Morgunblaðið - 20.12.2014, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 20.12.2014, Qupperneq 42
sandinn þar til það hverfur niður í holu, en skömmu síðar hefur vind- urinn fært sandinn yfir og hér er eins og ekkert hafi gerst eða geti gerst. Svona lítur jörð án manna út. Sandöldurnar í sunnanverðri Namibíu verða ekki til úr engu. Hér suðuraf þar sem Rauðá beljar til sjávar með sandburð frá Kalah- ari-eyðimörkinni lengst innanúr í Botsvana og Suður-Afríku er efn- isveitan. Rauðá er eins og jökul- árnar okkar heima. Þegar til sjáv- ar fellur fer framburðurinn inn í mót hafstrauma sem skola allan leir úr sandinum og þyrla frá dýp- inu inn á strönd Namibíu. Þar taka álandsvindarnir við og feykja honum inn í heita mörkina. Sand- öldurnar hlaðast upp á tugþús- undum ára og verða mörg hundr- uð metra háar. Það eru þessir kraftar eilífð- arvélanna sem segja að maðurinn sé skammtímagestur og skipti engu í því stóra samhengi sem hrærir lönd og dreifir heimsálfum. Við hæfi að hér búi planta sem kallast lifandi steingervingur. Welwitschia skríður með þykk og kræklótt blöð um harða mela, ein- hvern veginn kemst hún af næst- um vatnslaus og tilveran mæld í biblíusögulegum einingum: Vís- indamenn gruna elstu plönturnar Dauði Namibíueyðimörkin: Elsta eyði- mörk í heimi. Hér hefur ekki snjó- að í 50 milljónir ára. Eða bara aldrei. Elsta land sem maður legg- ur að fótum í Afríku, kjarninn í gamla meginlandinu sem var til áður en álfurnar tók að reka sund- ur, fyrir 300-500 milljónum ára. Dauður skógur í kvos þar sem sandöldurnar hafa lokað allt af í 1000 ár er hrollvekjandi dæmi um líf sem dagar uppi og talar beint inn í samtíma okkar. Þetta er mannlaus veröld. Heimurinn eins og hann verður þegar Móðir Jörð hefur hreinsað þessa óværu af sér sem mannkyn er. Í sögunni allri erum við langt innan skekkjumarka á skeið- klukku eilífðar, jafn banalt og það er að segja slíkt þá erum við menn bara sandkorn í þessari eyðimörk sem skríður með öldur sínar og brennandi hita hægt og bítandi yfir það sem fyrir verður. Ef það er satt sem vísindamenn segja þá er jörðin 4,6 milljarða ára gömul. Setjum það í skilj- anlegar einingar og gerum hana 46 ára gamla. Saga mannkyns er þá 4 ár. Tilvera okkar, hins iðn- vædda manns, nemur þar af einni mínútu. Á henni eyddum við helm- ingi skóga á jörðinni. Slíkar fram- farir má kalla hamfarir. Dauðinn er reyndar bara á yf- irborðinu. Í brennheitum sand- inum eru ótal skordýr, sporð- drekar, bjöllur, kóngulær – og flugur flögra framhjá eðlum sem reyna að éta þær. Hvert kvikyndi hefur sérhæft sig í að lifa af ein- hverju öðru, því ef hinn hæfasti kemst af einhvers staðar þá er það hér. Í fjörutíu til fimmtíu stiga hita þar sem aldrei rignir reynir á þróunarkenninguna. Þokuloftið sem kemur snemma morguns frá hafinu ber með sér raka sem skapar skammlífa dögg á kyrkingslegum smárunna, hana má sleikja af. Bjalla hefur lært að lyfta upp óæðri endanum móti mistrinu til að safna á skelina dropa sem hnígur í kjaftinn á henni. Jafnvel stóru dýrin sem eigra hér um sums staðar hafa að- lagast: Langhyrningurinn stendur uppi á sandöldu og lætur þoku- loftið kæla granir og væta svo hann geti sleikt útum, eða hann grefur upp eitthvað sem líkist fjarskyldum ættingja melónu og sýgur úr vætuna. Þessi mikla skepna sem vegur næstum tonn lifir af í 47 stiga hita. Þegar rignir mikið inni í landi mörg hundruð kílómetra í burtu kemur fyrir að ævafornir farvegir beri vatn inní mörkina, sögufrægar vinjar bera þess merki að slíkt gerist reglu- bundið og þótt árnar gufi bara upp halda jarðlögin raka um hríð – og næra stöku tré. Smávaxnir eðlufætur og skott mynda strik í um að hafa spírað sem fræ um það leyti sem lítið sveinbarn kom í heiminn í fjárhúsi í Betlehem fyrir 2000 árum. Norðan við sand er Leikvöllur guðanna. Ógnarstór grjótfjöll teikna mynstur inn í sólsetrið. Hvalstórir steinar eins og hráviði og í hrúgum hver upp af annari. Sandar á milli og stöku antilópul- undir, skuggar af eyðimerk- urljónum í stjörnum prýddri nótt- inni en með morgninum þunglamalegar fílahjarðir eins og lambaspörð innan um grjótið. Þetta jarðrask er sagt frá þeim Jörð án manna Það er óhætt að segja að landslagið í Namibíueyðimörkinni sé ólíkt því sem Íslendingar eiga að venjast, enda ekki að furða. Úrkoma telst næsta óhugsandi á þessum stað sem mun vera elsta eyðimörk í heimi. Þessi tré tilheyra dauðum skógi sem er áhrifaríkt dæmi um líf sem dagar upp, eins og höfundurinn, Stefán Jón Hafstein, kemst að orði. Afríka – ást við aðra sýn heitir ný bók sem Stefán Jón Hafstein gefur út og geymir frásögur af litríku mannlífi og dásamlegri náttúru í Afríku. Hér er kafli úr bókinni sem fjallar um eyðimörkina í Namibíu þar sem landslagið er Íslendingum framandi enda í flestu frábrugðið því sem við eigum að venjast. Ísland ehf. gefur út. Sögur dreifa. 42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014 BÆKUR Gjafakort Argentínu steikhúss fyrir starfsfólkið eða ástvinina JÓLAGJÖF sem bragð er afBarónsstíg 11 101 Reykjavík Upplýsingar á argentina.is eða í síma 551 9555 Dansk julegudstjeneste holdes i domkirken onsdag den 24. december kl. 15.00 ved pastor María Ágústdóttir. Danmarks ambassade.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.