Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 89
— Ójá.
Sér í hag og gegn lágstéttinni?
— Já, að sönnu! [...]
Hvað er lögleg refsing?
— Hefnd hástéttarinnar fyrir að lágstéttin
hefur brotið gegn þeim lögum sem hástéttin
hefur sett. [...]
Hvað er hagfræði?
-— Vísindagrein sem hástéttin fann upp til að
ræna arðinum af vinnu lágstéttarinnar.
Hvað nefnist ávöxturinn af vinnu lágstéttar-
innar?
— Auðmagn.
Er auðmagn hugsanlegt án vinnu?
— Nei!
Þess vegna ætti auðmagnið að vera þræll
vinnunnar og ekki öfugt.
Arabinn í eyðimörkinni getur orðið hungur-
morða, þótt hann finni gullsekk.
Landeigendumir í Friuli eru fátækir af því að
bændur þeirra og leiguliðar eru fluttir úr landi
og engir fást í þeirra stað. [. ..]
Hvers vegna rœður þá auðmagnið yfir vinn-
unni?
— Þegar auðmaðurinn heldur eftir sparifé
verkamannsins, sem er einmitt auðmagnið, þá
kemur hann í veg fyrir að verkamaðurinn geti
ráðið yfir því.
Auðmagnið ræður yfir vinnunni með vopna-
valdi og með því að útiloka menn frá lífs-
nauðsynjum og framleiðslutækjum.
Bakvið burgeisinn stendur ævinlega herfor-
ingi. Mikil verkföll eru því jafnan barin niður
með blóðbaði. [. ..]
Hvernig á verkamaðurinn að aflafjár til aðfara
í verkfall?
— Með kaupfélögum sem draga úr útgjöldum
hans og með verkamannabönkum, sem veita
lán til að fjármagna verkföli.
Er það nóg?
— Nei, það þarf líka að taka jarðir eignar-
námi. [...]
Hvers vegna hœkkar verð vöru þegar lítið er til
afhenni?
— Vegna þess að kaupmaðurinn notar sér
neyð annarra til að græða.
Hvað erþetta kallað íhagfræði hástéttarinnar?
— Þetta er kallað lögmálið um framboð og
eftirspum. [.. .]
Hvað er heimspeki?
— Leit að sannleikanum.
Hvernig getur heimspeki þá verið liliðholl há-
stéttinni?
— Hástéttin borgar heimspekingunum fyrir
að uppgötva eingöngu þann sannleika sem
henni hentar.
En efþeir uppgöh’a engu að síður eitthvað sem
kemur henni illa?
— Þá er það kallað lygi og heimspekingurinn
er hýrudreginn. [...]
Hvað er sagnfræði?
— Frásögnin um fortíðina að svo miklu leyti
sem hún er sögð á þann hátt sem hástéttinni
hentar.
Og hvað ef eitthvað óhagstætt kemur í Ijós?
— Þá er það kallað hneyksli. [...]
Hvaða skyldur hefur maður gagnvart ættjörð
sinni?
— Engar! [. ..]
Hvað er fagurfrœði?
— Kenningin um að lofa eða lasta listaverk.
Hvaða listaverk eru talin lofsverð?
— Þau sem róma hástéttina. [...]
En hvað þá með hin listaverkin?
— „Það mega ekki vera til nein önnur.“
Zola hefur lýst þjáningum lágstéttarinnar og
afbrotum hástéttarinnar, og þess vegna er hann
kallaður klámhöfundur. Klám er það nafn sem
hástéttin gefur öllu því sem tengist lágstéttinni.
[•••]
Hvers vegna er hástéttinni í nöp við náttúru-
vísindi?
TMM 1991:1
79