Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Smám saman rætist það semmargir vonuðu og spáðu umEldborgarsal Hörpu, aðþetta framan af hálastaða
ofrausnarhús í miðju hruni myndi
um síðir laða að erlendar sinfóníu-
hljómsveitir er oftast höfðu afþakk-
að framkomu í Háskólabíói fyrrum.
Vegur þar vitaskuld þyngst glæsi-
legur hljómburður salarins, sem eft-
ir þriggja ára ómstillingarreynslu
skilar nú allri sinni dýrð.
Fyrst til að koma hingað varð
Gautaborgarsinfónían undir Gust-
avo Dudamel í september 2011.
Næst stjórnaði hér Simon Rattle
Fílharmóníusveit Berlínar í nóv-
ember 2012 og þar næst Peter
Oundjian kanadísku Tórontó-
sinfóníunni sl. ágúst. Nýjast birtist
svo Lundúnafílharmónían (alías
London Philharmonic Orchestra,
LPO) á fimmtudaginn var undir
stjórn hins góðkunna finnska
maestrós Osmos Vänskä.
Bilin á milli erlendra heimsókna
styttast sem sagt stöðugt, og rjúfa
þær ekki aðeins tónmenningarlega
einangrun landsins til muna, heldur
veita þær einnig hljómlistarfólki
okkar hollan samanburð og hvatn-
ingu til frekari dáða.
Þrátt fyrir þæfingsfærð var að-
sóknin að fyrri af tvennum tón-
leikum Lundúnafílharmóníunnar 18.
og 19.desember mjög góð eða um
90%. Skárra væri það nú annars,
miðað við örugga úrvalsstöðu LPO á
heimsvísu, fyrir utan jafnóbrigðulan
hlustendasegul og 5. píanókonsert
Beethovens er telst með því klass-
ískasta af öllu sem klassískt er.
Hvað þá norska píanójöfurinn Leif
Ove Andsnes.
Sitt hvorum megin við hið sígilt
vinsæla tónminnismerki Ludwigs
var rómað strengjaverk brezka sin-
fónistans Ralphs Vaughans Williams
frá öndverðri 20. öld og 1. sinfónía
lagrænasta snillings rússneskrar
rómantíkur, þótt hvorugt heyrist oft
af hérlendum hljómlistarpalli.
Fantasían um stef eftir höfuðtón-
skáld Breta á 16. öld, Thomas Tallis,
er íhugul tónsmíð; þrungin niði alda
þar sem tveir minni strengjahópar
skiptast á um athyglina við stórsveit
og vekja þáþrátt en angurvært sam-
band við blóði drifna fortíð sem
minnti sumpart á sögumótaðan sál-
arrannsóknarfund í nærri annarlegt
seiðandi túlkun Osmos og hljóm-
sveitar.
Langþekktasta verk kvöldsins,
Keisarakonsert Beethovens, var
flutt nokkuð útúrdúralaust en oftast
bráðfallega. Sat mest eftir óviðjafn-
anlega dreymandi miðþátturinn, er
vísar fram á ljóðlínur Schillers í Ní-
unni um ástríkan Föður handan
stjörnutjalds. Andsnes notfærði sér
hinn þegar eftirsótta ómkost Eld-
borgar til að læðast stundum niður
úr öllu valdi í styrk svo vakti hrísl-
andi dulúðarspennu, þótt hvorki
skorti kraft né snerpu í andríkum
samleik hans við hljómsveitina í út-
þáttum.
Hin fyrsta af sex sinfóníum Tsjæ-
kovskíjs, „Dagdraumar að vetri“ frá
1867 (fyrst prentuð 1874 eftir ítrek-
aða endurskoðun), var ekki aðeins
vel til fundin fyrir árstímann, heldur
opinberaði þessi frekar sjaldheyrða
tónsmíð líka ómælda lagræna og
orkestrunarlega hæfileika höfundar
þegar í upphafi ferils. LPO var þá
komin í sitt ýtrasta ess, og átti það
jafnt við íðilfagran tréblástur sem
voldugt pjátur og ýmist hvíslandi,
syngjandi eða hvassa stroktækni
strengja á víðast mögulega styrk-
rófi. Árangurinn var magnaður eftir
því og uppskar standandi klapp að
leikslokum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gæsahúð „Andsnes notfærði sér hinn þegar eftirsótta ómkost Eldborgar til að læðast stundum niður úr öllu valdi í
styrk svo vakti hríslandi dulúðarspennu,“ segir m.a. í rýni um leik Leifs Ove Andsnes undir stjórn Osmos Vänskä.
Angurvær dulúð og drama
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikarbbbbn
Vaughan Williams: Tallis fantasía fyrir
strengjasveit. Beethoven: Keisarakons-
ertinn. Tsjækovskíj: Sinfónía nr. 1 í g.
Leif Ove Andsnes píanó; Fílharmóníu-
hljómsveit Lundúnaborgar. Stjórnandi:
Osmo Vänskä. Fimmtudaginn 18. des-
ember kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
saman.
Útgangs-
punktur Yrsu er
svo sannarlega
umfjöllunar virði
og fléttur hennar
vekja ýmsar sið-
ferðilegar spurn-
ingar. Hins vegar
er útfærslan ekki
í takt við hugsunina og sagan líður
fyrir það.
Þrenning er höfundi einkar hug-
leikin í þessari bók og það má velta
því fyrir sér hvort Yrsa hafi heilaga
þrenningu í huga – föður, son og
heilagan anda. Samskipti fólks eru
einnig áberandi í frásögninni og sér-
staklega er bent á erfiðleika í því
sambandi. Þessar lýsingar þétta
söguna en samt er lögreglumað-
urinn Huldar óvenjulega mikil rola
miðað við stöðuna sem hann gegnir.
Hins vegar er mikið spunnið í sál-
fræðinginn Freyju. Persónusköp-
unin er reyndar svolítið í þessa veru.
Þeir sem vinna saman eða eru sam-
an eru eins og svart og hvítt.
Þættir sögunnar koma úr ýmsum
áttum og þótt þeir tengist á ákveð-
inn hátt passa þeir ekki alltaf saman.
Talnarunur, sem vissulega hafa mik-
ið að segja með framgang sögunnar í
huga, auka á flækjuna og á stundum
eru þær fráhrindandi. Töluverð
spenna færist í frásögnina undir lok-
in og lausn gátunnar kemur á óvart
en að sama skapi er hún ótrúverðug.
Sama má segja um ýmislegt í að-
dragandanum.
Yrsa Sigurðardóttir veltirfyrir sér áhugaverðu efniog áleitnum spurningum íglæpasögunni DNA. Sag-
an er spennandi á köflum og lýs-
ingar hrottalegar en dæmið gengur
ekki almennilega upp.
Titill bókarinnar segir sitt og síð-
an má láta hugann reika. Í formála
er greint frá ættleiðingu og svo hefst
frásögnin. Sagan gerist í Reykjavík
á næsta ári, 2015, og eftir að hrylli-
legt morð er framið gerast ýmsir
viðbjóðslegir atburðir. Þræðirnir
liggja víða og í lokin smella púslin
Óvænt en ótrú-
verðug endalok
Spennusaga
DNA bbbnn
Eftir Yrsu Sigurðardóttur.
Veröld, 2014. 380 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Takt „Útgangspunktur Yrsu er svo
sannarlega umfjöllunar virði og
fléttur hennar vekja ýmsar siðferði-
legar spurningar.
Fréttablaðið, J.S.
DV, H.A.
MBL, R.Ö.P.
Opera Now
Íslensku
tónlistarverðlaunin
2013
Tónlistarviðburður og
tónhöfundur ársins
Gríman 2014
Sýning ársins
Tónlist ársins
Söngvari ársins,
Elmar Gilbertsson
Óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson
og Friðrik Erlingsson er vinsælasta íslenska
óperan frá upphafi.
Tryggðu þér þriggja diska útgáfu af þessu
stórvirki íslenskrar tónlistarsögu.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
og Kór Íslensku óperunnar
ásamt Þóru Einarsdóttur, Viðari Gunnarssyni,
Elmari Gilbertssyni,
Jóhanni Smára Sævarssyni,
Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur,
Hönnu Dóru Sturludóttur, Bergþóri Pálssyni,
Ágústi Ólafssyni og Birni Ingiberg Jónssyni,
undir stjórn Petri Sakari, hljómsveitarstjóra.
Fæst í Hagkaup, Bónus, Eymundsson, Skífunni, Elko og 12Tónum
facebook.com/ragnheiduropera
AUKASÝNINGAR ÍSLENSKUÓPERUNNARÁ
RAGNHEIÐI 27. OG 28. DESEMBER
„Meistaraverk!“
Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeistari