Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Blaðsíða 86
Tímarit Máls og menningar
Ævinlega er hér talað um konur sem einn hóp en ekki gerður greinar-
munur á þeim eftir aldri. Þó eru 110 af 456 aldursgreindum konum 12 — 16
ára, en þær kallar Vilmundur stúlkubörn. A hópnum sem einni heild byggir
nefndin niðurstöður sínar og hlýtur það að koma í veg fyrir að þær geti
verið röklegar, samanber það sem fram kemur hér síðar. Nefndin kemur
með athugasemd um lágan aldur strax á eftir tölunum, en það kemur þó
ekki í veg fyrir að svona sé farið með gögnin:
Það, sem hlýtur að vekja langmesta athygli við lestur þessarar skýrslu, er
hinn mikli fjöldi stúlkubarna. Hæstur er aldursflokkurinn 15 — 17 ára, og
stúlkubörn frá 12—14 ára eru fleiri en konur frá 24 —26 ára. (627)
Aldur stúlkubarna virðist vera 12 — 17 ára í augum nefndarinnar en á þeim
aldri eru 152 af 456 aldursgreindum konum. Hvort sem miðað er við 16 eða
17 ára aldur er ljóst að mjög stór hluti þess hóps sem nefndin leggur til
grundvallar er það sem þeir kalla stúlkubörn. (110 af 456 eru 24,12%, 152 af
456 eru 33,33%.) Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga þegar fullyrðingar,
ályktanir og túlkanir nefndarinnar eru skoðaðar.
Blöndun aldurshópa veikir grunninn undir ályktanir og hefur auk þess
tvennt annað í för með sér: Með því að líkja fullorðnum konum við börn er
óbeint verið að segja að enginn munur sér á þroska fullorðinna kvenna og
barna, og með því að tala um börn sem fullorðnar konur varpa fullorðnir frá
sér ábyrgð á börnunum.
Nefndin segir það álit lögreglustjóra að þessar 500 konur sem lögreglan
hefur skrásett nöfn yfir séu
. . . aðeins lítill hluti þeirra kvenna, sem líkt mun ástatt um. Telur hann, að
lögreglan hafi ekki haft tækifæri til þess að safna heimildum um meira en á að
gizka 20% allra reykvískra kvenna, sem umgangast setuliðið meira og minna.
(627)
Nefndin bendir á að „ekkert verði um það fullyrt“ en þó geti „hver sem er
sannfært sig um, að fjöldinn muni vera gífurlegur". Þessu til stuðnings
bendir hún á að öll gistihús bæjarins þar sem dans fari fram séu yfirfull af
setuliðsmönnum og íslensku kvenfólki. Nefndin telur þessar tölur því lík-
legar. Heildartalan yrði þá um 2500 konur, og er þá miðað við kvenfólk frá
12 ára aldri. Um aldursskiptingu með tilliti til þessara nýju upplýsinga segir:
Nú verður það auðvitað ekki fullyrt, að af þessum tölum megi draga þær
beinu ályktanir, að hlutföllin milli aldursflokka séu þessi í heild sinni, þótt
svona háar tölur bendi óneitanlega í þá átt. (627)
204