Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 10
Mikilvægasta stund
Barn að aldri var fjölmiðlakonan Marta María
Jónasdóttir farin að elda mat fyrir fjölskylduna. Hún
hefur alla tíð notið þess að elda og veit fátt betra að
strembnum vinnudegi loknum en að elda eitthvað
dásamlegt fyrir strákana sína. Í nýrri matreiðslubók
hennar sem nefnist einfaldlega MMM er höfuðáhersla
lögð á heilsusamlegar sælkerauppskriftir sem ekki
tekur langan tíma að undirbúa og elda.
og helst seinni partinn sé engin
dagskrá heldur séu bara allir
heima. Ég lifi annasömu lífi og
finnst góð leið að elda til þess að
vinda ofan af mér eftir daginn.
Mér finnst það róandi og þegar
maður er mikil fjölskyldumann-
eskja í hjartanu er þessi stund
mjög mikilvæg og það verður að
vera góð stemning í kringum mat
því allt í kring á bara að vera nær-
andi og gott.“ Marta María leggur
áherslu á að eldamennskan taki
ekki of langan tíma en sé samt
vönduð og á því byggist bókin.
„Nútímafólk er mjög upptekið
þannig að matreiðslan þarf að taka
stuttan tíma en ég legg samt
áherslu á að allt sé gert frá grunni
og ekki verið að kaupa tilbúnar
sósur og svoleiðis. Um leið og
maður fer að lesa utan á umbúðir
Nýtt Á annað hundrað uppskriftir
er að finna í bókinni MMM.
Malín Brand
malin@mbl.is
Mörtu Maríu þekkjamargir úr fjölmiðlumen hún stýrir Smart-landi á vefnum mbl.is
þar sem fjallað er um mat, tísku
og mannlíf. Á Smartlandi Mörtu
Maríu er að finna eitt stærsta upp-
skriftasafn landsins en á vefnum
eru yfir 3.000 uppskriftir og auð-
velt að nota hann sem uppflettirit.
Þær uppskriftir koma úr öllum átt-
um. Sumar hefur hún geymt vand-
lega og birtist úrval þeirra nú í ný-
útkominni Matreiðslubók Mörtu
Maríu, MMM. Ljósmyndirnar í
bókinni tók æskuvinkona Mörtu
Maríu, Guðný Hilmarsdóttir, og
var eitt og annað rætt og rifjað
upp á meðan þær unnu að bókinni.
„Guðný rifjaði til dæmis upp að
þegar við vorum níu ára gamlar
gekk hún í hús með mömmu sinni
fyrir jólin og seldi jólakort en ég
var sveitt í eldhúsinu að elda spa-
gettí handa sex manna fjölskyldu.
Henni fannst dálítið skrýtið að ég
væri ein í eldhúsinu að græja hlut-
ina á meðan hún gat ekki gengið
ein í hús og mamma hennar þurfti
að fara með henni,“ segir Marta
María og brosir að minningunni.
Áhuginn á matreiðslu kviknaði
greinilega snemma og hefur vaxið
jafnt og þétt með árunum.
Alltaf kvöldmatur kl. 19
Marta María tilheyrir mikilli
matarfjölskyldu, ef svo má segja.
Öllum þykir gott að borða og mat-
ur skipar því veigamikið hlutverk.
Á jólum var mikil veisla og einn
eftirréttur var ekki látinn nægja
heldur voru á borðum fjölmargar
tegundir. Það var líka mikið lagt
upp úr hversdagslegum sam-
verustundum fjölskyldunnar um
kvöldmatarleytið. „Það vara alltaf
kvöldmatur klukkan sjö. Það var
alltaf eldað og maður vandist því
að þetta væri normið,“ segir hún
og hefur sjálf haldið í þann góða
sið að elda kvöldmat heima og
setjast niður með sonum sínum og
borða. „Mér finnst þetta mikilvæg-
asta stund dagsins. Ég passa mjög
vel upp á að yfir matmálstímann
Spari Ekta súkkulaðikaka er bökuð fyrir sérstök tilefni. Uppskriftin fylgir
hér til hliðar ásamt uppskrift að karamellubúðingi í kaffibollum.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
ENAMICRO 9 ONE TOUCH
Fékk hæstu einkun hjá þýsku neytendasamtökunum en 14 vélar
voru prófaðar. Hægt að velja um kaffi, espresso, latte macchiato,
cappuccino eða heitt vatn í te með því að þrýsta á einn hnapp.
Tilboð: ENAMicro 9 kr. 129.900
Tilboð: ENAMicro 1 kr. 95.920
Inni á bókasöfnum má gjarnan finna
ró og þangað er gott að fara með
börnin smáu. Þau hafa gaman af því
að láta lesa fyrir sig, en í dag kl. 14
verður boðið upp á notalega sögu-
stund fyrir yngstu börnin og fjöl-
skyldur þeirra í aðalsafni Borgar-
bókasafns Reykjavíkur í Tryggvagötu.
Katrín Ósk Jóhannsdóttir rithöfundur
ætlar að lesa úr bókum sínum Karó-
lína og eggið og Karólína og týndu
skórnir. Boðið upp á heitt kakó og
smákökur. Enginn aðgangseyrir er að
stundinni góðu og allir velkomnir.
Vefsíðan www.borgarbokasafn.is
Könguló Karólína er skemmtileg könguló sem lærir að telja og þekkja litina.
Notaleg stund á bókasafninu
Boðið er til skáldaveislu á veitinga-
staðnum Einari Ben við Ingólfstorg í dag
kl 16. Lesið verður úr fimm nýjum bók-
um og Bjartmar Guðlaugsson tekur lag-
ið. Einar Kárason les úr Skálmöld, þar
sem glæsimennið Sturla Sighvatsson er
í aðalhlutverki; Yrsa Sigurðardóttir les
úr spennusögunni DNA; Þórdís Gísla-
dóttirles úr ljóðabókinni Velúr og Ófeig-
ur Sigurðsson les úr skáldsögunni
Öræfi, en bæði Velúr og Öræfi eru til-
nefndar til íslensku bókmenntaverð-
launanna; Vera Illugadóttir les úr hinni
rómuðu endurminningabók Jóhönnu
Kristjónsdóttur, Svarthvítir dagar, þar
sem höfundur dregur upp ógleyman-
legar myndir af veröld bernskunnar.
Endilega …
… komið við á skáldaveislu
Skáld Þórdís Gísla ætlar að lesa.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Gera má ráð fyrir að margir verði á
þönum alla þessa helgi þar sem stutt
er til jóla og allir að ljúka því af sem
þarf í undirbúningnum. Þeir sem
verða á hlaupum um höfuðborgina
geta endað helgina á því að ganga ró-
legum skrefum inn í Dómkirkjuna
annað kvöld, sunnudagskvöld, því þá
verða þar árlegir jólatónleikar kl. 22.
Dómkórinn í Reykjavík býður öllum
að koma án endurgjalds og hlýða á
hann syngja ýmis jólalög sem vekja
jólaandann í hug og hjarta.
Dómkórinn í Reykjavík var stofn-
aður árið 1978 af Marteini H. Friðriks-
syni en stjórnandi núna er Kári Þor-
mar. Kórinn hefur gefið út nokkra
hljómdiska og haldið fjölda tónleika,
bæði hér heima og erlendis. Fjölmörg
verk hafa verið samin sérstaklega
fyrir kórinn.
Dómkórinn syngur ýmis jólalög á sunnudagskvöld
Morgunblaðið/Ómar
Dómkórinn Mörgum finnst jólin komin þegar hlustað hefur verið á söng hans.
Gott að enda
helgina á ókeyp-
is tónleikum í
Dómkirkjunni