Morgunblaðið - 20.12.2014, Síða 4

Morgunblaðið - 20.12.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Samningar náðust ekki um stjórnun veiða og skiptingu afla úr stofnum norsk-íslenskrar síldar og kolmunna á fundum strandríkja í London í vik- unni. Hámarksafli var hins vegar samþykktur í báðum tegundum og fyrir 1. maí eiga að liggja fyrir til- kynningar þjóðanna um hvað hver þeirra hyggst veiða á næsta ári. Fundir um stjórnun veiða á síld og kolmunna árið 2016 hefjast í janúar, en mörg ár tók að ná þeim samning- um, sem í gildi voru fram til þessa. Áhyggjuefni Ákveðið var á fundinum að miða við 1.260 þúsund tonna hámarksafla í kolmunna. Evrópusambandið hefur sett fram kröfur um mun stærri hlut en sambandið hefur fengið síðustu ár og sömuleiðis vilja Færeyingar fá aukna hlutdeild. Meðan kolmunnastofninn virðist sterkur gegnir alls ekki sama máli um norsk-íslensku síldina því stofn- inn hefur verið á niðurleið síðustu ár. Norðmenn og Færeyingar hafa farið fram á verulega auknar heimildir um- fram það sem var í eldri samningi eða sem nemur öllum afla Íslendinga og Rússa á þessu ári. Kristján Freyr Helgason, sem fór fyrir íslensku samninganefndinni í London, segir að vonir standi til að strandríkin virði á næsta ári skipt- inguna sem verið hefur í gildi. Það sé þó visst áhyggjuefni að samningar séu ekki lengur í gildi og ekki þurfi nema einn aðili að bregða út af til að aðrir fylgi á eftir, veiðar fari úr bönd- unum og afli umfram það hámark sem ákveðið var á fundinum. Stíf fundahöld Kristján segir að búast megi við stífum fundahöldum á næsta ári um veiðar á þessum tegundum. Hann tel- ur að gagnkvæmur vilji sé fyrir því að ná niðurstöðu í málinu. Því verður fljótlega á nýju ári sest að samninga- borði, en ekki beðið nýrrar veiðiráð- gjafar sem kemur í október ár hvert. Ekki samið um stjórnun veiða  Ákváðu hámark í kolmunna og síld  Ekki samið um skiptingu milli þjóða Kolmunni Skipting á veiðum næsta árs virði aðilar ákvörðun um heildarafla og vinni samkvæmt samningi sem hefur verið í gildi. Kvóti Ísland ESB Færeyjar Noregur Samtals Rússland/ Grænland Samtals 204.458,69 353.731,25 302.976,58 298.569,60 1.159.718,11 100.281,89 1.260.000 Skíðaunnendur í borg og bæjum nærri Bláfjöllum geta tekið gleði sína því að í gær var skíðasvæðið opnað í fyrsta skipti í vetur. Færið ku vera með besta móti, ný- fallinn púðursnjór. Þeir Auðunn Loki og Aron Kristinn biðu ekki boðanna og voru mættir fyrstir á svæðið áður en það hafði formlega verið opnað. Stólalyfturnar voru svo settar í gang klukkan 14 og umsvifalaust tók skíða- fólk að streyma í Bláfjöll. Morgunblaðið/Hallur Már Fyrsti skíðadagur vetrarins í Bláfjöllum Stólalyfturnar voru settar í gang eftir hádegi í gær Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verðbólga á tólf mánaða grundvelli, samkvæmt skilgreiningu Seðlabank- ans, mælist 0,8% í desember. Það er langt undir spám banka og Seðla- bankans, eins og sýnt er hér í töflu. Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, segir margt skýra litla verðbólgu á árinu. „Þær eru nokkrar en þó fyrst og fremst sú að innflutt verðbólga hefur verið talsvert minni en reiknað var með. Hún hefur í raun knúið verð- bólgu niður frekar en hitt að undan- förnu. Þar koma við sögu hrávöru- verðslækkanir og þá fyrst og fremst lækkandi olíuverð. Síðan hefur gengi krónu verið mjög stöðugt og aðeins sterkara en við gerðum ráð fyrir í verðbólguspá okkar 15. janúar sl,“ segir Ingólfur en bankinn spáir um 1% verðbólgu fram á mitt ár 2015. Bankinn telur að innlendur kostn- aður muni vaxa eftir því sem slakinn hverfur úr hagkerfinu, þ.m.t. laun. Stefán Ólafsson, prófessor í fé- lagsfræði við Háskóla Íslands, telur að nú séu kjöraðstæður til að örva eftirspurn með því að hækka launin. Reynslan hafi sýnt að „verðbólgu- áhrif launahækkana á þessu ári hafi verið minna en óveruleg“. Rétti tíminn til að hækka launin „Ég tel að þetta séu kjöraðstæður til að láta á það reyna núna að auka eftirspurnina í hagkerfinu með kaupmáttaraukningu. Við sjáum reynsluna af síðustu kjarasamning- um. Þá var samið mjög hóflega um 2,8% hækkun nafnlauna. Við endum árið með að minnsta kosti helmingi meiri kauphækkun á almennum vinnumarkaði, tæplega 6%. Samt fer verðbólgan niður,“ segir Stefán og vísar til þess að laun á almennum markaði hækkuðu um 2,8% 1. jan. sl. „Við stöndum frammi fyrir hætt- unni á verðhjöðnun og samdrætti. Þannig að þetta hljóta að vera kjör- aðstæður til þess að sækja fram með alvörukaupmáttaraukningu. Það er auðvitað svo að kaupmátturinn fór óvenjumikið niður með hruninu. Það hefur alltof lítið endurunnist af því, þótt það sé eitthvað. Þetta er þá ef til vill það sem við þurfum helst á að halda núna,“ segir Stefán. „Þjóðarframleiðsla á mann hefur aukist talsvert meira en einkaneysl- an frá því uppsveiflan hófst árið 2011. Ef mið er tekið af því að kaup- máttur megi aukast jafn mikið og framleiðnin, þ.e. þjóðarframleiðsla á mann, á hverju ári, sem er algengt viðmið í grannríkjunum, þá mætti segja að við ættum að ráða vel við 4-6% kaupmáttaraukningu á næsta ári, án þess að verðbólga verði að vandamáli. Þegar framleiðni hefur aukist meira en laun og einkaneysla á þennan hátt þá eigum við inni- stæðu, sem taka mætti út núna. Það yrði gott bæði fyrir atvinnulífið og heimilin,“ segir Stefán. Verðbólgan er langt undir spám  Bankarnir og Seðlabanki Íslands spáðu í ársbyrjun að verðbólga yrði 2,6-3,9% í ár  Hún er nú 0,8%  Prófessor í félagsfræði telur að hægt sé hækka laun myndarlega án þess að verðbólga farið af stað Verðbólguspár bankanna Spár um ársverðbólgu í % *Seðlabankinn leggur fram verðbólguspámeð óvissubilum.Hér er valin almenn spá SÍ. **Bankinn lagði ekki fram spá fyrir 2016 í byrjun þessa árs. Hagspá Arion banka 19. febrúar 2014 Verðbólguspá Greiningar Íslandsbanka 15. janúar 2014** Þjóðhagur Landsbankans, Hagspá 2013-2016 í nóvember 2013 (meðaltal árs er haft innan sviga) Verðbólguspá Seðlabankans í Peningamálum í febrúar 2014* 2013 3,9 4,2 3,8 (3,5) 3,8 3,1 3,1 3,9 (3,4) 2,6 2014 3,6 3,3 3,8 (3,6) 3,5 2015 3,7 3,6 3 2016 Reykjavíkurborg hefur ákveðið að gera eins árs samning við Ný- listasafnið um leigu á húsnæði á Bankastræti 0 þar sem áður voru snyrtingar kvenna og karla. Óskuðu bæði Samband íslenskra myndlist- armanna og Nýlistasafnið eftir að fá að nýta rýmið til sýninga. Snyrtingarnar voru lagðar niður árið 2007 og rýmin, sem eru neð- anjarðar, voru friðuð og hafa því ver- ið ónotuð síðan. Um er að ræða til- raun til að koma lífi í ónotaða rýmið. Þorgerður Ólafsdóttir, safnstjóri Ný- listasafnsins, segist hlakka til að tak- ast á við þetta verkefni og ætlar safn- ið að bjóða upp á fjölbreyttar sýningar, viðburði og gjörninga í rýminu. „Þetta er frábært fyrir menningarlífið í Reykjavík enda eru innréttingar rýmisins afar fallegar. Það hafa margir verið spenntir fyrir því að nota rýmið þannig það verður skemmtilegt að sjá þetta verða að veruleika,“ segir Þorgerður. Ljóst er að mikla vinnu þarf til þess að koma rýminu í gott ástand en safnið ætlar að halda í upprunalegar innréttingar rýmisins og verða því salernisbásar hluti af þessu tímabundna verkefni safnsins. Nýlistasafnið flutti í nýtt húsnæði í Breiðholti fyrr á árinu og hefur auðg- að menningarlífið þar með sýn- ingahaldi, fræðslu og rannsóknum. Í umsögn menningar- og ferða- málasviðs Reykjavíkurborgar er Ný- listasafnið, sem er rekið af starfandi myndlistamönnum, sagt einstakt í menningarflóru borgarinnar. Er sýn- ingarýmið talið líklegt til þess að vekja nýjar hugmyndir og fyr- irkomulagið styðja við menningarlíf í hjarta Reykjavíkur. benedikta@mbl.is Salerni breytt í sýningarými  Nýló tekur við Bankastæti núllKaupum bíla Hærra uppítökuverð Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum. Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is og við sendum þér staðgreiðslutilboð þér að kostnaðarlausu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.