Morgunblaðið - 20.12.2014, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Rétt fjörutíu ár eru í dag, 20. des-
ember, liðin frá snjóflóðunum sem
féllu niður yfir byggðina í Neskaup-
stað þar sem tólf manns fórust.
Dagana á undan hafði illviðri af
norðnorðaustri með miklu fann-
fergi gengið yfir landið. Hinn 19.
desember féll snjóflóð á Siglufirði,
þar sem íbúðarhús gereyðilagðist
en engan sakaði, og í Seyðisfirði
rústaði snjóflóð gripahús.
Tuttugu mínútur
milli flóðanna tveggja
Daginn eftir féll fjöldi snjóflóða
úr fjallinu ofan Neskaupstaðar, þar
af tvö langt út á fjörðinn. Þetta
gerðist milli kl. 13.30 og 14.00 og
urðu bæði þessi flóð mannskæð.
Hið fyrra, um 400 metra breitt,
kom fá efstu fjallsbrún vestan
íbúðabyggðar og skall á fisk-
vinnsluhúsi SÚN, stórri síld-
arbræðslu SVN og birgðageymslu
vestan við hana. Þetta flóð tók
fimm mannslíf og var mikið lán í
óláni að ekki var unnið í fiskvinnslu
þennan föstudag, en dagana á und-
an var á annað hundrað manns þar
að störfum.
Ytra flóðið féll um 20 mínútum
síðar ofan frá Miðstrandarskarði og
reyndist um 150 metra breitt við
ströndina. Fórust í því alls sjö
manns. Það hreif með sér bílaverk-
stæði, steypustöð og íbúðarhús
innst við Urðarteig. Í íbúðahúsinu
fórust fjórir en smábarn bjargaðist.
Þá fórst maður sem stóð við jarð-
ýtu sína og var að hella á hana olíu.
Bæði vinnuvélin og maðurinn bár-
ust út í sjó og fundust aldrei, né
heldur lík manns sem ók rútu eftir
aðalgötunni þegar flóðið geystist
niður.
Fannst eftir 20 tíma leit
Hvernig sumir björguðust úr
flóðinu eða voru staddir á réttum
stað á réttum tíma þótti jarteiknum
líkast. Einstætt þótti hvernig nítján
ára piltur, Árni Þorsteinsson,
bjargaðist. Hann grófst undir snjó
og braki lokaður af niðri í þró neð-
an frystihússins og fannst ekki fyrr
en eftir 20 tíma leit. Hann var þá
lerkaður, en vel á sig kominn eftir
atvikum. Fjöldi björgunarmanna,
einnig úr nágrannabyggðum, kom
að leit og björgunaraðgerðum í
Neskaupstað, sem þóttu takast vel.
Eignatjón af völdum snjóflóð-
anna var mikið; fiskvinnsluhúsið
ásamt tækjasal stórskemmdist,
síldarbræðslan gjöreyðilagðist svo
og birgðageymsla. Stór olíutankur
fór af grunni og sprakk og olli
mengun frá honum erfiðleikum við
björgunarstörfin. Uppbygging eftir
þessa atburði tók langan tíma. Slíkt
var þó hjóm eitt í samanburði við
að 12 manns létust í snjóflóðinu og
voru þeir tíu sem fundust jarð-
sungnir við látlausa og virðulega
athöfn í félagsheimilinu Egilsbúð
30. desember.
„Hér verður ekki haldin löng
ræða enda ekki ástæða til. Hér þarf
ekki að sýna neinum fram á neitt,
náttúruöflin eru búin að því,“ sagði
sóknarpresturinn séra Páll Þórð-
arson í viðtali sem birtist í Morg-
unblaðinu á gamlársdag 1974 og
bætti við: „Við horfum inn í lönd
framtíðarinnar tárvotum augum.
Við munum ekki gefast upp.“ Það
gekk eftir því Norðfirðingar þóttu
sýndu órofa samstöðu við þessa at-
burði og við björgunar- og end-
urreisnarstörf í kjölfarið.
Snjóflóðin tóku 12 mannslíf
Fjörutíu ár í dag frá harmleiknum í Neskaupstað Björgun sumra
jarteiknum líkust Eignartjón var mikið „Við munum ekki gefast upp“
Ljósmynd/Hjörleifur Guttormsson
Rústir Leifar síldarverksmiðjunnar. Óskemmdur lýsistankur t.h. Snæviþakið fjallið ofan kaupstaðarins í baksýn.
Ljósmynd/Hjörleifur Guttormsson
Eyðilegging Efsta hæð íbúðarhússins við Urðarteig barst niður á aðalgötu,
en flóðið klippti sundur miðhæð hússins þar sem fjórir fórust.
„Hér í Neskaup-
stað breyttist allt
með þessum at-
burðum. Höggið
var mikið. Margir
hér í bænum
unnu aldrei svo
vel væri úr þessu
áfalli. Þar er ég
engin undantekn-
ing, svo nærri
mér hjó þetta,“
segir Jóna Sigríður Gunnarsdóttir í
Neskaupstað sem í snjóflóðinu
missti mágkonu sína, Elsu Snænýju
Gísladóttur. „Elsa var líka besta vin-
kona mín. Missirinn var því mikill,
en mestur þó fyrir Gylfa bróður
minn og Ástu Sigrúnu dóttur hans
sem voru hér hjá okkur fyrstu dag-
ana á eftir.“
Þau Jóna Sigríður og Þórarinn Öl-
virsson eiginmaður hennar voru
þegar þetta gerðist nýlega flutt í hús
sitt við Víðimýri. Það, eins og önnur
hús í Neskaupstað, stendur undir
hárri fjallshlíð og er því strangt til
tekið á hættusvæði snjóflóða, sem þó
er helst innarlega í bænum þar sem
flóðin miklu fyrir fjörutíu árum féllu.
„Nei, ég varð svo sem ekki hrædd
eftir snjóflóðin en hugsun og viðhorf
breyttust. Ég var þegar þetta gerð-
ist, í desember 1974, langt gengin
með yngstu dóttur mína sem fæddist
svo í janúar og á þessum lokavikum
meðgöngunnar var ég kannski um-
fram venju meyr og viðkvæm. Og
þótt lífið hafi haldið áfram og fundið
sér farveg að nýju settist eitthvað í
undirmeðvitund mína og annarra
með þessu. Snjóflóðin á Vestfjörðum
rifjuðu margt upp og ýfðu sár sem
gróa seint,“ segir Jóna Sigríður sem
kveðst aldrei hafa treyst sér til að
lesa frásagnir, til dæmis í bókum, af
þessum hamförum.
Missti mágkonu sína
Sár gróa seint
Jóna Sigríður
Gunnarsdóttir
Bæjarstjórn Neskauptaðar skipaði
1975 snjóflóðanefnd undir for-
mennsku Hjörleifs Guttormssonar.
Vann nefndin brautryðjendastarf
við að kryfja atburðina og leggja á
ráð um varnarvirki. Það var hins
vegar fyrst eftir snjóflóðin á Vest-
fjörðum röskum 20 árum síðar að hið
opinbera kerfi tók að ráði við sér.
Síðasta áratuginn eða svo hefur
verið unnið að snjóflóðavörum í Nes-
kaupstað, byggingu varnagarða og
varnargrinda. Slík mannvirki hafa
verið reist í Drangagili og nú síðast
Tröllagili. Kostnaður við fram-
kvæmdir þessar er vel á annan millj-
arð kr.
Á næstu misserum þarf að fara í
frekari framkvæmdir í Neskaup-
stað, að sögn Hafsteins Pálssonar
sem hefur umsjón með málefnum
Ofanflóðasjóðs sem vistaður er í um-
hverfis- og auðlindaráðuneytinu.
Koma þarf upp varnarmannvirkjum
neðan við Nes- og Bakkagil og Urð-
arbotna, sem eru í fjallshlíðinni upp
af byggðinni í Neskaupstað. Að sögn
Hafsteins er unnið að frumhönnun
varnarmannvirkja á þessum stöðum,
en frekari hönnun þeirra, mat á um-
hverfisáhrifum og gerð útboðsgagna
bíða. Þykir því raunhæft að fram-
kvæmdir á nefndum stöðum geti
kannski hafist innan tveggja til
þriggja ára ef fjárheimildir leyfa.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Mannvirki Unnið að frágangi við
snjóflóðagarða eystra í haust.
Snjóflóðavörum komið upp
Nesgil og
Urðarbotnar
á dagskrá
Í dag, laugardag, kl. 17 verður ár-
lega kyrrðarstund á vegum Norð-
firðingafélagsins í Fella- og Hóla-
kirkju í Breiðholti í Reykjavík þar
sem þess verður minnst að 40 ár
eru liðin frá snjóflóðunum í Nes-
kaupstað. Séra Svavar Stefánsson
stjórnar kyrrðarstundinni en jafn-
framt verður tónlist flutt og Þor-
leifur Ólafsson flytur minningar
sínar.
Kyrrðarstund eystra
Í Neskaupstað verður í dag, kl
15, kyrrðarstund í Norðfjarð-
arkirkju. Í framhaldinu er opið
hús í Egilsbúð í boði Fjarðabyggð-
ar. Þar mun Jón Björn Há-
konarson forseti bæjarstjórnar
flytja ávarp og eins verður þar
hluti ljósmyndasýningarinnar
Flóðið til sýnis. Þá munu gestir
geta skoðað uppdrætti að minn-
ingarreit sem opnaður verður al-
menningi á næsta ári.Er eitnum
komið upp til minningar um þá
sem látið hafa lífið í snjóflóðum á
Norðfirði.
Minnast
þeirra sem
létust
Fella- og Hólakirkja
Hjá Parka færðu gullfallegar innihurðir.
Mikið úrval, sjón er sögu ríkari!
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Dalvegi 10-14 • Kópavogi
Margar gerðir
af innihurðum