Morgunblaðið - 20.12.2014, Side 45

Morgunblaðið - 20.12.2014, Side 45
45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014 Illur fengur hefst eins ogglæpasaga, sem hún vissu-lega er – út um gluggann áFossi á Barðaströnd sést til dularfullra mannaferða um miðja nótt. Fljótlega kemur í ljós að þeir sem þar voru á ferð höfðu eitt- hvað á samvisk- unni og í sveitinni þykjast menn vita hvaðan þeir komu. Þessi saga byggist víst á sönnu sakamáli vegna sauða- þjófnaðar sem heimafólkið á Hleina- bergi, sem heitir svo í sögunni, stundaði í áratugi og komst upp með vegna linku sýslumanns sveit- arinnar. Á endanum gripu yfirvöld fyrir sunnan í taumana og beittu brögðum til að fá einn grunaðra suð- ur og síðan til að fá hann til að játa. Þetta var ævintýraleg saga og skiljanlegt að einhver vilji gera sér mat úr öðru eins efni. Finnbogi kemst líka langt með að gæða hana lífi en þó ekki alla leið – hann skortir skáldgáfu og frásögnin verður of skýrsluleg og þurr á köflum. Einnig er málfar of fornt og stíllinn óþarf- lega snúinn. Það er auðvelt að fá samúð með Hleinabergsfólkinu, en Finnbogi sit- ur svo fastur í málsskjölunum að hann missir sjónar á fólkinu sem þau segja frá. Að sama skapi hefði verið gaman að fregna frekar af afdrifum þess. Rétt er þó að geta þess að vendingin í lokin þegar sagt er frá Skagfirðingnum sem fluttist út í Ak- ureyjar er skemmtilegur snúningur, ekki síst í ljósi þess hver þessi Skag- firðingur var. Makleg málagjöld Skáldsaga Illur fengur bbmnn Eftir Finnboga Hermannsson. Skrudda, 2014. 132 bls. ÁRNI MATTHÍASSON BÆKUR Morgunblaðið/Sigurður Bogi Glæpasaga „Málfar er of fornt og stíllinn óþarflega snúinn.“ Danski blaðamaðurinn Jes-per Stein fer vel af staðá nýjum vettvangi, enfyrsta spennubók hans, Órói, kom út í Danmörku fyrir um tveimur árum og nýlega í íslenskri þýðingu. Sagan gerist að mestu á einni viku í mars 2007, á tímum óeirða vegna rýmingar ungdómshússins á Nörrebro. Maður finnst myrtur í hverfinu og Axel Steen fer með rannsókn málsins, sem vindur upp á sig og er mun alvarlegra og viða- meira en talið var í byrjun. Stein þekkir vel til verka og sag- an er vel samin. Hann lýsir vel bar- áttu götublaða og málgagna upp- reisnarsinna við lögreglu, stöðu minnihlutahópa gagnvart kerfinu og stríðinu við eiturlyf og mansal. Fyr- ir vikið er frá- sögnin trúverð- ug og spennan er ekki aðeins mikil heldur tek- ur á sig ýmsar myndir. Helstu per- sónulýsingar eru góðar. Reyndar orkar tvímælis að lögreglumað- ur reyki jónur í frítímanum en að öðru leyti er Axel Steen dæmigerð ofkeyrð týpa sem samsvarar sér vel sem rannsóknarlögreglumaður. Maður hlaðinn störfum, sem hefur varla tíma fyrir neitt nema vinnuna og jafnvel þar rekur hann sig á veggi. Höfundur lýsir ekki aðeins glæpamáli heldur skyggnist inn í veröld helstu persóna. Hann tekur fyrir flækjur í fjölskyldulífi og metorðaklifur í vinnu, mistök, þrár og vonir. Sagan er spennandi en óþarfa „pöddur“ trufla lesturinn á stund- um. Þær hefði auðveldlega mátt laga með betri prófarkalestri. Það breytir ekki því að glæpasagan Órói er hin besta afþreying og gaman verður að fylgjast með Jesper Stein í nánustu framtíð. Jesper Stein byrjar með látum Skáldsaga Órói bbbmn Eftir Jesper Stein. Sigurður Helgason þýddi. Draumsýn bókaforlag, 2014. 467 bls. STEINÞÓR GUÐ- BJARTSSON BÆKUR „Stein þekkir vel til verka og sagan er vel samin,“ segir í umsögn. Bankas t ræt i 7 er samsta r f sað i l i Ga l l e r í L i s t . einstakt eitthvað alveg einstakar gjafir fyrir einstök tækifæri handa einstöku fólki Úrval einstakra málverka og listmuna eftir íslenska listamenn | Skipholt 50a | S 581 4020 | www.galleril ist.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.