Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Blaðsíða 34
með vasaljósi, auga l'yrir vélknúnum öku-
tækjum . . . Sakleysislegustu uppátæki eru
í rauninni stórhættuleg, börn eru ofjarlar
útsmoginna baráttumanna, ef þau vilja það
með hafa, og lífíð er leikur sem menn
skyldu taka alvarlega. Hið kunnuglega get-
ur á einni andrá orðið framandlegt og ógn-
vekjandi.
Þegar Kim Larsen var ungur
Martin og Viktoría eftir Klaus Lynggaai'd
kom út hjá Máli og menningu árið 1991, í
þýðingu Hilmars Hilmarssonar. Grunn-
þemað er það sama og í bókinni Ast við
Jyrsta hikk! — frásögn stráks af stóru æsku-
ástinni — en hér er undirtónninn alvarlegri,
og sagan mun margslungnari en venjuleg
ástarsaga. Rokkið flæðir hér um síður, yfir-
þyrmandi og ómótstæðilegt. Því fylgir
þungur bassi hasslyktar, súr falsetta heima-
bruggs og gnýr vélhjóla. Andrúmslofti ár-
anna um 1970 er lýst á ljúfsáran hátt. Hvort
þar um veldur eftirsjá eftir þessu tiltekna
tímabili eða unglingsárunum skal ósagt lát-
ið. Hitt er víst, að þessi fortíðarhyggja eða
þáþrá er í nokkurri tísku um þessar mundir,
þegar verið er að blása rykið af helstu
rokkverkum þessa tíma. Má þar til dæmis
nefna kvikmynd Olivers Stone um The
Doors og endumýjaðar vinsældir Jims
Morrisons heitins og annarra rokkgoða.
Sögumaðurinn Martin er barn síns tíma, en
aðstæður unglinga hafa í raun sáralítið
breyst frá því Gasolin var og hét og hljóm-
sveitin Thorshammer hitaði upp á tónleik-
um.
Martin er að byrja í nýjum skóla og er
fljótur að eignasl nýja vini. Hann verður
strax yfir sig hrifinn af ráðgátunni Viktoríu,
sem félagar hans afskrifa sem merkikerti og
leiðindaskjóðu. Fyrsta mannraun Martins
verður að slíta sambandi sínu við Píu og
sýna þar með ábyrgð á sjálfum sér og til-
finningum sínum. Leiðin að hjarta Viktoríu
er þyrnum stráð, en með þolinmæði og
þrautseigju yfirstígur Martin allar hindranir
sem á veginum verða. Sú stærsta er Viktoría
sjálf. Einangmn hennar og ofvemdun í upp-
eldi gerir það að verkum, að hún er ámóta
árennileg og skrímsli Frankensteins þegar
mannleg samskipti em annars vegar. Hún
kann einfaldlega ekki að umgangast aðra en
hesta, en Martin verður fyrstur til að brjóta
ísinn og bræða klakann, og reynir það á
þolrif hans og lesandans. Sjálfur kynnist
hann ættingjum Viktoríu, og þau kynni
verða fyrir ýmsar sakir lærdómsrík og eft-
irminnileg. Vinahópur Martins erlitríkuren
KLAUS LYNGGAARD
24
TMM 1992:1