Morgunblaðið - 20.12.2014, Page 64
64 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Árnað heilla
60 ára Kristján Hafsteinn Leifsson,
vélvirkjameistari og lífskúnstner, er
sextugur í dag.
Elísabet Erla Birgisdóttir og Freyja
Margrét Birgisdóttir komu færandi
hendi í Rauða krossinn á Selfossi með
fullan kassa af gjöfum sem þær hafa
safnað allt árið með það í huga að gefa
til barna sem fá fáa eða enga pakka
um jólin. Eru þetta gjafir sem þær hafa
fengið sjálfar og geymt.
Hlutavelta
Stefán Hjörleifsson, gítarleikari Nýdanskrar, og félagar hansgáfu út níundu breiðskífu hljómsveitarinnar í haust. „Þetta hef-ur gengið alveg ljómandi, viðtökurnar hafa verið stórkostlegar
og þriðja upplagið af Diskó Berlín kom í búðir í gær og platan hefur
því selst mun betur en við þorðum að vona. Hún hefur fengið frábæra
dóma og mikla spilun og fjögur lög af plötunni hafa komist hátt á vin-
sældalistum. Við höfum samt ekkert náð að fylgja plötunni eftir með
tónleikum því Daníel Ágúst söngvari fór í tónleikaferð með Gus Gus
daginn eftir útkomu plötunnar. Hann hefur nánast ekkert komið heim
síðan og við höfum þá stefnu að halda ekki tónleika nema allir í hljóm-
sveitinni séu með. Ég vona bara að Gus Gus-öldurnar fari að lægja svo
við getum haldið fleiri tónleika á nýju ári.“
Stefán stofnaði Tónlist.is á sínum tíma en tengist því ekki lengur.
„Nú einbeiti ég mér að bókunum, ég stofnaði ebækur.is sem er með
sama konsept en við fórum í loftið 2012 og höfum verið að selja bækur
rafrænt. Þetta hefur gengið hægt og bítandi en það hefur verið ör
vöxtur nú í jólamánuðinum. Salan er því á uppleið, en það sem hefur
helst háð okkur er að það mætti vera meira úrval til að unnendur raf-
bóka sitji við sama borð og hinir en það er í höndum útgefenda.“
Stefán hefur ekki verið mikið fyrir að halda upp á afmælið sitt. „Ég
ætla því að flýja af landi brott, en verð hátt uppi einhvers staðar í Ölp-
unum ef fólk vill leita mig uppi.“ Eiginkona Stefáns er Rósa Stein-
grímsdóttir, nýráðin fjármálastjóri Hafnarfjarðarbæjar. Börn þeirra
eru Silja, 21 árs lögfræðinemi, og Harpa 19 ára og er á síðasta ári í
Versló.
Stefán Hjörleifsson er fimmtugur í dag
Morgunblaðið/Eggert
Hjónin Stefán og Rósa fyrir tónleika með Justin Timberlake.
Ánægður með við-
tökur nýju plötunnar
E
linóra Inga fæddist í
Smáíbúðahverfinu í
Reykjavík 20.12. 1954
og ólst þar upp. Hún
gekk í Ísaksskóla,
Breiðagerðisskóla og Vogaskóla og
lauk stúdentsprófi frá MR.
Elinóra var í sveit á sumrin frá 6-
15 ára aldurs, á Snorrastöðum við
Laugarvatn, í Fagradal í Dalasýslu
og á Grund í Höfðahverfi. Hún lauk
B.Sc.-gráðu í jarðfræði frá HÍ 1982,
prófum í hjúkrunarfæði frá Hjúkr-
unarskóla Íslands 1986 og kennslu-
og uppeldisfræði 1994. Þá lauk hún
námi í nýsköpunarráðgjöf frá hönn-
unarháskólanum í Eskilstuna í Sví-
þjóð 2012. Hún hefur einnig sótt
nám í markþjálfun og mentor-
fræðum.
Elinóra hefur verið jarðfræðingur
í HÍ, starfandi hjúkrunarfræðingur
í Reykjavík og í Stokkhólmi og
kennari við FB. Hún stofnaði fyr-
irtæki 1999 um eigin hugmynd og
hefur síðan annast útflutning á
gæludýrasnakki, Elinora’s Royal
Natural Snack.
Elinóra hefur verið formaður og
sat í stjórn LHM, Landssambands
hugvitsmanna, 1998-2007, og er
varaformaður SFH, Samtaka frum-
kvöðla og hugvitsmanna. Hún stofn-
aði KVENN, félag kvenna í nýsköp-
un, og er nú formaður þess. Hún
situr í stjórn IFIA, alþjóðasamtaka
Elinóra Inga Sigurðardóttir, forstjóri ELÁS ehf. – 60 ára
Kúrekar Elinóra með þremur af fimm félögum sínum í Hvelli sem hefur hampað Íslands- og bikarmeistaratitli.
Frumkvöðull og línudansari
Einbeitt Elinóra leikur á slidegítar sem er vinsælt hljóðfæri í kántrýtónlist.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Ertu að nýta alla næringu úr
vítamíninu þínu?
• Bætir ónæmiskerfið
• Hressir, kætir og
eykur orku
• Bætir geðið og
eykur virkni
• Gott gegn streitu
• Fyrir fólk á
öllum aldri
Epresat fljótandi fjölvítamín er framleitt fyrir þá sem eiga erfitt með
að taka töflur og hylki eða nýta ekki nógu vel næringarefnin í því
formi. Epresat vítamínin eru blönduð með jurtum
sem örva meltinguna og sjá til þess að sýrustig
magans haldist jafnt og upptaka næringarefnanna
verði semmest.
Nánari upplýsingar á www.heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum