Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Side 122

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Side 122
Tímarit Máls og menningar einhvers konar andstæðing. Ottinn við að verða ððrum til byrði verður allra erfið- astur í samskiptum við þá nánustu, fjöl- skylduna. En eins og fyrr segir fjallar sagan ekki bara um ótta og einangrun heldur líka um lífsvilja og hugrekki og þær til- finningar sem oft er erfiðast að koma orðum að en tengja fólk saman. Sólin og skugginn er raunsæisleg saga, verkar á mann sem mynd af lífinu sjálfu. Mörgum þykir lítils virði að velta fyrir sér formi og list slikra verka og vilja heldur ræða vandamálin sjálf sem þar er fjallað um. Það er þó sannast sagna að undir frásagnarlistinni er áhrifamátturinn kom- inn og því full ástæða til að gefa henni gaum. Fríða tekurefni sitt mjög öruggum tökum. Hún fylgir ekki tímaröð atburða heldur skiptist á bein sviðsetning atvika i timaröð og endurlit til fyrri atburða, jafn- vel þeirra sem hafa gerst tétt á undan þeim sviðsettu, en einnig annarra sem liggja í meiri fjarlægð. Þessu bragði er svo hóf- samlega beitt að maður veitir þvi litla at- hygli við fyrsta lestur en það á verulegan þátt í áhrifum bókarinnar. Sama er að segja um hið takmarkaða sjónarhorn. Það veldur því að Iesandi skynjar atvik náið með aðalpersónunni, en gerir líka enn áhrifameira en ella eitt eftirminnilegasta atvik sögunnar: minningu um ferð í strætisvagni og yfirlið á gangstétt. Sú frá- sögn hefst þannig að aðalpersónan er séð alveg utanfrá með augum hlutlauss áhorfanda og umkomuleysi hennar verður enn átakanlegra fyrir vikið. Trúverðugleiki persónanna og þar með sögunnar í heild er mjög bundinn þvi hvernig til tekst við gerð samtala. Fríðu tekst oft afar vel að láta samtölin vekja tilfinningu fyrir þvi ósagða og gefa þannig djúpa og sannfærandi mynd af persónun- um. Þetta á þó einkum við um samskipti sjúklinganna sin á milli og samskipti Sig- rúnar við eiginmanninn. Starfslið sjúkra- hússins, einkum læknarnir verða hins vegar fjarlægar og ógegnsæjar persónur, og er það vitaskuld með vilja gert, en af þeim sökum og e.t.v. einhverjum öðrum verk- uðu þau atriði þar sem læknar koma við sögu svo og þau atriði þar sem sjúklingar bera fram opinskáa gagnrýni á sjúkrahúsið og aðstæður sínar ekki að öllu leyti sann- færandi á mig. En auðvitað má segja að þetta sé hluti af hrynjandi bókarinnar. Hin fámálu atriði þar sem fæst er sagt af því sem máli skiptir fá áhrifamátt sinn að hluta af þeim atriðum þar sem fólk er stórort og lætur gamminn geysa. Raunsæi er umdeilt hugtak, en ætli flestir skilji það ekki sem sögur af ein- hverju sem komið gæti fyrir mig og þig, sögur sem bregða upp myndum af trú- verðugum persónum við trúverðugar að- stæður. Miðað við þessa skilgreiningu er saga Fríðu ótvíræð raunsæissaga, og þó raunsæi hennar sé öðrum þræði félagslegt er það sálfræðilegt raunsæi sem er styrkur hennar; atburðirnir eða öllu heldur skynjun þeirra eru trúverðugir miðað við þá lýsingu sem gefin er á aðalpersónunni, sem er afar tilfinninganæm og á að vissu marki létt með að tjá sig þcgar út btýst það sem bælt hefur verið. Þess vegna verka viðbrögð hennar sannfærandi þótt þau séu nokkuð öfgafull. Vandi frásagnaraðferð- arinnar birtist í því að aðrar persónur, sem einnig sýna sterk viðbrögð á stundum, verða ekki eins sannfærandi vegna þess að við sjáum þær aðeins utan frá. En hér 112
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.