Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 66
66 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er lífsnauðsyn að eiga trúnaðar- vin til þess að deila með gleði og sorg. Látið ekki smámótbyr draga úr ykkur kjarkinn, hann á að stæla og herða. 20. apríl - 20. maí  Naut Orðum þarf að fylgja einhver athöfn því annars missa þau marks. Mundu að einn góðan veðurdag kannt þú að vera í hans sporum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú munt að öllum líkindum lenda í deilum við maka þinn í dag. En þið byrjið að skilja hvort annað eftir að gneistar á milli ykkar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Farðu varlega og láttu hálffulla glasið njóta vafans. Erfiðleikarnir eru bara til að yfirstíga þá. Verið tilbúin að grípa tækifærin. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hittir einhvern sem hefur annan bakgrunn en þú og það leiðir þér fyrir sjónir að það er fleira sem sameinar okkur mann- fólkið en skilur okkur að. Slakaðu bara á og horfðu á úr fjarlægð. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það kostar sitt að koma sér áleiðis. Stuttar ferðir, erindi, verslun og viðskipti og spjall á förnum vegi eru meðal verkefna hennar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vinnuaðferðir þínar mæta nú skilningi manna og þú getur reiknað með því að ár- angurinn láti ekki á sér standa. Treystu á sjálfan þig því aðrir munu ekki leysa þessi mál fyrir þig. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að melta þá hluti sem nú valda þér hugarangri. Hafðu það í huga þegar þú ákveður framhaldið. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að læra að gera þér mat úr þeim tækifærum sem þér bjóðast. Farðu varlega í eyðsluseminni, þú ert ekki beinlínis óhlutdrægur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Fyrsta skref þitt í tilteknu verkefni er ekkert annað en það, það er byrjun. Gefðu öðrum líka nægan tíma til að melta málin. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er í góðu lagi að þú gerir eitthvað fyrir sjálfan þig nú þegar þú hefur skilað af þér umfangsmiklu verkefni. Gefðu þér því góðan tíma svo allt fari nú á besta veg. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft að íhuga vandlega með hverjum hætti þú ætlar að ná takmarki þínu. Hvaðeina sem viðkemur útgáfu, fjölmiðlum eða lögmálum mun batna til muna á þessum tíma. Síðasta vísnagáta var eftir Guð-mund Arnfinnsson með þeirri athugasemd að nú liði að jólum og þá væru ýmsar vættir á sveimi: Í tafli kóngi vörn hann veitir, vondum kominn er af tröllum, ferðaskóna fagur skreytir. Fata bætir hann úr göllum. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Leppur, Skreppur og Leiðindaskjóða. Leppur kónginn ver. Skór fær lopaleppinn góða. Leppur bótin er. Pétur Friðrik Þórðarson svarar þannig: Hreyfður „leppur“ kóngur flatur liggur. Þá Leppalúða kætist fúla geð. Með lepp í skónum heim að ganga hyggur hylur götin leppadruslum með. Og að lokum ráðning Guð- mundar sjálfs: Leppur kóngi liðstyrk veitir. Leppur kemur af vondum tröllum. Rósaleppur skóna skreytir. Skýlir leppur fatagöllum. Og eins og oft áður fylgir hann ráðningu sinni eftir, nú með brag- hendu: Leppur hann er hrekkjusvín, en hálfgerð rola, vandarhöggin víst má þola í vistinni hjá Grýlu og Bola. Síðan lætur hann gátu fylgja – „sem Laugavegskarlinum væri svo sem tiltrúandi að leysa“: Þetta er á þér og mér. Þetta erum við báðir. Á hrossi kennt við konung er. Kannski þú gátu ráðir? Jólin nálgast nú óðum og valda því að svör við gátunni verða að berast í dag eða á morgun til að ná laugardagsblaðinu 27. desember. Ármann Þorgrímsson hvetur til þess að allir komist í jólaskap: Heilög færist hátíð nær hætta skal að yrkja níð. Jafnvel gamla Framsókn fær frá mér ósk um betri tíð. Í Fréttablaði Iðunnar, sem nú er nýútkomið, er þessi staka eftir Sig- rúnu Haraldsdóttur: Hvergi má nú fífil finna, fölva slær á haga, sárlega ég sakna hinna sumarbjörtu daga. Hér kemur að lokum gömul jóla- vísa: Æðst allra eika eitt tréð ber skjól, Þar vildi ég leika þríhelg öll jól. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Leppur á fjöllum og leppur í skó Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HJARÐFLÓTTI!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... maður í svuntu! VOFF VOFF VOFF VOFF EINKASAMTAL AMLÓÐI, HÉR KEMUR FAÐIR ÞINN AFTUR ÚR SPÁNARFERÐINNI SINNI... EN ÞETTA ER HUGSANLEGA EKKI BESTI TÍMINN TIL ÞESS AÐ SPYRJA HVERNIG HONUM GEKK DÝRASÁLFRÆÐI OG RÁÐGJÖF HANN SITUR EKKI EINU SINNI Í KJÖLTU MINNI LENGUR JAFNAÐU ÞIG. Víkverja þykir gaman að keyra ívetrarfærð. Það er vegna þess að hann telur sig svo ósköp flinkan ökumann. Víkverji tekur fram að hann „telji“ sig vera það vegna þess að hann hefur ekki fest bílinn sinn í snjóþyngslunum. Bíllinn sem Vík- verji keyrir um á myndi flokkast sem bíltík, því hann er lítill, léttur og gamall. En Víkverji vill þó ekki nota þetta niðrandi orð um þennan þarfasta þjón í lífi sínu. x x x Það eru margir sem amast yfirsnjónum því þeir telja hann skerða ferðafrelsi sitt – sem hann vissulega gerir. Þessir sömu ein- staklingar eru oftar en ekki argir og pirraðir í akstrinum í umferð- inni, og eru í ofanálag að flýta sér að redda hinu og þessu rétt fyrir jólin. x x x Víkverji hafði hlustað á útvarpið,nánar tiltekið Rás 2, á föstu- daginn. Þar var verið að agnúast yfir aksturslagi fólks því það tæki ekki nægilegt tillit í umferðinni. Það lenti í árekstri og æki í burt. Hvurslags ómenni eru þar á ferð? x x x Eftir að hafa hlustað á þessar leið-inlegu fréttir þá dreif Víkverji sig af stað út í jólaumferðina. Vík- verji komst ferða sinna klakklaust enda með góða skapið að vopni. Honum þóttu flestir bílstjórar sýna tillitssemi. Hins vegar var erfitt að sjá gangandi vegfarendur reyna að komast ferða sinna í Skeifunni. Þar hafði ekki mikið verið rutt. Þeir gangandi þurftu að klofa yfir háa skafla til að komast leiðar sinnar á gangbrautum. Víkverji býst við að mokarar borgarinnar komi við í Skeifunni. x x x Vetrarríkið á landinu er ákaflegafallegt. Friður, kyrrð og ró færist yfir Víkverja í snjónum og fátt skemmtilegra en að vera utan- dyra og njóta töfranna. Það er nefnilega gaman að ganga í barn- dóm, kapplæða sig og leika sér úti í snjónum líkt og lítið barn. Og munið að gefa litlu smáfugl- unum! víkverji@mbl.is Víkverji Hjá Guði er hjálpræði mitt og veg- semd, minn örugga klett og athvarf mitt hef ég í Guði. (Sálmarnir 62:8) AbsorBurn® Kælir brunasár hratt og lengi Gott að eiga um jól og áramót: Fæst í öllum apótekum. Umboðsaðili: Celsus ehf. �Minnkar sársauka strax � Kaldur gelsvampur & fljótandi gel � Helst vel á, dettur ekki af � Lækkar hita í sári um 6-7°C � Tea Tree & Lavender - sótthreinsar, róar & deyfir. Fyrsta hjálp á 1. og 2. stigs brunasár. Gott að eiga um jól og áramót við eldamennsku og meðferð flugelda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.