Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 109

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Page 109
smiðjunni. Og ávalur líkami hans fór einna best á skrifstofu og hafði hvort sem er alltaf verið á skrifstofu, áður en hann var rekinn. Limimir voru eitthvað ónýtir og þreyttir við mjölpokana, eins þótt byrjað væri að pakka í hálfsekki og heilsekkimir niður lagðir, sem vom hundrað kfló, en það má teljast hrein geggjun. Svo var það eitt haust að veður var gott. Daginn sem þessi saga gerist var Denni hræðilega óþekkur og mátti sjá það fyrir. Sól skein í heiði, hiti var 5°C, loftvægi um 1018 og suðvestan gola. Klukkan 10:30 árdegis dembdi Denni niður kakóinu og braut glasið, reif kakóið af Benna vamarlausum, svo að það sullaðist yfir báða og barði glasinu í enni Benna, svo að út hljóp kúla blá. Um var að ræða sunnudag samkvæmt almanaki og pabbinn átti von á útvarpsmessu á hverri stundu. Tók hann Denna með öskmm, reif niður á honum buxumar og hýddi hann hraustlega flötum lófa. Öskrin í drengnum ætluðu að æra hann, svo að hann kastaði honum ofan í rúm, ákallaði djöfulinn og hélt áfram að bíða eftir messunni. Móðirin maldaði í móinn, en það var mest formsatriði. Líður nú hádegið. Stundvíslega klukkan 12:30 tók Denni í dúkinn og dró veisluna sviptingshratt af sunnudagsborðinu niður á gólf í miðjum fréttum. Faðir hans var ævareiður, dró niður á honum sömu buxurnar og fyrr um daginn og hýddi hann engu minna en áður, eða þar til hann (faðirinn) kenndi þreytu í upphandleggsvöðvum hægra megin. Mamma var voða reið við Denna og hýddi dálítið með pabba, en hann sló þá óvart ofan á handarbak henni, á rassi stráknum, svo að hún dró sig í hlé. Yngri bróðirinn Benni hafði varla neitt vit á þessu í stólnum, svo var hann smár. — Viltu meira? öskraði pabbinn. Denni grenjaði svo mikið að undir tók í húsinu og ekkert heyrðist í fréttum. Vestur í Ameríku átti að fara að drepa Kennedy, en var þó ekki alveg komið að því og þess vegna var varla við neinu fréttnæmu að búast úr útvarpinu í bráð. Denna var samviskusamlega kastað í rúmið og hafði hann þar að vísu skamma viðdvöl. Tók hann fljótlega fótavist á ný, en fór sér þó hægt í fyrstu og virkaði var um sig. Klukkan 16:15 fór Denni út í sparifötunum, marggyrtur og vel gyrtur eftir niðurum- hneppingar fyrri hluta dags. Þetta var löngu eftir daga olíulampanna en löngu fyrir daga olíumalarinnar og þar sem sól skein af skomum skammti um haustið, þá var hverfisdmllu- pollurinn alls ekki þurr. Enda hafði rignt um nóttina og eitthvað daginn áður. Gekk Denni nú að pollinum, lagðist niður og velti sér nokkra hringi í drullunni, án þess að tilgreina neinar ástæður. En pjakkslegur var hann á svipinn og gleyminn. Heima tók faðir hans hann og færði úr miklu af fötum í þvottahúsinu, hélt þó á honum TMM 1991:1 99
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.