Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 86

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 86
4 Max Brod bjó til ímynd Kafka og verka hans; um leið bjó hann til kafkafræðina. Kafkafræðingamir setja sig gjama upp á móti föður sínum með hávaða og látum, en komast samt aldrei út fyrir þann skika sem hann úthlutaði þeim ábúðarfullur. Þrátt fyr- ir að kafkafræðin framleiði stjamfræðileg- an fjölda texta, hamrar hún sífellt á sömu hlutunum í endalausum tilbrigðum, sömu vangaveltunum sem verða æ óháðari verk- um Kafka og sjálfum sér nægar. Hún við- heldur og hampar ímynd Kafka með óteljandi formálum, eftirmálum, athuga- semdum, ævisögum, sértækum ritgerðum og ráðstefnum í háskólum, með þeim af- leiðingum að höfundurinn sem fólk þekkir undir nafninu Kafka er ekki lengur Kafka, heldur kafkafræðilegur Kafka. Ekki er allt kafkafræði sem skrifað hefur verið um Kafka. Hvemig er hægt að skil- greina kafkafræðina? Með klifun: Kafka- fræði er málflutningur sem ætlað er að kafkafræða Kafka: 1) Á sama hátt og Brod lítur kafkafræðin ekki á verk Kafka í hinu víða samhengi bókmenntasögunnar (sögu evrópsku skáld- sögunnar), heldur nánast einungis í hinu þrönga samhengi ævisögunnar. Þeir Bois- deffre og Albérés segjast í ritgerð sinni vinna í anda Prousts og hafna ævisöguleg- um túlkunum á listaverkum, en segjast síð- an verða að gera undantekningu frá reglunni þegar um Kafka sé að ræða, því að bækur hans sé „ekki hægt að skilja frá per- sónu hans. Hvort sem aðalpersóna bókar- innar nefnist Jósep K„ Rohan, Samsa, Mælingamaðurinn, Bendemann, Jósefína söngkona, Sá sem fastar eða Loftfimleika- maðurinn, er hún enginn annar en Kafka sjálfur." Ævisagan er aðallykillinn til að skilja gildi verksins. Og stundum það sem verra er: Eina gildi verksins felst í því að vera lykill til að skilja ævisöguna. 2) Á sama hátt og Brod skrifa kafkafræð- ingamir ævisögu Kafka eins og heilagra- mannasögu. Roman Karst lauk ræðu sinni á ráðstefnunni í Liblice árið 1963 með þess- um hástemmdu orðum sem seint munu líða úr minni: „Franz Kafka lifði og þjáðist fyrir okkur!“ Mismunandi tegundir heilagra- mannasagna, ýmist trúarlegar eða trúlausar (Kafka, píslarvottur einsemdarinnar), en líka vinstrisinnaðar (Wagenbach) — þegar Kafka sækir fundi stjómleysingja hefur hann „mikinn áhuga á byltingunni 1917“ (hvorugt hefur nokkru sinni verið sannað). í hverri kirkju er að finna skýringarrit um hann: Samrœður eftir Gustav Janouch. Hver heilagur maður hefur gert eitthvað dularfullt sem er helgað: það að Kafka skyldi biðja um að verk hans yrðu eyðilögð (menn láta gjama hjá líða að geta þess að hann sendi frá sér sex bækur á lífsleiðinni og að hann var enn að leiðrétta prófarkir að þeirri sjöundu þegar hann lá banaleguna). 3) Á sama hátt og Brod útskúfa kafka- fræðingarnir Kafka af sviði fagurfræðinn- ar: annaðhvort sem „trúarlegum hugsuði“, eða, meðal vinstrisinna, sem andmælanda lista sem „ætti sér draum um bókasafn þar sem ekki væri að finna bækur um annað en verkfræði, vélvirkjun og lögfræði“ (Del- euze og Guattari). Kafkafræðin er óþreyt- andi við að rannsaka samband hans við Kierkegaard, Nietzsche, guðfræðingana, en mun sjaldnar er litið á samband hans við skáldsagnahöfunda og ljóðskáld. Jafnvel Camus talar ekki um Kafka sem skáld- sagnahöfund í ritgerð sinni, heldur sem heimspeking. Skrif hans um sjálfan sig og 84 TMM 1991:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.