Morgunblaðið - 20.12.2014, Page 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
því að víða eru settar hömlur á fjár-
hættuspil í Bandaríkjunum.
Í Fischer-setrinu kom Noah Sie-
gel mönnum fyrir sjónir sem dag-
farsprúður og þægilegur ein-
staklingur. Og ekki kunnu
keppendur því illa þegar tvær vel
klæddar vinkonur hans, starfandi
fyrirsætur frá New York, skruppu
yfir hafið til heilsa upp á vin sinn og
sátu í mestu rólegheitum yfir skák-
um hans í Fischer-setrinu. Keppi-
nautar hans stóðust honum ekki
snúning að þessu sinni – kappinn
hefur lofað að koma aftur – og voru
þó á ferðinni býsna öflugir meist-
arar. Noah Siegel hlaut 6 ½ vinning
af sjö mögulegum en í 2.- 3. sæti
komu Sverrir Unnarsson og Ingi-
mundur Sigurmundsson með 4 ½
vinning. Þeir tefldu svo tveggja
skáka einvígi um sæmdarheitið
Skákmeistari SSON og vann Sverr-
ir, 1 ½ : ½.
Guðlaug Þorsteinsdóttir sigraði á
vel sóttu Skákþingi Garðabæjar sem
lauk um mánaðamótin nóv./des.
Þetta mót dró til sín marga af
yngstu og efnilegustu skákmönnum
höfuðborgarsvæðisins. Þegar tími
hefur gefist í annasömu læknisstarfi
hefur Guðlaug stundum tekið góða
spretti á skákborðinu og er aldrei að
vita nema hún gefi kost á sér í verk-
efni kvennalandsliðsins á næsta ári.
Hún hlaut 5 ½ vinning af sjö mögu-
legum, tapaði í fyrstu umferð fyrir
Birni Hólm Birkissyni en var óstöðv-
andi eftir það. Bárður Örn Birkisson
og Páll Sigurðsson urðu í 2.-3. sæti
með 5 vinninga. Í b-flokki mótsins
sigraði Þorsteinn Magnússon, hlaut
6 vinninga af sjö mögulegum en í
2.-3. sæti komu tveir ungir skák-
menn, Guðmundur Agnar Bragason
og Robert Luu með 5 ½ vinning
hvor.
Vetrarmóti öðlinga, skemmtilegri
keppni sem hinn kunni skákdómari
Ólafur Ásgrímsson á mestan heiður
af, lauk svo um svipað leyti í húsa-
kynnum Taflfélags Reykjavíkur við
Faxafen. Þar urðu jafnir og efstir
þeir Magnús Pálmi Örnólfsson og
Þorvarður Ólafsson, hlutu báðir 6
vinninga af sjö mögulegum en
Magnúsi var dæmdur sigur á stig-
um. Keppendur voru 25 talsins og
má geta þess að í 3.-4. sæti varð Guð-
mundur Aronsson, stigalaus skák-
maður sem ekki hefur teflt á op-
inberu móti í meira en 40 ár.
Óvæntur sigurvegari
á Meistaramóti SSON
Sigurvegari Meistaramóts SSON,
Skáksambands Selfoss og nágrenn-
is, sem fram fór í Fischer-setrinu á
Selfossi, kom úr óvænri átt. Þar voru
keppendur átta talsins og tefldu allir
við alla með klst. umhugsunartíma á
skák. Ýmsum lék forvitni á að vita
hvernig stæði á ferðum og þátttöku
liðlega þrítugs Bandaríkjamanns,
Noah Siegel, sem hafði nokkurra
vikna dvöl í grennd við Selfoss í
haust. Hann hélt sig þar að mestu til
hlés, stundaði jóga hjá Dagmar Unu
Ólafsdóttur og bar ýmis merki þess
að hann væri að flýja skarkala New
York-borgar en þaðan er hann. Við
eftirgrennslan kom svo í ljós að hér
var á ferðinni gömul vonarstjarna
Bandaríkjamanna á skáksviðinu.
Hann hafði fyrir u.þ.b. 20 árum teflt
fyrir hönd Bandaríkjanna á heims-
meistaramótum barna og unglinga,
12 ára og yngri og 14 ára og yngri,
og kljáðst þar við ungstirni á borð
við Armenann Levon Aronjan og
Rússann Alexander Grischuk; lagt
síðar út á brautir veðmála og fjár-
hættuspila og við pókerborðið atti
hann kappi við ýmsa nafntogaða ein-
staklinga og rakaði saman fé svo af
hlutust blaðaskrif og réttarhöld –
Þrjú skemmtileg mót
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Á vesturströnd Afr-
íku er að finna hið fal-
lega land Síerra
Leóne. Þar búa nú um
5,9 milljónir íbúa, flest-
ir á Freetown-
skaganum þar sem
samnefnd höfuðborg
landsins er. Saga
Síerra Leóne nær
langt aftur í aldir en
talið er að samfélög
manna hafi búið þar í
tæp 2.500 ár. Nafn landsins kom
hins vegar til skjalanna á landa-
fundatímabilinu svokallaða um
1500 er portúgalski landkönnuður-
inn Pedro de Sintra kom að land-
inu á skipi sínu við Freetown-
skagann. Sagan segir að honum
hafi þótt fjöll skagans minna sig á
ljónynju og því hafi hann gefið
landsvæðinu þetta nafn. Á 19. öld
varð Síerra Leóne bresk nýlenda
sem hlaut að endingu sjálfstæði ár-
ið 1961. Menning landsins er marg-
breytileg og fjölskrúðug og dregur
dám af séreinkennum héraða þess.
Margt í menningunni sameinar þó
íbúana, t.d. tungumálið krio.
Land tækifæranna
Frá sjálfstæði hafa atorkusamir
íbúar Síerra Leóne leitast við að
byggja hið fallega land sitt upp
með nýtingu náttúruauðlinda til að
efla þjóðarhag og bæta lífsskilyrði.
Landið er nefnilega afar vel sett
frá náttúrunnar hendi. Gjöful fiski-
mið eru úti fyrir tæplega 400 km
strandlengju landsins sem fallegar
baðstrendur setja sterkan svip á.
Inn til landsins finnast verðmætar
steintegundir í jörðu á borð við
demanta og málmgrýti eins og járn
og báxít. Inn til landsins finnst
gott landrými til margvíslegra nota
m.a. til að stunda landbúnað og
aðra mikilvæga iðju. Tækifærin í
Síerra Leóne eru því mýmörg þeg-
ar horft er til iðnaðar, ferðaþjón-
ustu og sjávarútvegs svo einhver
dæmi séu nefnd.
Endurreisn eftir stríð
Þótt íbúar Síerra Leóne hafi
stigið mörg framfaraspor í upp-
byggingu sinni hefur vegferð
þeirra í þá átt verið
þyrnum stráð. Hat-
römm og langvinn
borgarastyrjöld sem
stóð yfir í landinu á
árunum 1991-2002 olli
gríðarlegum skaða í
nær öllu tilliti: á fólki,
eignum og innviðum.
Um 50.000 manns
lágu í valnum þegar
yfir lauk auk þess
sem um 2,5 milljónir
þurfu að yfirgefa
heimili sín og leggja
á flótta undan skálmöldinni. Frá
lokum styrjaldarinnar hefur lands-
mönnum hins vegar auðnast með
margvíslegu liðsinni alþjóða-
samfélagsins að endurreisa land
sitt upp úr rústum stríðsins og
græða þau sár sem hildarleikurinn
skildi eftir sig. Meðal þess sem
gerst hefur á þessum tíma er að
margt af því fólki sem yfirgaf land-
ið í stríðinu snéri heim til að taka
þátt í endurreisninni. Engu breytti
þótt margir hefðu öðlast ríkisborg-
ararétt og góða menntun í nýju og
stöðugara landi með ótal mögu-
leika á góðum starfstækifærum –
fólk vildi heim til að taka þátt í
uppbyggingunni. Dýrmæt þekking
og reynsla hefur því flust til Síerra
Leóne á allra síðustu árum. Við hjá
Aurora velgerðarsjóði höfum verið
svo lánsöm að fylgjast með þessari
jákvæðu þróun á síðustu tíu árum
á meðan við höfum unnið að verk-
efnum okkar í landinu á sviði
mennta- og heilbrigðismála.
Skaðvaldurinn ebóla
Því miður halda raunir landsins
hins vegar áfram. Nú um 12 árum
eftir borgarastyrjöldina hefur nýr
skaðvaldur skotið upp kollinum í
Síerra Leóne: sjúkdómurinn ebóla.
Sjúkdómurinn barst til landsins í
maí og hefur hann nú á rúmu hálfu
ári sýkt um 8.300 manns og dregið
um 2.100 til dauða. Flestir af þeim
sem hafa veikst og látist eiga börn
og eru því þúsundir barna for-
eldralausar sökum sjúkdómsins við
afar bágar aðstæður. Utan þessa
hefur ebólan ýft upp ótta og óvissu
sem komið hefur hart niður á efna-
hagslífi landsins og leitt af sér
spíral niður á við. Margir fjárfestar
hafa kippt að sér höndum vegna
óvissuástandsins með því að selja
rekstur út úr landinu, loka fyr-
irtækjum og stöðva námavinnslu.
Fyrir vikið hafa margir íbúar misst
atvinnu sína og lifibrauð. Þá eru
dæmi um að íbúar með tvöfalt rík-
isfang hafi yfirgefið landið til að
koma sér og fjölskyldum sínum í
öruggara skjól. Í þessum hópi er
mikið af menntuðu fólki sem flutti
aftur til landsins eftir stríðið. Eftir
situr hins vegar samfélag í sárum
sem eitt og yfirgefið er illa í stakk
búið til að leysa þau risavöxnu
verkefni sem við því blasa. Til
marks um alvarleika ástandsins
hafa stjórnvöld í landinu ákveðið
að aflýsa öllum samkomum vegna
jóla og áramóta í ár. Því fer lítið
fyrir jólahaldi í Síerra Leóne að
þessu sinni.
Barátta fyrir framtíð landsins
Þessu ástandi þarf að sporna
gegn. Enn er stór hópur fólks og
fjöldi hjálparasamtaka í Síerra
Leóne sem leggur nótt við dag til
að berjast gegn útbreiðslu sjúk-
dómsins og sinna þeim veiku. Þetta
fólk berst áfram og er það með
réttu fólk ársins eins og alþjóðlega
tímaritið Time ákvað á dögunum.
Styðja þarf við þessa baráttu með
öllum ráðum. Sú barátta mun áður
en langt um líður breytast úr vörn
í sókn og koma á jafnvægi í Síerra
Leóne og í öðrum löndum Vestur-
Afríku þar sem barist er gegn
ebólu. Þó að landið sé vitaskuld
laskað er það alls ekki hrunið og
því ríður á að alþjóðasamfélagið og
fjárfestar sýni Síerra Leóne þol-
inmæði og stuðning. Slík hugsun er
ekki síðri stuðningur í baráttunni
gegn ebólu.
Síerra Leóne er ekki hrunið
Eftir Ólaf Ólafsson »Dýrmæt þekking og
reynsla hefur því
flust til Síerra Leóne á
allra síðustu árum.
Ólafur Ólafsson
Höfundur er stjórnarformaður
Auroru-velgerðasjóðs.
Óvæntur sigurvegari á Selfossi,
Noah Siegel
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is
Ákvæði húsa-
leigulaga geyma al-
mennar reglur um
réttindi og skyldur
leigusala og leigu-
taka en eru frávíkj-
anleg þegar um er að
ræða atvinnu-
húsnæði. Gilda því
ákvæði um atvinnu-
húsnæði nema samið
sé á annan veg.
Þetta samningsfrelsi nýta leigu-
salar sér óspart við samningagerð
og oft er samningsstaða ójöfn
milli aðila. Leigusalar eru yfirleitt
með stöðluð samningsform sem
þeir hafa sérsniðið að sínum hags-
munum. Slíkir samningar eru afar
óhagstæðir fyrir leigutaka enda
fela þeir oftar en ekki í sér yf-
irtöku leigutaka á ýmsum skyld-
um leigusala samkvæmt húsa-
leigulögunum. Sú staðreynd að
leigutakar hafa þurft að sættast á
svo óhagstæð kjör hefur leitt til
þess að þeir geta lent í vandræð-
um í rekstri sínum þegar á líður.
Í rekstri fyrirtækja er grund-
vallaratriði að þekkja umfang al-
menns rekstrarkostnaðar. Þannig
er hægt að gera rekstraráætlun
og tryggja fjármögnun til að
standa í skilum við skuldbind-
ingar. Í rekstri er þannig mjög
mikilvægt að takmarka óvænta
útgjaldaliði eins og hægt er. Hús-
næðiskostnaður er einn af stærstu
útgjaldaliðum í rekstri fyrirtækja
og því gríðarlega mikilvægt að
fastur mánaðarlegur kostnaður
vegna húsnæðis liggi fyrir eins og
kostur er. Þetta gerir leiguúrræð-
ið að álitlegri kosti umfram hús-
næðiskaup því þá er engin áhætta
af húsnæði heldur einungis greidd
föst mánaðarleg húsaleiga.
Sú skylda leigusala samkvæmt
gildandi húsaleigulögum, sem nú
tíðkast að yfirfæra á leigutaka
þegar um atvinnuhúsnæði er að
ræða, er viðhald á hinu leigða.
Samkvæmt húsaleigulögunum
skal leigusali annast viðhald hús-
næðis innanhúss sem utan, fyrir
utan viðhald á læsingum, vatns-
krönum, raftenglum og öðru smá-
legu sem hvílir á leigutaka.
Leigusali skal einnig halda hús-
næðinu í leiguhæfu ástandi, m.a.
með því að mála, endurnýja gólf-
efni með hæfilegu millibili eftir
því sem góðar venjur um viðhald
húsnæðis segja til um. Er eðlilegt
að viðhaldsskyldan hvíli á leigu-
sala þar sem hann er eigandi hús-
næðisins og hagnast á því að
halda húsnæðinu í góðu ástandi.
Nú til dags er algengt að leigu-
takar taki á sig þessar skyldur án
þess að átta sig fyllilega á hvað
það getur þýtt fyrir reksturinn til
lengri tíma. Leigutakar geta á
engan hátt vitað hver eiginlegur
leigukostnaður í
rekstrinum er í raun
og veru. Því miður
virðast leigusalar oft
ná fram slíkum frá-
vikum með samn-
ingum og virðast jafn-
vel komnir á þá
skoðun að það að víkj-
ast undan almennum
skyldum sínum sé
sanngjarnt og eðli-
legt. Því er þveröfugt
farið. Samnings-
ákvæði sem kveða á
um yfirfærslur skyldna leigusala
til leigutaka eru ósanngjörn.
Samningsaðilar þurfa að leitast
við að gera sanngjarna samninga
sem báðir geta unað vel við þann-
ig að jafnræði ríki og samnings-
samband geti dafnað til lengri
tíma litið.
Það eru ýmis önnur atriði sem
er vert fyrir leigutaka að huga að
við samningagerð við leigusala
eins og til dæmis ákvörðun leigu-
fjárhæðar og skipting rekstr-
arkostnaðar. Mikilvægt er fyrir
leigutaka að kanna hvort fyr-
irhugað leiguverð sé í samræmi
við markaðsverð leigu á viðkom-
andi svæði þannig að ekki sé ver-
ið að greiða yfirverð. Einnig þarf
leigutaki að taka með í reikning-
inn að leigufjárhæð er oft tengd
vísitölu við mat á því hvort rekst-
urinn ráði við greiðslu leigunnar.
Eins þarf að huga vel að hækk-
unar- og veltutengingu ef slík
ákvæði eru í samningsdrögum
leigusala. Varðandi rekstr-
arkostnað sameignar atvinnu-
húsnæðis þarf leigutaki að gæta
þess að taka ekki yfir skyldur
leigusala til að greiða m.a. kostn-
að vegna endurbóta á lóð eða hús-
eign enda er eðlilegt að slíkt falli
á húseiganda. Hlutfallslegur
kostnaður vegna endurbóta á lóð
eða húseign getur verið töluverð-
ur og komið sér illa fyrir leigu-
taka, sérstaklega ef húsnæði er
gamalt og þarfnast mikilla end-
urbóta.
Réttindi leigutaka atvinnu-
húsnæðis eru á undanhaldi ef ekki
er að gætt. Hvet ég alla leigutaka
til að standa vörð um réttindi sín
í samningagerð við leigusala og
yfirtaka ekki skyldur þeirra nema
að vel athuguðu máli og gera þá
ráð fyrir hugsanlegum kostnaði í
rekstraráætlun fyrirtækis síns
sem af því getur hlotist.
Er réttur leigutaka
atvinnuhúsnæðis á
undanhaldi?
Eftir Ingibjörgu
Björnsdóttur
Ingibjörg Björnsdóttir
» Samningsákvæði
sem kveða á um yfir-
færslur skyldna leigu-
sala til leigutaka eru
ósanngjörn.
Höfundur er lögmaður, viðurkenndur
bókari og rekstrarráðgjafi.