Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 76

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 76
sjúkdómur vafalaust magnað floga- og geð- veikiseinkennin, sem hann fór þó ekki að þjást af fyrr en eftir 35 ára aldur. Líklegast hafa orsakimar fyrir geðveikis- köstum Van Goghs verið líffræðilegar að mestu leyti. Talsverð veiklun var í ætt hans: móðursystir hans var flogaveik, systir hans, Wil, var þunglyndissjúklingur og dvaldi á geðsjúkrahúsi síðustu 39 æviár sín, frændur hans í föðurætt voru þunglyndir og veiklað- ir á sinni; Theo bróðir hans varð geðveikur og yngsti bróðirinn svipti sig líklega lífi. Fjómm mánuðum eftir að Vincent skar af sér eymasnepilinn, skrifar hann bréf til Theo, og er þá nýstiginn upp úr margra vikna veikindum. Hann gerir sér nú grein fyrir því hversu veikur hann er og að hann getur ekki séð um sig sjálfur. í þessu bréfi lítur hann yfir farinn veg og gerir sér loks grein fyrir því að mótlætið, sem hann hefur átt við að stríða allt sitt líf, er ekki fyrst og fremst öðrum að kenna eins og hann hafði gjaman haldið, heldur hefur einæði hans og stríð lund átt drjúgan þátt í að gera honum lífið erfiðara en annars hefði orðið. Ég talaði við herra Salles aftur og hann sagðist hafa skrifað þér. Ég held að þetta sé best svona og ég sé ekki neina aðra leið. Hæfileikinn til að hugsa er smám saman að koma afturen ég ræð alls ekki við að sjá um það sem gera þarf á sama hátt og áður. Ég er utangátta og get ekki annast sjálfan mig sem stendur. . . . Ég er sannfærður um að þetta hafi verið að gerjast innra með mér mjög lengi, og að annað fólk hafi konrið auga á einkenni andlegrar veiklunar hjá mér. Þetta fólk hefur haft grunsemdir sem höfðu við haldbetri rök að styðjast en mín órökstudda vissa um að hugsanir mínar væru eðlilegar, sem þær voru ekki. Þessi niðurstaða hefur mildað marga þá dóma sem ég hef of oft fellt, á meira eða minna hrokafullan hátt, yfir fólki sem í rauninni vildi mér vel. (Bréf 586). Síðasta árið í lífi Vincents skiptust á ömur- legar sjúkdómsvikur og mánuðir þar sem hann virtist vera fullkomlega heilbrigður. Hann hafði snemma ofgert líkama sínum með því að fasta of lengi á því tímabili er hann aðhylltist öfgar í trúmálum. Oft borð- aði hann dögum saman ekki annað en brauð eða nærðist einungis á kaffi. Stundum reykti hann allt of mikið til að sefa sárasta hungrið í fátæktinni síðustu árin sem hann lifði. Hann vildi oft á tíðum frekar kaupa striga og dýra olíuliti en mat. Árum saman hafði hann þjáðst af magakvillum vegna lélegs og lítils matar og áfengisneysla hans hefur síst bætt þar um. Þegar Vincent dvaldist í Arles fórhann að hugsa aðeins betur um heilsuna og borða betri mat, enda fjárhagurinn þá ekki eins þröngur og oft áður. Þegar hann byrjar síð- an aftur að drekka í Arles, bæði absint og koníak (sem Toulouse-Lautrec blandaði gjaman saman í kokteil, sem hann kallaði „tremblement de terre“ eða ,,jarðskjálfta“) þá var það bæði út úr leiðindum og vegna einmanaleika og einangmnar; svo og vegna drykkjusýki. En þó var það ekki síst fyrir málverkið, sem hann fómaði heilsu sinni síðustu tíu árin. Hann skrifaði Theo síðar að hann hefði orðið að vera talsvert hátt stemmdur til að ná „gulu háu nótunni“, sem hann kallaði svo, í málverkum sínum. Einmanaleikinn og sjálfsvígiö Síðustu mánuðina sem Vincent lifði, bjó hann í þorpinu Auvers rétt norðan við París þar sem læknir að nafni Gachet hafði um- sjón með honum. Van Gogh málaði mynd 66 TMM 1991:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.