Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 35

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 35
menntun stúlkunnar og því staðið henni nær að sjá um hann. Við túlkun bókmennta- verka er sjálfsagt að hafa að einhverju leyti í huga þjóðfélagsaðstæður og aldarhátt. Það hlýtur að vekja athygli hversu mjög Helga leggur sig fram um að skapa úr inni- legum og heillyndum samskiptum tog- streitu og kynjabaráttu. En það er mjög í samræmi við þær áherslur sem hún leggur á ofurvald og kúgun hins karllega á því kvenlega og endurspeglast það að hennar mati jafnt í mannheimum sem í náttúrunni sjálfri. 4.......allar rósir falla“ Helga getur þess að í sögunni allri takist á meginandstæður, „þ.e.a.s. andstæðumar milli hins lóðrétta og lárétta, stóra og litla, karllega og kvenlega, steinsins og flæðis- ins“ (268). Þannig telur Helga að fjall sé tákn hins karllega og grös tákn hins kven- lega. í dýraríkinu nefnir hún ránfugl sem einn af fulltrúum karlveldis en lóu sem tákn hins kvenlega. Systirin í Grasaferð er full- trúi hins kvenlega innan mannheims en drengurinn fulltrúi karlveldis. Þessi skipt- ing í hið karllega og kvenlega virðist sam- kvæmt þessu vera eins konar kosmískt lögmál, þar sem hið karllega er hið ríkjandi veldi. Það er mikilvægt að hafa þessi skörpu skil í huga því þau eru lögð til grundvallar mikilvægum túlkunaratriðum. Kemur það vel fram í túlkun Helgu á kvæðum Jónasar í Grasaferð: Sáuð þið hana systur mína og Heylóarvísu. Um Heylóarvísu segir Helga: í „Heiðlóarvísunni“ „talar" eða öllu heldur syngur lóan, því að hún hefur ekki mál. Er „dírrindíið" hennar lofsöngur um náttúruna og þá „symbíósu" móður og unga sem rán- fuglinn rýfur með ofbeldi (274). Helga sér hliðstæðu milli ofbeldisaðgerðar ránfuglsins og fundar hreppstjórans við systurina („hleypur þegar hreppstjórinn finnur hana á fömum vegi“) og segir: „Þannig enda bæði þetta ljóð og „Heiðlóar- vísan“ á því að karlveldið (hreppstjórinn, hrafninn) kemur og tmflar þann heim ham- ingju og samræmis sem ljóðin lýsa“ (275). Það merkilega við túlkun Helgu á Sáuð þið hana systur mína er að hún virðist telja að þar valdi karlvera umtalsverðri röskun á samræmi tilvemnnar með því einu að láta sjá sig (vera til). Er það vissulega athyglis- verð skoðun og bíður upp á óþrjótandi möguleika í skáldskapartúlkun. Nú vaknar sú spuming hvort þessa rösk- un karlveldisins megi finna í öðrum ljóðum Jónasar. Ef við gefunt okkur það (eins og Helga) að hið karllega sé æ til óþurftar, meðal manna jafnt sem dýra, þá getum við hafið leit að því sem fær staðfest þá kenn- ingu. Og við fínnum Óhræsið . . . „Ein er upp til fjalla“. Þar er það valur, „vargur í fuglahjörð“ (karlveldið) og „blessuð rjúpan hvíta“ (kvenímyndin) sem takast á. Hins vegar fer heldur að síga á hugmyndafræði- lega ógæfuhlið þegar „gæðakonan góða“ tekur til sinna ráða og snýr kynsystur sína úr hálslið. Reyndar gengur hún enn lengra í gjörð sinni því „gróteska“ kvæðisins birt- ist í áti einnar kvenvem á annarri. Ef við viljum losa okkur úr þeim vanda og fría konuna ábyrgð á illri gjörð (því vitaskuld er hér um sömu ofbeldisaðgerð að ræða og hjá hrafninum) þá fullyrðum við eitthvað á þá leið að hugmyndafræði karlveldis hafi rofið eðlileg tengsl konunnar við náttúmna, gert hana að óhræsi. Hún hefur því unnið ódæð- TMM 1991:3 33
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.