Morgunblaðið - 20.12.2014, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 0. D E S E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 298. tölublað 102. árgangur
RITDÓMAR OG
KAFLAR ÚR
NÝJUM BÓKUM
FRÍDAGAR LANDS-
MANNA NOKKUÐ
MARGIR Í ÁR
STÓRU BRANDAJÓL 18BÆKUR 38-49
Morgunblaðið/Ásdís
Mein Það skiptir máli hvað krabbameinið
er kallað, samkvæmt nýjum rannsóknum.
Fjandsamlegar myndlíkingar til
að lýsa krabbameini geta reynst
sjúklingum í meðferð óþægur ljár í
þúfu. Þetta er meðal þess sem kem-
ur fram í nýrri rannsókn sem birt
verður í janúarútgáfu sálfræðirits-
ins Personality and Social Psycho-
logy Bulletin.
Sigrún Lillie Magnúsdóttir, for-
stöðumaður ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins, segir það að
takast á við sjúkdóminn yfirleitt
ekki vera spretthlaup, heldur lang-
hlaup. »30
Ekki skal talað
um krabbameinið
sem óvin
Þrýstir verðbólgu niður
» Söluverð nýrra bíla og verð
á varahlutum og eldsneyti hef-
ur áhrif á þróun verðbólgu.
» Þessar lækkanir munu því
leiða til minni verðbólgu.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verð á nýjum bílum lækkar talsvert
um áramótin þegar efra þrep virðis-
aukaskatts lækkar úr 25,5% í 24%.
Lækkunin er mismikil eftir því
hversu dýrir bílarnir eru. Morgun-
blaðið óskaði eftir dæmum um
væntanlega lækkun hjá sjö umboð-
um.
Alls 33 dæmi bárust og er megin-
línan sú að smábílar lækka um 20-40
þúsund en dýrari bílar talsvert
meira. Má þar nefna að Land Crui-
ser 150 GX og Porsche Cayenne
lækka báðir um 200 þúsund krónur.
Samhliða þessu mun verð á bens-
íni og dísilolíu lækka.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) áætlar að sú lækkun skili 2
krónum á lítra og verður útsöluverð-
ið án afsláttar að óbreyttu því farið
að nálgast 200 krónur í fyrstu viku
nýs árs. Þá mun verð á varahlutum
lækka og telur FÍB að það eigi að
skila sér í ódýrari bílatryggingum.
Björn Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri bílasviðs Bílabúðar Benna, tel-
ur að neytendur muni áfram kjósa
sparneytna bíla þótt olíuverð lækki.
MNýir bílar lækka »12
Lækka um allt að 200 þúsund
Nýir bílar lækka í verði um áramótin vegna lægri virðisaukaskatts Varahlutir
og eldsneytisverð lækkar líka Bílasali telur sparneytna bíla hafa fest sig í sessi
Ljósmynd/Art Gray
Hús formanna Einbýlishúsið sem
EON fékk verðlaun fyrir.
EON arkitektar, stofa Hlédísar
Sveinsdóttur, báru sigur úr býtum í
tveimur flokkum þegar hið virta hönn-
unartímarit Interior Design úthlutaði
verðlaunum fyrir framúrskarandi verk
á árinu 2014 í New York á dögunum.
Annars vegar sigraði EON í flokki
stærri einbýlishúsa, fyrir Hús form-
anna við Elliðavatn, sem er í eigu Kára
Stefánssonar, og hins vegar í flokki
safna/gallería fyrir Heklusetur á Leir-
ubakka. Síðarnefndu verðlaununum
deildi EON með arkitektunum sem
hönnuðu 9/11-safnið á Manhattan.
Verðlaunin eru veitt fyrir fullbyggð
verk en EON sá um hönnun bygging-
anna, að utan sem innan, ásamt lóða-
og landslagshönnun.
„Dyr hafa opnast. Það er alveg
greinilegt. Við fundum að verkin okkar
vöktu athygli á hátíðinni, auk þess sem
við vorum kynnt fyrir fjölmörgu fólki í
faginu,“ segir Hlédís við Sunnudags-
blað Morgunblaðsins. „Stofan okkar er
orðin þekktara nafn en hún var og búið
að sýna fjölmörgu málsmetandi fólki í
faginu verkin okkar. Nú er það bara
undir okkur komið að vinna úr þessu.“
Deila verðlaunum með 9/11
EON arkitektar hlutu tvenn verðlaun í keppni í New York
Á morgun, sunnudag, verða vetrarsólstöður og þá
er stysti sólardagur ársins. Sólstöður eru sú stund
þegar sól fer lengst frá miðbaug himins til norð-
urs eða suðurs og eru þær tvisvar á ári. Sumarsól-
stöður eiga sér stað á tímabilinu 20. til 22. júní,
þegar sólargangurinn er lengstur, og vetr-
arsólstöður, sem verða klukkan 23:03 þetta árið,
verða iðulega 20. til 23. desember. Nafnið sól-
stöður vísar til þess að sólin stendur í stað, það er
að segja hættir að hækka eða lækka á lofti. Þrátt
fyrir myrkrið munu jólaljósin eflaust lýsa upp
daginn enda hátíðarundirbúningur í algleymingi.
Sólin fer hækkandi á lofti frá og með sunnudeginum
Morgunblaðið/RAX
Vetrarsólstöður á morgun þegar sólargangurinn verður sá stysti á árinu
Verðbólga á 12
mánaða grund-
velli mælist nú
0,8% og hefur
hún ekki verið
minni í um tvo
áratugi.
Bankarnir og
Seðlabankinn
spáðu mun meiri verðbólgu undir
lok þessa árs en raunin er og
kemur mikil lækkun olíuverðs þar
við sögu.
Ingólfur Bender, forstöðumaður
Greiningar Íslandsbanka, væntir
þess að verðbólga aukist á ný á
síðari hluta næsta árs. Bankinn
spáir því nú að verðbólga verði
um 1% fram á mitt næsta ár.
»4 og 27
Verðbólga ekki
minni í tvo áratugi
dagar til jóla
4
Gluggagægir kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
Suomi PRKL! Design
Laugavegi 27 (bakhús)
www.suomi.is, 519 6688
18.900,-
XS-XXXL
Til í
svörtu