Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 12
Bílar lækka í verði um áramótin
Dæmi um verðlækkanir*
*Upplýsingar fengust frá bílaumboðunum 18.12. og 19.12. 14. Þær eru hér endurbirtar eins og þær komu frá umboðunum.
Toyota
AYGO x
Yaris Hybrid
Auris Touring
Sports Hybrid
RAV 4 GX
bensín
Land Cruiser
150 GX dísil
Bílabúð Benna
Porsche Caenne
dísil
Opel Astra
Essentia 1,6 bsk.
Opel Insignia
4dyra2,0dísil bsk.
Chevrolet Spark
LS 1,0
Chevrolet Captiva
LT dísil ssk.
Hekla
VWTiguanSport&
Style4Motiondísil,ssk.
VWGolfComfortline,
bensín,ssk.
MitsubishiOutlander
Intense,bensínssk.
AUDI Q5, dísil, ssk.
Skoda Octavia,
dísil bsk.
Suzuki
Swift GL bsk.
Swift GL ssk.
S-Cross GL
4x4 bsk.
Jimny JLX bsk.
Grand Vitara
Premium bsk.
BL
Nissan Qashqai
Acenta 1.6 dísil ssk.
Subaru Forester
Premium4x42,0 ssk.
Renault Clio 1,5
dísil bsk.
Dacia Duster 1,5
dísil bsk.
Range Rover Evoque
4x4 ssk.
Brimborg
MazdaCX-5Vision
4WD2,0ibensínssk.
CitroënC4CactusLive
1,2 bensínbsk.
FordFiestaTrend1,0i
bensínbeinskiptur
FordKugaTitaniumAWD
2,0 TDCidísil,ssk.
VolvoV40Kinetic1,6D2
dísil, 6gírabsk.
Nýtt verð
1.950.000
3.430.000
4.680.000
6.360.000
10.840.000
Nýtt verð
13.790.000
2.950.000
4.337.000
1.769.000
6.190.000
Nýtt verð
6.410.000
3.800.000
5.230.000
8.930.000
4.010.000
Nýtt verð
2.519.000
2.845.000
4.435.000
3.507.000
5.523.000
Nýtt verð
4.790.000
5.490.000
2.850.000
3.940.000
7.690.000
Nýtt verð
5.790.000
2.690.000
2.390.000
6.190.000
4.330.000
Lækkun
40.000
60.000
90.000
130.000
210.000
Lækkun
200.000
40.000
53.000
21.000
100.000
Lækkun
80.000
50.000
60.000
110.000
50.000
Lækkun
31.000
35.000
55.000
43.000
67.000
Lækkun
100.000
200.000
40.000
50.000
100.000
Lækkun
100.000
140.000
60.000
100.000
60.000
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Nýir bílar lækka í verði um áramótin
samhliða því að efra þrepið í virðis-
aukaskatti er lækkað úr 25,5% í 24%.
Dæmi um áhrifin af skattalækkuninni
eru sýnd í töflunni hér til hliðar.
Morgunblaðið leitaði til bílaumboð-
anna og óskaði eftir fimm dæmum frá
hverju þeirra um áhrif breytinganna
á verð nýrra bíla.
Lækkunin er meiri eftir því sem
bílarnir eru dýrari, enda um hlutfalls-
legan skatt að ræða.
Björn Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri bílasviðs Bílabúðar Benna,
væntir þess að skattalækkunin verði
til að örva sölu nýrra bíla.
„Við höfum séð sölu á nýjum bílum
til almennings aukast töluvert á
haustmánuðum. Það er margt sem
hefur hjálpað til. Nýir bílar eru að
verða sífellt eyðslugrennri og menga
sífellt minna. Fólk kemst af með
minni bíla en áður og viðhaldskostn-
aður er hár á mörgum eldri bílum.
Þannig að við höfum séð söluna
aukast jafnt og þétt. Ég held að sú
þróun haldi áfram og að þessi virðis-
aukaskattslækkun hjálpi þar til. Þótt
hún sé ekki mikil í prósentum vegur
hún þungt þegar fjárfest er í bíl.“
Seldu fáa smábíla fyrir hrun
Spurður hvernig kaupmáttur al-
mennings til kaupa á bílum verði á
næsta ári og hversu dýrir minnstu bíl-
arnir eru nú í sögulegu samhengi
bendir Björn á að fyrir efnahagshrun-
ið hafi smábílar selst lítið á Íslandi.
„Íslenski markaðurinn og bíla-
framleiðendur voru lítið að selja litla
bíla eins og til dæmis Chevrolet
Spark, þessa smæstu bíla. Minnstu
bílarnir sem fólk keypti á íslenska
markaðnum voru t.d. Toyota Yaris og
VW Polo og aðrir bílar í sama stærð-
arflokki. Eftir hrunið urðu þessir
bílar sterkari á markaðnum. Chevr-
olet Spark kostar nú 1.790 þúsund.
Gengi evru er nú um 154 krónur. Ef
miðað er við að evran kosti 80 krónur,
eins og hún gerði fyrir hrun, myndi
þessi bíll kosta 930 þúsund krónur.
Það var enginn bíll í boði á Íslandi á
slíku verði fyrir hrun. Ódýrustu nýju
bílarnir fyrir hrun voru í kringum
eina og hálfa milljón á þávirði. Það
var ekki verið að selja nýja bíla á und-
ir einni milljón fyrir hrun,“ segir
Björn.
Spurður hvort hann telji að sala á
eyðslufrekari bílum muni aukast
vegna lækkandi eldsneytisverðs seg-
ist Björn telja að neytendur muni
áfram velja sparneytna bíla. „Elds-
neytiskostnaður tekur svolítið í budd-
una. Við finnum það á neytendum að
fólki er orðið meira umhugað um um-
hverfisáhrifin og að vera með spar-
neytna bíla þýðir líka að mengunin
minnkar … Þótt olíuverð sé lágt um
þessar mundir eru stóru 8 strokka
bílarnir ekki að koma aftur.“
Askja lækkar einnig verðið
Einnig var óskað upplýsinga um
verðlækkanir hjá Öskju.
Kia Picanto LX 1,0, beinskiptur og
bensínknúinn kostar 1.990.777 krón-
ur og lækkar í 1.960.915 krónur, eða
um 29.862 krónur. Þá lækkar Kia
Cee’d, LX 1400, dísilknúinn og bein-
skiptur, úr 3.290.777 krónum í
3.421.415, eða um 49.362 krónur.
Loks lækkar Kia Sportage 1.700,
dísilknúinn og beinskiptur úr
4.890.777 krónum í 4.817.415, eða um
73.362 krónur. Umboðið boðaði upp-
lýsingar um verðlækkanir á Merce-
des-Benz bílum en þær höfðu ekki
borist í gærkvöldi.
Alls tóku því sjö bílaumboð þátt í
þessari lauslegu samantekt og eru
bifreiðategundirnar samtals 33.
Gengi krónu mun auðvitað hafa mikil
áhrif á bílverðið á nýju ári.
Nýir bílar lækka með lægri
virðisaukaskatti á nýju ári
Lækkunin er frá 30-210 þúsund í 33 dæmum sem bílaumboðin lögðu fram
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
DREIFARAR • SNJÓTENNUR • SNJÓBLÁSARAR • SLITBLÖÐ
A. Wendel ehf | Tangarhöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 551 5464 | wendel.is
Tæki til
vetrarþjónustu
Stofnað 1957
Stöndum öll saman sem ein þjóð
Sýnum kærleik og samkennd í verki.
Við megum ekki gleyma fátæka fólkinu
á Íslandi. Jólasöfnun er hafin hjá
Fjölskylduhjálp Íslands.
Fjölskylduhjálp Íslands
Iðufelli 14, Reykjavík • Hamraborg 9, Kópavogi
Strandgötu 24, Hafnarfirði • Baldursgötu 14, Reykjanesbæ
Hjálpið okkur að hjálpa öðrum.
Margt smátt gerir eitt stórt.
546-26-6609, kt. 660903-2590
Guð blessi ykkur öll
Áætlanir um verslun Ikea á Ak-
ureyri eru nú í biðstöðu. Þetta segir
Þórarinn Ævarsson, fram-
kvæmdastjóri Ikea á Íslandi.
„Í raun höfum við sett þetta tíma-
bundið á ís. Við erum að bíða eftir
að Ikea-samsteypan erlendis gefi út
stefnuna sína varðandi litlar búðir.
Búist var við henni nú í haust en
hún hefur greinilega tafist og við
tefjumst sömuleiðis af þeim sök-
um.“
Aðspurður segir Þórarinn að
búðin yrði líklega með þeim
minnstu í heiminum. „Að öllum lík-
indum myndi hún ekki vera meira
en fimm þúsund fermetrar að
stærð. Þá myndi hún líklega heldur
ekki hafa stóran veitingastað eða
stóran lager en auðvitað er þetta
allt óljóst enn sem komið er. Þegar
áætlun Ikea verður birt getum við
tekið betri ákvarðanir til samræmis
við hana.“ sh@mbl.is
Áætlanir um Ikea á
Akureyri settar á ís
Ikea Fyrirhugað er að reisa litla Ikea-
verslun í höfuðstað Norðurlands.
Nokkrir nemendur í Verslunar-
skóla Íslands urðu uppvísir að því
að hafa svindlað á prófum en þeir
komust yfir lykilorð sem veitti þeim
aðgang að tölvukerfi skólans.
Skólastjóri Verslunarskólans segir
að svona mál hafi ekki komið upp
áður og það sé litið alvarlegum
augum.
Próftímabilið í Verslunarskól-
anum stóð frá 1. til 14. desember.
Ingi Ólafsson, skólastjóri Versl-
unarskóla Íslands, segir að um
„örfáa einstaklinga“ sé að ræða.
Málið komst upp við yfirferð á próf-
um. Spurður til hvaða aðgerða
verði gripið segir Ingi að það sé allt
frá því að ógilda próf yfir í að vísa
nemendum úr skóla. Endanleg nið-
urstaða í málinu liggi ekki fyrir.
Komust yfir lykilorð
og svindluðu
Lækkun á efra þrepi virðis-
aukaskatts úr 25,5% í 24% mun
líka hafa áhrif á útsöluverð á elds-
neyti. Spurður hvaða áhrif lækk-
unin muni hafa áætlar Runólfur
Ólafsson, framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra bifreiðaeigenda, að
eldsneytisverð muni lækka um ríf-
lega 2 krónur á lítra miðað við nú-
verandi útsöluverð.
„Niðurfelling 15% vörugjalds á
varahluti og lækkun efra þreps
virðisaukaskatts í 24% ætti að
skila sér í lækk-
un iðgjalda öku-
tækjatrygginga.
Ég hef séð nálg-
un frá trygg-
ingafélagi þar
sem fram kem-
ur að um þriðj-
ungur af tjóna-
kostnaði í
ökutækjatrygg-
ingum sé vegna ökutækja- og
munatjóna,“ segir Runólfur.
Lækkar líka bensínverðið
VIRÐISAUKASKATTUR LÆKKAR LÍKA Á BENSÍN
Runólfur
Ólafsson