Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Qupperneq 15

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Qupperneq 15
Gamlar nýstefnur ari pest en berklaveikin sem hrjáði skáldin í þá daga. Reyndar má nú athuga að varla hafa aðrir fræðingar orðið Brandes frægari á okkar jarðarparti, og gæti það skýrt margt. Kannski blandast líka inní áhrif frá popptónlistinni, þarsem hver reynir að vera fyrstur að sjá fyrir nýtt bítlaæði. Nýjasta dagskipunin er líklega krafan um suðurameríska fantasíu, svo- kallað magískt raunsæi. En ég held að það geti ekki verið nein móðgun við stíltilraunir suðuramerískra höfunda og árangur þeirra að efast um að í þeim felist stóridómur, rétta svarið við öllum spurningum nútíma skáldsagna- gerðar. Svo að eitt sé nefnt: Þegar sögupersóna er gædd goðsögulegum karakter, hafin uppúr ryki jarðarinnar, þá er með því búið að loka fyrir marga möguleika í persónusköpuninni; vegna þess að það er í smæð sinni, ósigrum, vangetu, fáfengileika, sem við kynnumst einstaklingnum. (Þetta sést vel ef skoðuð er hryggileg reynsla þeirra sem hafa ætlað sér að skrifa bækur um algóða menn. Og líka ef skoðuð er ástæða þess að Dostojevskí lánaðist það best). Meðan sagnagerð er ekki úrelt verður persónusköpun það ekki heldur. Samt væri fáránlegt að halda að íslenskir höfundar gætu ekkert af suðuramerískum kollegum lært. Og þótt það sé ekkert nema íslensk sveitamannabábilja að vara við „útlenskum tískustefnum“, þá er það ekki síður nauðsynlegt en að hlera eftir hræringum umheimsins, bæði fyrir einstaka höfunda og íslenskar bókmenntir í heild, að reyna að skapa sér eigin stíl, karakter. Annars getur svo auðveldlega farið hjá þetta fámennri þjóð að bókmenntirnar lendi í sama glamrinu og íslenska popptónlistin á 7. áratugnum, þegar þessir sárafáu músíkantar þurftu að taka algerum ham- skiftum á nokkurra mánaða fresti; þeir sem mynduðu þúsundvolta báru- járnsrokkband að vori máttu breytast í mjóróma þjóðlagatríó með kassagít- ara um haustið. Svo bauð þeim tískan. I lokin nokkrar staðhæfingar, kannski almenn sannindi, en þau gætu átt við þarsem fundurinn er haldinn af bókmenntafræðinemum: Það er eitthvað sem ekki er hægt að skýra út frá stefnum, formum, vísindalegum vangavelt- um, sem ræður því að sumar bækur eru góðar, og aðrar ekki. Þetta annað og meira verður heldur ekki skýrt með „persónulegum smekk hvers og eins“; það sem fær mann til að skynja eitthvað sem list er einhver tilfinningalegur, metafýsískur faktor, sem ekki er gjaldgengur í raunvísindum, og sú stað- reynd ætti að segja mönnum það eitt að bókmenntir verða aldrei til fulls skýrðar með vísindalegum aðferðum. Það sem er á ferðinni; þessi galdur, þetta kikk; er það sama og veldur því að ákveðin uppröðun tóna myndar góða laglínu, meðan einhver önnur, jafnvel nauðalík, er ekkert nema pirr- andi óhljóð. Þeir sem flokka bókmenntir og greina, en hafa ekki tilfinningu fyrir þessum listræna kjarna, ættu að halla sér að krossgátublöðum. 133
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.