Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Blaðsíða 96

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Blaðsíða 96
Tímarit Mdls og menningar bónda í Hlíð og raunar flestum persónum sögunnar. Sú eina sem stendur uppi í hárinu á honum og keppir við hann um aðalhlutverkið í Manni og konu er Þórdís húsfreyja. Glaepamabur og kona Þegar forngrískir heimspekingar skipuðu skynseminni í öndvegi voru þeir ekki að vegsama hreina rökhugsun, andstæðu tilfinninganna, eins og fólki er tamast nú á tímum, heldur var skynsemin skilgreind sem andstæða of- beldis. Þessi andheiti fólu meðal annars í sér andstæður góðs og ills, rétt- lætis og ranglætis, sannleika og lygi. Rökhugsun manna og tilfinningar gátu samkvæmt þessu ýmist hneigst til skynsemi eða ofbeldis. I Manni og konu má líta á Þórdísi og Sigvalda sem fulltrúa þessara andstæðna. Þórdís er réttsýn, góð og skynsöm en séra Sigvaldi er ofbeldisseggur, bæði ranglátur og lyginn. Engu að síður má finna vissar hliðstæður með prestinum og Þórdísi. Þrátt fyrir að Sigvaldi geti ekki talist skynsamur á þennan forngríska mæli- kvarða er hann manna hyggnastur og á því sviði er Þórdís eina persóna bókarinnar sem stendur honum á sporði. Hún grunar hann um græsku þegar í upphafi og reynir að hindra að hann komi áformum sínum í fram- kvæmd. Sigurður bóndi hennar er á hinn bóginn einfaldur og hrekklaus, Þórdís tekur af skarið í öllum þeirra málum. Það sama á við um málefni elskendanna, þeir verða skjólstæðingar Þórdísar sem gegnir að vissu leyti sama hlutverki og þrællinn í nýja gamanleiknum. Það sem kemur í veg fyrir að Maður og kona sé einvörðungu dæmigerð ástarsaga sem endar vel, er að átök Þórdísar og Sigvalda, átök skynseminnar og ofbeldisins, karlsins og þrælsins, eru í brennidepli. Það liggur því beint við að líta á bókar- titilinn í nýju ljósi. Hvorki elskendurnir né Hlíðarhjónin eru maðurinn og konan í verkinu. Þann sess skipa Sigvaldi og Þórdís. I viðskiptum þeirra hefur presturinn lengstum betur þótt hann bíði ósig- ur undir lokin. Hann er líka í sterkari stöðu en Þórdís; embættismaður gagnvart alþýðumanneskju, landeigandi gegn leiguliða, sá ríki andspænis fátækum einstæðingi þegar fram í sækir. Síðast en ekki síst er Sigvaldi maður en Þórdís kona. Þannig er ekki nóg með að sagan lýsi átökum elskenda við forræði eldri kynslóðar heldur segir hún frá baráttu einstakl- ingsins við valdhafann, öreigans við eignastéttina, konunnar við karlveldið, svo notuð séu sígild hugtök hugmyndarýnenda. Vanmáttur Þórdísar kemur meðal annars fram í upphafi seinni hluta verksins þegar Sigrún kemur að fóstru sinni grátandi. Þórdís segir um samskipti sín við Sigvalda: 230
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.