Morgunblaðið - 20.12.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Strætó bs. hefur orðið að fella niður
178 ferðir á landsbyggðinni það sem
af er desembermánuði, fyrst og
fremst vegna veðurs og ófærðar.
Flestar hafa ferðirnar verið áætl-
aðar á Vestur- og Norðurland, eða
80, en á Suðurlandi hafa 48 ferðir
verið felldar niður og 50 á Norð-
austurlandi. Strætó rekur þessar
leiðir fyrir viðkomandi landshluta-
samtök, sem verða fyrir tekjutapi af
þessum sökum, svo ekki sé minnst á
þá röskun sem þetta hefur haft í för
með sér fyrir farþegana.
Sú ferð sem oftast hefur þurft að
fella niður er á leið nr. 57, á milli
Reykjavíkur og Akureyrar, eða 66
sinnum frá mánaðamótum til dags-
ins í gær. Í ljósi ófærðar á norð-
urleiðinni kemur það ekki á óvart
en sá strætó fer um vindasama
staði og erfiða fjallvegi, eins og
Kjalarnes, fyrir Hafnarfjall, yfir
Holtavörðuheiði, Þverárfjall og
Öxnadalsheiði.
Næst þar á eftir kemur ferð á
leið 51, á milli Reykjavíkur og
Hafnar í Hornafirði, sem 37 sinnum
hefur verið felld niður, síðast í gær
frá Höfn vegna slæmrar veðurspár.
Vagn 51 frá Reykjavík fór aðeins að
Vík í Mýrdal og sneri þar við.
Ferðir leiða 78 og 79 hafa hvor
um sig fallið niður 22 sinnum, en
vagnar þeirra ganga annars vegar á
milli Akureyrar og Siglufjarðar og
hins vegar á milli Akureyrar og
Þórshafnar.
Aðrar ferðir hafa gengið greiðar
fyrir sig, eins og sjá má á meðfylgj-
andi töflu. Til viðbótar má nefna að
ferðir um Suðurland, leiðir nr. 72-
75, hafa einu sinni fallið niður, á
hvorri leið um sig.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
upplýsingafulltrúi Strætó, segir að
þegar ákveðið er að fella niður ferð-
ir sé fyrst og fremst stuðst við var-
úðarviðmið Samgöngustofu og
Vegagerðarinnar en ófærðin hefur
einnig stöðvað vagnana.
178 ferðir felldar niður hjá Strætó
Niðurfelldar ferðir
Strætó í desember
Leið Ferðir
Leið 57 66
Leið 51 37
Leið 78 22
Leið 79 22
Leið 52 7
Leið 59 7
Leið 56 6
Leið 58 5
Leið 82 2
Tíðarfarið á aðventunni hefur raskað ferðum Strætó á landsbyggðinni Oftast verið fellt niður á
milli Reykjavíkur og Akureyrar eða 66 sinnum Leiðin milli Reykjavíkur og Hafnar einnig verið erfið
Morgunblaðið/Golli
Strætó Farþegar á leið upp í vagn
57 í Mjódd, á leiðinni norður.
Vetrarlandið hefur fært þeim
gleði sem hafa unun af því að
leika sér í snjónum enda fátt
betra en að gleyma stað og stund
í mjúkri kuldasænginni. Svo get-
ur þó farið að eitthvað minnki
fannfergið á stórum hluta lands-
ins í dag því Veðurstofa Íslands
spáir hlýnandi veðri og hvassri
suðaustanátt. Í fyrstu með snjó-
komu en þegar líða tekur á dag-
inn má búast við slyddu eða rign-
ingu.
Þá er því spáð að hiti á landinu
verði 0-7 gráður síðdegis. Hægt
og þurrt verður á Norður-, og
Austurlandi. Veður snýst í mun
hægari suðvestanátt í kvöld með
skúrum eða slydduéljum.
Ökumenn hafi varann á
Í umhleypingum er betra að
hafa varann á og í athugasemd
veðurfræðings kemur fram að
varhugaverðar aðstæður geti
myndast á vegum úti sunnan- og
vestanlands frá hádegi og fram
eftir degi. vidar@mbl.is Morgunblaðið/Golli
Blautt og
hvasst á
landinu
Veðurstofan spáir hvassri suðaustanátt í dag og slyddu eða rigningu síðdegis
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Okkar mat er það að mikið beri í
milli,“ sagði Þorbjörn Jónsson, for-
maður Læknafélags Íslands, eftir
fund samninganefnda lækna og rík-
isins hjá ríkissáttasemjara í gær.
Fundurinn stóð í um fjórar klukku-
stundir og hefur annar fundur verið
boðaður klukkan 11 í dag. Læknar
lögðu fram nýjan flöt á tillögum á
þriðjudag og hafa fundir undanfarna
daga farið í að ræða það útspil. „Nú
er beðið eftir því hvort samninga-
nefndin fái víðtækara umboð. Þeir
hafa ekki komið nægilega til móts við
okkur þannig að það sé neinn mögu-
leiki á því að skapa samningsgrund-
völl,“ sagði Þorbjörn.
Í gær sendi fjármálaráðuneytið frá
sér tölur sem sýna að meðallaun
lækna eru í heild rúmar 1.130 þúsund
krónur á mánuði. Á Face-
book-síðunni Raddir lækna segir að
„til þess að ná þessum tölum fyrir
kandídata og almenna lækna þurfa
þeir að vinna 100% starf og síðan 85-
97 vaktatíma í mánuði.“
Þorbjörn tekur undir þetta. „Það
er ekki eins og þetta sé hefðbundin
8-4 vinna. Algengast er að sérfræð-
ingar séu á gæsluvakt, þar sem þú ert
á jafnaðarkaupi og svo ertu ræstur
út, ef svo ber undir,“ segir Þorbjörn.
Að sögn hans þýðir það að læknir á
gæsluvakt fær sömu greiðslu hvort
sem hann er í biðstöðu eða er kall-
aður til vinnu á sjúkrahúsinu. Segir
Þorbjörn að þegar laun fyrir gæslu-
vaktir og yfirvinnu séu tekin saman
sé um að ræða svipaða upphæð og
fyrir hefðbundna dagvinnu. Hann
segir að algengustu grunnlaun sér-
fræðilækna séu 596 þúsund krónur á
mánuði. „Í okkar huga hefur þetta
snúist um hlutfall launagreiðslna ut-
an grunnvinnunnar, sem er allt of
hátt,“ segir Þorbjörn. Hann segir
einnig ljóst að nauðsynlegt sé að
bæta við fleiri læknum svo dreifa
megi álaginu betur. „Ef það er allt of
mikill munur á launakjörum hérlend-
is og erlendis þá fáum við ekki fólk
hingað heim. Stjórnmálamenn og yf-
irvöld þurfa að horfast í augu við
þetta,“ segir Þorbjörn.
Ekki aukagreiðsla fyrir útköll
„Fyrir sérfræðinga og yfirlækna
er mjög mismunandi hvað þeir þurfa
marga klukkutíma á vakt, enda mis-
munandi hvort þeir eru með helg-
unarálag, menntunarálag o.s.frv.
Lægstu vaktagreiðslur til sérfræð-
inga eru 752 krónur á klukkustund og
hæstu 6.076 krónur á klukkustund.
Til dæmis má nefna að á gæsluvakt
þar sem reiknað er með að þú sért í
útkalli 50% af tímanum eru greiddar
3.645 krónur á klukkustund og ekki
aukalega fyrir útköll, hvert sem til-
efnið er,“ segir í færslu á Face-
booksíðu Radda lækna.
Mikið ber í milli í læknadeilu
Heildarlaun lækna eru rúmar 1.130 þúsund krónur Segja almenna lækna og
kandídata þurfa 85-97 tíma fyrir utan grunnvinnu til að vinna sér inn slík laun
Morgunblaðið/Ásdís
Aðgerð Læknar telja of hátt vinnu-
hlutfall vera utan dagvinnutíma.
Lögregla og sjúkralið voru köll-
uð út vegna vinnuslyss sem varð
í Þorlákshöfn á sjötta tímanum í
gær. Þar festist maður í fisk-
vinnsluvél og urðu slökkviliðs-
menn að beita klippum til að losa
hann úr vélinni. Maðurinn var
fluttur í sjúkrabíl til Reykjavík-
ur.
Nánari upplýsingar um líðan
mannsins liggja ekki fyrir að svo
stöddu, en hann var með meðvit-
und þegar hann var fluttur á
brott. Maðurinn var að þrífa fisk-
vinnsluvél þegar drifhjól vél-
arinnar krækti í vinnugalla hans
með þeim afleiðingum að hann
dróst inn í vélina.
Lögreglan segir að það hafi
orðið manninum til happs að
vinnufélagar hans heyrðu neyð-
aróp hans og náðu að slökkva á
vélinni.
Dróst inn í
fiskvinnslu-
vél og festist