Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Rétt fjörutíu ár eru í dag, 20. des- ember, liðin frá snjóflóðunum sem féllu niður yfir byggðina í Neskaup- stað þar sem tólf manns fórust. Dagana á undan hafði illviðri af norðnorðaustri með miklu fann- fergi gengið yfir landið. Hinn 19. desember féll snjóflóð á Siglufirði, þar sem íbúðarhús gereyðilagðist en engan sakaði, og í Seyðisfirði rústaði snjóflóð gripahús. Tuttugu mínútur milli flóðanna tveggja Daginn eftir féll fjöldi snjóflóða úr fjallinu ofan Neskaupstaðar, þar af tvö langt út á fjörðinn. Þetta gerðist milli kl. 13.30 og 14.00 og urðu bæði þessi flóð mannskæð. Hið fyrra, um 400 metra breitt, kom fá efstu fjallsbrún vestan íbúðabyggðar og skall á fisk- vinnsluhúsi SÚN, stórri síld- arbræðslu SVN og birgðageymslu vestan við hana. Þetta flóð tók fimm mannslíf og var mikið lán í óláni að ekki var unnið í fiskvinnslu þennan föstudag, en dagana á und- an var á annað hundrað manns þar að störfum. Ytra flóðið féll um 20 mínútum síðar ofan frá Miðstrandarskarði og reyndist um 150 metra breitt við ströndina. Fórust í því alls sjö manns. Það hreif með sér bílaverk- stæði, steypustöð og íbúðarhús innst við Urðarteig. Í íbúðahúsinu fórust fjórir en smábarn bjargaðist. Þá fórst maður sem stóð við jarð- ýtu sína og var að hella á hana olíu. Bæði vinnuvélin og maðurinn bár- ust út í sjó og fundust aldrei, né heldur lík manns sem ók rútu eftir aðalgötunni þegar flóðið geystist niður. Fannst eftir 20 tíma leit Hvernig sumir björguðust úr flóðinu eða voru staddir á réttum stað á réttum tíma þótti jarteiknum líkast. Einstætt þótti hvernig nítján ára piltur, Árni Þorsteinsson, bjargaðist. Hann grófst undir snjó og braki lokaður af niðri í þró neð- an frystihússins og fannst ekki fyrr en eftir 20 tíma leit. Hann var þá lerkaður, en vel á sig kominn eftir atvikum. Fjöldi björgunarmanna, einnig úr nágrannabyggðum, kom að leit og björgunaraðgerðum í Neskaupstað, sem þóttu takast vel. Eignatjón af völdum snjóflóð- anna var mikið; fiskvinnsluhúsið ásamt tækjasal stórskemmdist, síldarbræðslan gjöreyðilagðist svo og birgðageymsla. Stór olíutankur fór af grunni og sprakk og olli mengun frá honum erfiðleikum við björgunarstörfin. Uppbygging eftir þessa atburði tók langan tíma. Slíkt var þó hjóm eitt í samanburði við að 12 manns létust í snjóflóðinu og voru þeir tíu sem fundust jarð- sungnir við látlausa og virðulega athöfn í félagsheimilinu Egilsbúð 30. desember. „Hér verður ekki haldin löng ræða enda ekki ástæða til. Hér þarf ekki að sýna neinum fram á neitt, náttúruöflin eru búin að því,“ sagði sóknarpresturinn séra Páll Þórð- arson í viðtali sem birtist í Morg- unblaðinu á gamlársdag 1974 og bætti við: „Við horfum inn í lönd framtíðarinnar tárvotum augum. Við munum ekki gefast upp.“ Það gekk eftir því Norðfirðingar þóttu sýndu órofa samstöðu við þessa at- burði og við björgunar- og end- urreisnarstörf í kjölfarið. Snjóflóðin tóku 12 mannslíf  Fjörutíu ár í dag frá harmleiknum í Neskaupstað  Björgun sumra jarteiknum líkust  Eignartjón var mikið  „Við munum ekki gefast upp“ Ljósmynd/Hjörleifur Guttormsson Rústir Leifar síldarverksmiðjunnar. Óskemmdur lýsistankur t.h. Snæviþakið fjallið ofan kaupstaðarins í baksýn. Ljósmynd/Hjörleifur Guttormsson Eyðilegging Efsta hæð íbúðarhússins við Urðarteig barst niður á aðalgötu, en flóðið klippti sundur miðhæð hússins þar sem fjórir fórust. „Hér í Neskaup- stað breyttist allt með þessum at- burðum. Höggið var mikið. Margir hér í bænum unnu aldrei svo vel væri úr þessu áfalli. Þar er ég engin undantekn- ing, svo nærri mér hjó þetta,“ segir Jóna Sigríður Gunnarsdóttir í Neskaupstað sem í snjóflóðinu missti mágkonu sína, Elsu Snænýju Gísladóttur. „Elsa var líka besta vin- kona mín. Missirinn var því mikill, en mestur þó fyrir Gylfa bróður minn og Ástu Sigrúnu dóttur hans sem voru hér hjá okkur fyrstu dag- ana á eftir.“ Þau Jóna Sigríður og Þórarinn Öl- virsson eiginmaður hennar voru þegar þetta gerðist nýlega flutt í hús sitt við Víðimýri. Það, eins og önnur hús í Neskaupstað, stendur undir hárri fjallshlíð og er því strangt til tekið á hættusvæði snjóflóða, sem þó er helst innarlega í bænum þar sem flóðin miklu fyrir fjörutíu árum féllu. „Nei, ég varð svo sem ekki hrædd eftir snjóflóðin en hugsun og viðhorf breyttust. Ég var þegar þetta gerð- ist, í desember 1974, langt gengin með yngstu dóttur mína sem fæddist svo í janúar og á þessum lokavikum meðgöngunnar var ég kannski um- fram venju meyr og viðkvæm. Og þótt lífið hafi haldið áfram og fundið sér farveg að nýju settist eitthvað í undirmeðvitund mína og annarra með þessu. Snjóflóðin á Vestfjörðum rifjuðu margt upp og ýfðu sár sem gróa seint,“ segir Jóna Sigríður sem kveðst aldrei hafa treyst sér til að lesa frásagnir, til dæmis í bókum, af þessum hamförum. Missti mágkonu sína Sár gróa seint Jóna Sigríður Gunnarsdóttir Bæjarstjórn Neskauptaðar skipaði 1975 snjóflóðanefnd undir for- mennsku Hjörleifs Guttormssonar. Vann nefndin brautryðjendastarf við að kryfja atburðina og leggja á ráð um varnarvirki. Það var hins vegar fyrst eftir snjóflóðin á Vest- fjörðum röskum 20 árum síðar að hið opinbera kerfi tók að ráði við sér. Síðasta áratuginn eða svo hefur verið unnið að snjóflóðavörum í Nes- kaupstað, byggingu varnagarða og varnargrinda. Slík mannvirki hafa verið reist í Drangagili og nú síðast Tröllagili. Kostnaður við fram- kvæmdir þessar er vel á annan millj- arð kr. Á næstu misserum þarf að fara í frekari framkvæmdir í Neskaup- stað, að sögn Hafsteins Pálssonar sem hefur umsjón með málefnum Ofanflóðasjóðs sem vistaður er í um- hverfis- og auðlindaráðuneytinu. Koma þarf upp varnarmannvirkjum neðan við Nes- og Bakkagil og Urð- arbotna, sem eru í fjallshlíðinni upp af byggðinni í Neskaupstað. Að sögn Hafsteins er unnið að frumhönnun varnarmannvirkja á þessum stöðum, en frekari hönnun þeirra, mat á um- hverfisáhrifum og gerð útboðsgagna bíða. Þykir því raunhæft að fram- kvæmdir á nefndum stöðum geti kannski hafist innan tveggja til þriggja ára ef fjárheimildir leyfa. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Mannvirki Unnið að frágangi við snjóflóðagarða eystra í haust. Snjóflóðavörum komið upp Nesgil og Urðarbotnar á dagskrá Í dag, laugardag, kl. 17 verður ár- lega kyrrðarstund á vegum Norð- firðingafélagsins í Fella- og Hóla- kirkju í Breiðholti í Reykjavík þar sem þess verður minnst að 40 ár eru liðin frá snjóflóðunum í Nes- kaupstað. Séra Svavar Stefánsson stjórnar kyrrðarstundinni en jafn- framt verður tónlist flutt og Þor- leifur Ólafsson flytur minningar sínar. Kyrrðarstund eystra Í Neskaupstað verður í dag, kl 15, kyrrðarstund í Norðfjarð- arkirkju. Í framhaldinu er opið hús í Egilsbúð í boði Fjarðabyggð- ar. Þar mun Jón Björn Há- konarson forseti bæjarstjórnar flytja ávarp og eins verður þar hluti ljósmyndasýningarinnar Flóðið til sýnis. Þá munu gestir geta skoðað uppdrætti að minn- ingarreit sem opnaður verður al- menningi á næsta ári.Er eitnum komið upp til minningar um þá sem látið hafa lífið í snjóflóðum á Norðfirði. Minnast þeirra sem létust Fella- og Hólakirkja Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir. Mikið úrval, sjón er sögu ríkari! Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Dalvegi 10-14 • Kópavogi Margar gerðir af innihurðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.