Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 58

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 58
til árinnar. Honum virtist hún vera held og sýndist hann meira að segja grilla í sporaslóð yfir hana í stefnu á bæjarhúsin, en afréð þó að fara brúna. Á brúnni stansaði hann til að hvíla sig, hallaði sér fram á riðið, og lét höfuðið hanga. Litlu neðar stóðu gráýróttar klappir upp úr ísnum, en ofan við þær var svarblátt, skafíð svell. Nú slotaði enn veðrinu, og birti til, og þá heyrði hann duna í ísnum og hugsaði með sér að áin hlyti að vera straumhörð undir brúnni og djúpur hylur fyrir neðan klappimar. Og þar var skyndilega kominn hópur af hröfnum. Hann taldi þá. Þeir voru sjö og hann taldi þá aftur því að þetta kom ekki heim við vitneskju hans um atferli hrafna. En það var ekki um að villast, hrafnamir voru sjö, og þegar hann horfði á þá hoppa þarna og dansa gargandi milli klappanna var hann allt í einu gripinn ónotahrolli sem á einhvem undar- legan hátt skyggði örlítið á þennan vonbjarta dag í lífi hans. Hann var orðinn snjóugur upp í mitti og móður þegar hann náði upp að bænum. Bóndinn, luntalegur, miðaldra maður, lauk upp fyrir honum og leiddi hann þegjandi inn í eldhús til konu sinnar, sem sýndist heldur ekki verða tiltakanlega glöð við gestakomuna. Eftir langa og heimóttarlega þögn ítrekaði orðheimtumaður erindið; að hann hefði gmn um að gamla húsmóðirin lumaði á vitneskju sem ekki mætti fyrir nokkum mun glatast. Húsbóndinn þagði sem fyrr, en húsfreyja áminnti orðheimtumann að hann mætti hvorki ganga hart að gömlu konunni né dvelja lengi hjá henni þar sem hún væri orðin mesta hró; að svo mæltu vísaði hún honum upp í loftkytm þar sem gamla konan lá í rúmi og virtist í fljótu bragði þegar vera sofnuð svefninum langa. En þegar hann settist á rúmbríkina hjá henni og þau voru orðin ein lauk hún upp tortryggnislegum, fölbláum augum, sem um leið vom dálítið óttaslegin, og horfði á komumann. „Voru það þau niðri sem sendu þig?“ spurði hún, er hann hafði hálf hrópað erindið tvívegis í eyra henni. Þegar hann hafði sannfært hana um að svo væri ekki kom ánægjusvipur á andlit hennar og hún ræskti sig þrisvar áður en hún hvíslaði að það væri eins og sig rámaði í að eitthvað hefði þetta nú verið kallað. Svo starði hún tómum augum upp í loft nokkra stund, en benti honum síðan að lúta ofan að sér og hvíslaði einhverju að honum. Hann kipptist til og ljómaði af gleði þegar hann reisti sig aftur upp. Hann margtautaði og gældi með vömnum við orðið sem hann hafði haft uppúr henni; eftir það fór hann að ókyrrast, en gamla konan féll aftur í mók, og þegar hann læddist út úr kompunni var hún jafn lífvana í rúminu og þegar hann hafði komið. Niðri beið hans tilhlýðilegt kaffi og kökumusl en hjónin voru jafn þurrleg og áður og hímdu þögul á bekk við eldhúsborðið. Hann varð feginn því að vera ekki spurður um erindislok, og feginn þögninni þar sem hann sat í krók við gluggann, ljómandi af ólýsanlegri hamingju og maulaði kanelsnúð með kaffinu. Honum var nú mest í mun að komast af stað með vitneskju sína; einhvernveginn þóttist hann ekki óhultur um hana fyrr 48 TMM 1991:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.