Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1988, Page 54
Tímarit Máls og menningar mér, þær kunna að reynast mótsagnakenndar, þær eru áreiðanlega huglæg- ar - þær snerta flókin og erfið mál. Það var einkum tvennt sem ég felldi mig ekki við. Annars vegar þykir mér gæta ofríkis gagnvart textanum, til að láta hann ganga upp í kenning- unni um „hvað verkið fjalli í rauninni um“, handan þess sem það þykist vera - hitt atriðið er persónulegra og ef til vill tilfinningalegra og erfiðara við að eiga: það er óþægilegt að skynja svo sterka andúð á karlmönnum - eða kannski öllu heldur hinu karllega - eins og skín út úr greininni, mér dettur ekki annað orð í hug en karlfyrirlitning - og hin taumlausa veg- sömun Konunnar, Móðurinnar, Kvenleikans - das ewig weibliche - hlýtur að stríða gegn lífsviðhorfi þess sem mótast hefur af jafnréttishugmyndum síðasta áratugs og vandist því að brosa að mærðarvaðlinum um Fóstur- landsins Freyju. Fyrir karlmann sem stendur álengdar og horfir á er engu líkara en að þegar konum hefur loks tekist að mölva þann húsmóðurstall sem karlarnir þeirra hófu þær á til að telja þeim trú um að það væri göfugt að híma heima við og þræla þar frá morgni til kvölds fyrir engin laun önnur en hugsanleg lofkvæði - þá dynji á þeim nýjar firrur frá kynsystrum þeirra um að í eðli sínu, innst inni — „sem konur“ - séu þær eitthvað óskaplega merkilegt. Það er enn verið að skilgreina þær út frá stöðluðum hugsýnum um hvað sé kvenlegt - og þar með æskilegt, nema nú eru það menntakonur sem reka á básana. Ekki er til dæmis ýkja langt síðan Helga Sigurjónsdóttir benti á það í Verugrein að áfengisnautn væri karlalöstur og alls ekki til eftirbreytni fyrir konur - það er stutt yfir í einhvers konar Húsmæðraskólasiðgæði. Verði konu eitthvað á, til dæmis svik í ástum, eða morð, fær hún strax aflausnina: þetta gerði hún „á forsendum karla“. Kon- an er góð „í sjálfri sér“ af því hún fæðir barn - og þá er vitandi eða óafvitandi verið að ala á sektarkennd hjá þeim konum sem annað hvort vilja ekki eða geta eignast börn. Hún er nokkurs konar náttúruafl fremur en að hún tilheyri mannkyni, rómantísk hugsýn, konan er umfram allt gerð að hugmynd. Og í leiðinni megum við strákarnir sitja rjóðir og vandræða- legir undir viðlíka alhæfingum um „hið karllega" sem tengt er „í sjálfu sér“ öllum þeim neikvæðu gildum sem hægt er að láta sér detta í hug - hörku, kulda, ofstopa, leiðindum, fólsku, stríði, heimsku; og þótt við séum allir af vilja gerðir getum við aldrei verið jafn mikið á móti stríði eða eyðingu ósonlagsins og konur, vegna þess að við ölum ekki börn, og höfum í meira mæli en konurnar inni í okkur þennan voðalega bíólógíska þátt: hið karl- lega. Þess er ef til vill skammt að bíða að eldgos og snjóflóð verði talin karlleg „í sjálfum sér“, og raunar ekki erfitt að finna það út, eftir leiðum þess femíníska freudisma sem til grundvallar liggur. 188
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.