlut, svona rétt til að setja punktinn yfír i-ið. 22.10.1981 Einar Sigurðsson. 355
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.