Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 49

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 49
Þegar Aleixandre fékk Nóbelsverdlaunin glæsilegasti skáldahópur sem birtist í ljóðmenntum Vestur Evrópu á öld- inni, — og höfðu það fram yfir frönsku súrrealistana sem stundum eru nefndir í sömu andrá að þeir létu engan klíkuanda né kreddur binda sig eins og hinir gerðu framan af þar til sá hópur splundraðist í ýmsar áttir. Þessi spönsku skáld komu með nýjan frjálsan tón inn í skáldskapinn og tendruðu fjör og röskuðu stöðnuðum hefðum á fornum glæstum grunni, hver efldi annan og reyndist öðrum skáldbróðir; og tóku líka Pablo Neruda frá Chile inn í þetta spánska bræðralag. Ahrif frá Frakklandi voru drjúg á skáldlist þessara manna, einkum frá súrrealistunum sem ruddu sér braut í endurskoðunarvímu eftir eyðandi elda fyrri heimstyrjaldar. Þeir spyrntu gegn gamla symbólismanum sem al- ráðan mátti kalla áður, um sinns sakir; og tengdu hreina ljóðlist sem svo var kölluð, la poesie pure, súrrealískum aðferðum og uppgötvunum sem hnigu að því að nýta sem mest mátti verða dulmætti sem bjó í undirdjúpum mannshugarins, virkja undirvitundina. Fyrirmynd spánska hópsins á heimaslóðum var einkum skáld hins ljúfa þunglyndis, hins hljómblíða angurs, Juan Ramon Jimenez sem reyndar hlaut sjálfur nóbelsverðlaun, — og svo Antonio Machado með sinn klassíska tærleik. Og þá bar hæst hinna eldri manna í ljóðlistinni, í bylgjunni á undan þessum ungu: kynslóðin frá 1898. Og verður þá líka að nefna Unamuno með. Jimenez var kallaður næturgalinn meðal dökkra sorgartrjánna, og þá er átt við uppmjó kýprustrén sem standa í kirkjugörðum með harmbragði handan við tíma og strit mannanna á jörðinni: dagar mannsins eru sem gras- ið, hann blómgast sem blómið á mörkinni, þegar vindur blæs á hann er hann horfinn, segir í gamla testamentinu . . . Um 1930 bar þessi skáldskapur hinn nýborni blóm um allan Spán; sjálf- hverfur með súrrealískum draumblæ. Síðar beindist hugur flestra þessara skálda að þjóðfélagsvanda ýmsum, og þá ekki sízt fyrir áhrif frá fóstbróð- urnum sem kom úr nýja heiminum um höfin, Neruda. Við hlaupum hér yfir sögu þá sem fór svo sorglega þegar fasistar sigruðu skáldskapinn og manndáð og mannúð, og öll skáldin flúðu land sem gátu. Machado dó Frakklandsmegin í Pýrennafjöllunum á flótta mæddur af elli og mótlæti heimsins, flest sóttu hin skáldin til Mexíkó eða Suður Ameríku; meðan Lorca var myrtur eins og allir vita af flugumönnum Franco; Micuel Hernandez geitasmalasonurinn sem hafði verið fóstraður af Machado, fóst- bróðir Lorca og Aleixandre og Neruda leitaði þá hælis í sendiráði Chile þegar Madrid féll; þótti glæstasta skáldefni Spánar. Nýr Lope de Vega segir Neruda um hann. Sendiherra Chile neitaði honum um griðastað í sendiráð- inu, og hrinti honum í fang fólskunnar; og hann dó eftir langvinnar raunir í fangelsum fasistanna. Kona hans ól honum barn eftir að hann var fallinn í 167
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.