Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 16
bandarískum sjónarhóli og brezka gervi- hnattasjónvarpið Sky segir frá sömu atburðum fyrst og fremst frá brezku sjónar- homi. Þetta sjónarhorn er mjög þröngt hjá báðum stöðvunum. Þetta held ég að sé laukrétt en eins og síðar verður að vikið er hér ekki aðeins um þröngt sjónarhorn að ræða heldur er það einnig merkt menningu sem Islendingar verða að taka afstöðu til áður en þeir gera hana að sinni. Nú þarf náttúrlega engum að koma á óvart þótt uppi séu hafðar röksemdir um „frelsi" og frjálshyggjuhugmyndir okkar tíma falli saman við kröfur fréttafíkla um að fá stríð í beinni útsendingu. En frjáls- hyggjumenn hljóta, ef þeir eru sjálfum sér samkvæmir, að leggjast gegn því að nokkr- um sé fengið vald til þess að meta hvað sé þörf eða nauðsynleg frétt. Þar eiga notendur vitanlega einir að vera dómarar. Og þá verða frjálshyggjumenn líka að vera sér samkvæmir í því að frelsi í þessu efni geti ekki verið fólgið í því að fá beinan aðgang að ritskoðuðum fréttum úr einni átt. Það er einmitt andstæða frelsis. Rök tungunnar í blaðaskrifum um erlenda sjónvarpið síð- ustu daga hefur alloft mátt sjá kunnuglega röksemdafærslu fyrir þá sem fylgdust með deilum um Keflavíkursjónvarpið áður en það var gert afturreka. Menn óttast þá gjama um örlög íslenskrar tungu. Undir fyrirsögninni „Sjálfstæðisbarátta“ skrifar ljósvakarýnir Morgunblaðsins, Olafur M. Jóhannesson, t.d. hinn 16. janúar í tilefni af lögbroti Stöðvar 2: (...) hér er stigið skref gegn íslenskum lögum sem er upphafið að þúsund mílna ferð ef ekkert verður að gert. Annaðhvort stöndum við vörð um menningu okkar og tungu á öllum vígstöðvum eða við hættum smám saman að vera þjóð og hverfum í hóp sirkusapanna. í sjálfu sér er gleðilegt að lesa þessi skrif í Morgunblaðinu, ekki síst þegar þau fá stuðning í leiðara daginn eftir meðal annars með þessum orðum: Þau erlendu menningaráhrif, sem streymt hafa inn í samfélag okkar um nokkurt árabil hafa þegar haft merkjanleg áhrif á íslenzka tungu og eiga eftir að hafa meiri áhrif á lífsviðhorf þjóðarinnar. Þessi áhrif koma fyrst og fremst frá enskumælandi þjóðum enda verða áhrif enskrar og amerískrar tungu á orðaröð og setningaskipan í ís- lenzku máli stöðugt meiri. Hömlulausar gervihnattasendingar enskra og amerískra sjónvarpsstöðva inn á hvert heimili í land- inu munu magna þessi áhrif mjög. Fari svo fram sem horfir er mikil hætta á því, að landsmenn tali jafn bjagaða íslenzku, þegar fram í sækir og sagt er, að sumir lands- manna hafi gert á niðurlægingarárum danska tímabilsins. Þessi sívaxandi gagnrýni Morgunblaðsins á einstefnu hinna engilsaxnesku menningar- áhrifa er eitt af ljósustu dæmunum um þá hugarfarsbyltingu sem orðið hefur í vest- rænum heimi á síðustu misserum og er gott eitt um hana að segja. Nú er það svo að mál- og stílbreytingar eru víst ævinlega að gerast og fara einatt svo hægt að erfitt er að fullyrða um stefnu þeirra, hvað þá hraða. Þess vegna er líklega varlegast að fullyrða sem allra minnst um áhrif enskrar tungu á íslenskt nútímamál, 6 TMM 1991:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.