Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 60

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1984, Page 60
Tímarit Máls og menningar staklega bóklegt fyrirbæri. Sú kenning virðist þó fá stuðning af því sem bent er á í MS að í latínuritum og ritum á frönsku frá 12. og 13. öld er fjöldi dæma um formúlur sem eru sama eðlis og stundum nánast orðrétt eins og íslenskar tengiformúlur. I lokakafla MS eru niðurstöður dregnar saman í sögulegt yfirlit. Þar er fyrst fjallað um þá texta sem kalla má for-klassíska, þe. frá Islendingabók og fram að Snorra. Bent er á að í Islendingabók sé um einþætta frásögn að ræða þótt efnið sé sundurleitt. Hins vegar er talið að í Landnámabók sé um að ræða vísi að samþættingu. Við þetta er það að athuga að Islendingabók er þess háttar rit að þar gat naumast komið upp þörf á samþættingu, en í Land- námabók er efnið í eðli sínu margþætt. Annars er það meginatriði í kenn- ingu bókarinnar að samþætting aukist smám saman og verði í senn flóknari og haglegri eftir því sem nær dregur hinni klassísku sagnagerð. Þessi niður- staða leiðir til annarrar: að samþætt frásögn sé ekki komin frá munnlegri frásagnarlist heldur hafi orðið til við bókmenntalega þróun, sem hafi ein- kennst af stöðugri viðleitni til að tengja allsundurleitt efni saman í stærri og stærri heildir. Má þá væntanlega samkvæmt þessari kenningu rekja hvort tveggja, viðleitnina og aðferðirnar, til erlendra áhrifa, sem Carol Clover tel- ur sýnilegri í þessum for-klassísku verkum en hjá Snorra eða í Islendinga- sögum, þar sem aðferðin hafi yfirleitt náð slíkri fullkomnun að hin erlendu áhrif leynist lesandanum. I þessum lokakafla eru einnig settar fram ályktanir um hlutfall sagnahefð- ar og rithefðar í sögunum: munnleg eru þau fyrirbæri talin sem eiga sér enga hliðstæðu í latneskum heimildum en hins vegar í frásagnartækni þjóðsagna: smæstu einingar atburðafléttunnar allt upp í einstaka þætti. Síðan er bætt við (bls. 182): Það fellur utan ramma þessarar rannsóknar að endurgera sögu í munnlegri geymd, en helst er hægt að láta sér detta í hug að bygging frásagnarinnar hafi verið líkari því sem hún er í þáttum eða fornaldar- sögum en í hinum eiginlegu Islendingasögum.7 I framhaldi af þessu er ályktað að sagnahefðin kunni að hafa átt þátt í varð- veislu og mótun einstakra atriða, en að skipan þeirra í stórar og flóknar heildir hljóti að vera bókmenntaleg þróun í beinu framhaldi af hinum latnesku áhrifum á 12. öld. Þótt Carol Clover telji þannig að latnesk áhrif geti nægt til að skýra byggingareinkenni Islendingasagna, finnst henni þó að svo margt sé skylt með byggingu þeirra og prósarómananna frönsku frá sama tíma að vart geti verið um tilviljun að ræða, enda þótt erfitt sé að sanna bein áhrif þar sem 178
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.