Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Page 42

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Page 42
Tímarit Máls og menningar En annars var athyglin í góðu lagi, einbeitnin skein úr hverju andliti og allt gekk snurðulaust fyrir sig eða alveg þar til komið var að ljóðalestri Garðars, en einmitt þegar hann ætlaði að hefja lestur sinn barst slík háreysti að ofan að Garðari fipaðist og varð svo óstyrkur á taugum að öll vélrituðu blöðin skulfu í höndum hans og það var ekki fyrr en hann sá að ég stóð upp til að kanna málin að hann treysti sér til að hefja lestur. Eg heyrði því aðeins upphafslínurnar, Stúlkan á færibandinu er innhverf einsog stoppistöð í framan, hugur minn . . . en var svo á leiðinni upp stigann og stóð á ganginum við útidyrnar. Þar voru fimm stelpur um tvítugt, uppábúnar með andlitsfarða, og með þeim þrír sjómenn. Einn þeirra var að fá sér sjúss en hinir tveir héldu á fullum kassa af Vodka. Eg reyndi að vera kurteis en sagði samt einsog var að hér væri hvorki dansleikur né samkvæmi heldur færu fram stjórnmála- umræður en nú stæði yfir ljóðalestur. „Og er það ekki nógu gott í kjaftinn á okkur?“ sagði einn sjómannanna og horfði hvasst á mig. Allt í einu leið mér einsog teprulegum smáborgara. „Jú, jú, ég hélt bara . . .“ en þá voru sjómennirnir lagðir af stað niður stigann. A eftir þeim gengu stelpurnar. Svo ég. Það glamraði í Vodkaflöskunum þegar þeir gengu í salinn. Menn litu hver á annan og sumir hristu höfuðin. Garðar flýtti sér að ljúka lestrinum. I síðasta ljóðinu líkti hann lífinu við fiskflak sem að lok- um hafnar í snyrtilegum kassa og fékk gott klapp áður en Siggi sté í pontu og sannaði eina ferðina enn hvílíkur afbragðs ræðumaður hann er. Fyrst svipti hann hulunni af svívirðileik hinnar smáborgaralegu hentistefnu umbótaflokkanna, lýsti þjónslund þeirra og undanláts- semi við stéttarhagsmuni auðvaldsins og reif svo í sig og tætti niður alla bitlingasnatana, þingpalladindlana og metorðastritarana sem hreiðrað hafa um sig í verkalýðshreyfingunni og hvað eftir annað afhjúpað getuleysi sitt. 176
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.