Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Síða 84

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Síða 84
hjónaband nútímans og í sumum þeirra boðar höfundurinn kenningar sínar um málið af miklum ákafa. Hann taldi verka- skiptingu kynjanna í meginatriðum ákvarð- aða af náttúrunni (konan sjái um bömin, karlinn á að ráða mestu) og honum var í nöp við allt kvenfrelsistal sem hann telur ónátt- úm. Eina söguna kallar hann „Brúðuheim- ili“ og beinir þar spjótum sínum að viðhorfi Ibsens í leikritinu fræga um Nóru, sem hann gerir einnig að umtalsefni í formálanum. En reyndar hafði Strindberg sérstaklega í huga „menningarhjónabönd“ eða hjónabönd mið- og hástéttarfólks; og virðist hann eink- um hafa viljað benda á að gáfukvendið (sæ. kulturkvinnan) væri alls ekki kúgað, hvað sem kvenfrelsistali einmitt slíkra kvenna liði. Hjónalíf 1 olli gífurlegu fjaðrafoki er bókin kom út í Svíþjóð haustið 1884. Meg- inástæðan var þó ekki fólgin í ofangreind- um boðskap um samskipti kynjanna heldur meintu guðlasti. Byggist það á klausu í sögunni „Laun dyggðarinnar“ sem fjallar um pilt að nafni Theodór sem sýnist reynd- ar eiga ýmislegt sammerkt með höfundin- um. Klausan er svona: Um vorið var hann fermdur. Þessi hrika- lega athöfn þar sem hástéttin tók eið af lágstéttinni upp á líkama og blóð Krists um að hún skyldi aldrei skipta sér af gerðum hástéttarinnar sat lengi í honum. En þetta óprúttna svindl með Högstedts- vín sem kostar 65 aura kannan og Lett- ströms maísoblátur á eina krónu pundið, sem presturinn fullyrti að væm kjöt og blóð Jesú Krists, múgæsingamanns sem var tekinn af lífi fyrir 1800 árum, olli honum þó engum heilabrotum, enda var lítið verið að brjóta heilann um þetta leyti, mest komist í „stemmningu". (45) Hetju fagnað á Aðalbrautarstöðinni í Stokkhólmi haustið 1884. Strindberg var stefnt fyrir rétt fyrir guðlast og fógeti lagði lögbann á bókina og gerði afgang upplagsins upptækan hjá forlaginu í október 1884. Varð bókin þá fræg á svip- stundu og hófst óðara svartamarkaðsbrask með hana. Eftir nokkurt hik afréð Strind- berg, sem þá var búsettur í Genf, að koma af frjálsum vilja fyrir rétt í Stokkhólmi og firra þannig útgefanda sinn frekari vand- ræðum. Októberdaginn þegar Strindberg kom á brautarstöðina í Stokkhólmi var hon- um tekið sem frelsishetju. Um þúsund manns höfðu safnast saman til að fagna honum og flutti skáldið stutt ávarp á staðn- um. Um kvöldið varhann sæmdur lárviðar- kransi og silkiborða af aðdáendum sínum í Nya teatem við dynjandi fagnaðarlæti. En af dómsmálinu er það að segja að skáldið var sýknað þann 17. nóvember sama ár; og létti þá sumum en öðrum gramdist.4 Þó að róttækir vinstrisinnar hafi tekið Strindberg fagnandi á Aðalbrautarstöðinni þetta haust, og jafnvel þótt Strindberg hafi eflaust talist sósíalisti á þessum tíma, þá varð hann naumast talinn mikill verkalýðs- sinni. Hann var nefnilega eins konar úrvals- hyggjumaður að hætti Nietzsches, innblás- 74 TMM 1991:1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.