Morgunblaðið - 20.12.2014, Page 71
Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl.
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Lau 3/1 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00
Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Sun 4/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00
Fös 26/12 kl. 13:00 Lau 10/1 kl. 13:00 Lau 31/1 kl. 13:00
Fös 26/12 kl. 16:00 Sun 11/1 kl. 13:00 Sun 1/2 kl. 13:00
Lau 27/12 kl. 13:00 Lau 17/1 kl. 13:00 Lau 7/2 kl. 13:00
Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 8/2 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Þri 30/12 kl. 20:00 Frums. Sun 4/1 kl. 20:00 4.k. Sun 11/1 kl. 20:00 7.k.
Fös 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 7/1 kl. 20:00 5.k. Fim 15/1 kl. 20:00 8.k.
Lau 3/1 kl. 20:00 3.k. Fim 8/1 kl. 20:00 6.k.
Sígilt meistarastykki Ibsen í nýrri þýðingu Hrafnhildar Hagalín
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 27/12 kl. 20:00 Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00
http://www.borgarleikhus.is/syningar/oldin-okkar/
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 20/12 kl. 20:00 aukas. Fös 9/1 kl. 20:00 Fös 16/1 kl. 20:00
Lau 27/12 kl. 20:00 aukas. Lau 10/1 kl. 20:00
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Jesús litli (Litla sviðið)
Sun 28/12 kl. 18:00 aukas. Sun 28/12 kl. 20:00
100.sýning
Mán 29/12 kl. 20:00
Fimm stjörnu mannbætandi leikhúsupplifun!
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 20/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00 Fös 26/12 kl. 14:00 aukas.
Lau 20/12 kl. 15:00 aukas. Sun 21/12 kl. 15:00
Aukasýning 26.des vegna mikillar eftirspurnar.
leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Þri 23/12 kl. 13:00 Forss. Fös 9/1 kl. 19:30 6.sýn Fös 23/1 kl. 19:30 12.sýn
Fös 26/12 kl. 19:30 Frums. Lau 10/1 kl. 19:30 7.sýn Lau 24/1 kl. 19:30 13.sýn
Lau 27/12 kl. 19:30 2.sýn Fim 15/1 kl. 19:30 8.sýn Fim 29/1 kl. 19:30 14.sýn
Fös 2/1 kl. 19:30 3.sýn Fös 16/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 30/1 kl. 19:30 15.sýn
Lau 3/1 kl. 19:30 4.sýn Lau 17/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 31/1 kl. 19:30 16.sýn
Fim 8/1 kl. 19:30 5.sýn Fim 22/1 kl. 19:30 11.sýn
Ný sviðsetning frá sömu listamönnum og færðu okkur Engla alheimsins.
Karitas (Stóra sviðið)
Þri 30/12 kl. 19:30 26.sýn Sun 11/1 kl. 19:30 28.sýn Sun 25/1 kl. 19:30 30.sýn
Sun 4/1 kl. 19:30 27.sýn Sun 18/1 kl. 19:30 29.sýn
Seiðandi verk sem hefur hlotið frábærar viðtökur. Nýjar sýningar komnar í sölu.
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 20/12 kl. 11:00 Sun 21/12 kl. 11:00 Mán 22/12 kl. 16:00
Lau 20/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 13:00 Mán 22/12 kl. 17:30
Lau 20/12 kl. 14:30 Sun 21/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 10 leikárið í röð.
Konan við 1000° (Kassinn)
Mið 7/1 kl. 19:30 38.sýn Mið 14/1 kl. 19:30 40.sýn
Sun 11/1 kl. 19:30 39.sýn Sun 18/1 kl. 19:30 41.sýn
5 stjörnu sýning - einstök leikhúsupplifun.
Hættuför í Huliðsdal (Kúlan)
Lau 20/12 kl. 13:00 14.sýn Lau 27/12 kl. 13:00 18.sýn Sun 11/1 kl. 13:00 22.sýn
Lau 20/12 kl. 16:00 15.sýn Lau 27/12 kl. 16:00 19.sýn Sun 11/1 kl. 16:00 23.sýn
Sun 21/12 kl. 13:00 16.sýn Sun 28/12 kl. 13:00 20.sýn Sun 18/1 kl. 16:00 24.sýn
Sun 21/12 kl. 16:00 17.sýn Sun 28/12 kl. 16:00 21.sýn
Spennandi sýning fyrir hugrakka krakka!
Ævintýri í Latabæ (Stóra sviðið)
Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 28/12 kl. 16:30 Mán 29/12 kl. 13:00 Lokas.
Stórsöngleikur fyrir börn á öllum aldri í Þjóðleikhúsinu.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
MP5 (Aðalsalur)
Sun 11/1 kl. 20:00
Lífið (Aðalsalur)
Sun 18/1 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00 Sun 1/2 kl. 13:00
Lísa og Lísa (Aðalsalur)
Fös 9/1 kl. 20:00 Lau 17/1 kl. 20:00 Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 10/1 kl. 20:00 Sun 18/1 kl. 20:00 Lau 24/1 kl. 20:00
JOHNNY AND THE REST í Tjarnarbíó (Aðalsalur)
Lau 20/12 kl. 19:30
MENNING 71
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Sagan um manninn sem er í okkur öllum kom út í október
á þessu ári og nefnist Dýrmundur og málið með veginn.
Höfundur bókarinnar er Jón Pálsson en þetta er hans
fyrsta skáldsaga en ekki fyrsta verk. „Ég hef áður sent frá
mér tvær ljóðabækur en rithöfundurinn hefur blundað í
mér lengi og loks kom að því að skáldsagan kom út. Ég
skrifaði hana árið 2010 þá nærri því þrefalda á lengd til
samanburðar við þá sem nú er komin í hendur lesenda.
Dýrmundur er nefnilega áhugaverður karakter sem hefur
frá mörgu að segja og margt hægt að segja um hann.“
Hugmyndina að Dýrmundi segir Jón koma úr gömlu ís-
lenskum gamansögum og segir eina slíka lýsandi fyrir
Dýrmund. „Kannast ekki allir við söguna um vinnumann-
inn sem kemur að bóndabæ og spyr bóndann hvort hann
fái ekki eitthvað að gera hjá honum. Bóndinn spyr hvað
vinnumaðurinn geti gert og fær svarið: slá get ég ekki,
rakað get ég ekki en að binda saman í bagga get ég en það
geri ég ekki.“ Vinnumanninn segir Jón vera karl sem hann
kannist við og flestir þekki í einhverjum. „Ég notaði þenn-
an karakter fyrst prívat meðal vina minna og var oft að
líkja eftir honum því hann skrollar svolítið. Þetta er mað-
urinn sem mætir á svæðið og telur að hann eigi að vera
fyrstur þó svo það sé röð. Karakterinn vex svo innra með
mér og svo byrjar hann bara að tala og ég að skrifa.“
Sveitamaðurinn sem er í öllum
Dýrmundur er dæmigerður sveitamaður en Jón segir
bókina ekki ádeilu eða gagnrýni á fólk í sveitum landsins.
„Ég er ekki sveitamaður sjálfur en á félaga sem er fæddur
og uppalinn í sveit og bar verkið undir hann og fékk þau
svör að þarna væri á ferðinni ekta sveitamaður. Dýr-
mundur er engu að síður karakter sem finna má í okkur
öllum. Kannski erum við bara öll sveitamenn inn við bein-
ið.“
Sagan sjálf segir frá því þegar Vegagerðin hættir að
viðhalda veginum að bænum og Dýrmundur neyðist til að
selja og flytja á mölina. „Þetta er pólitískt áfall fyrir hann
því hann er búinn að vera flokksmaður alla tíð eins og
pabbi hans og afi og honum finnst ekkert sjálfsagðara en
að þessu verði kippt í liðinn. Aðstæður eru hins vegar uppi
sem koma í veg fyrir að það sé gert og hann reynir að
skilja en kemst samt aldrei yfir þetta og telur það vera
svik við sig.“
Viðskiptin og guðfræðin
Úr ólíkum heimum sækir Jón þekkingu við gerð skáld-
sögunnar en hann er menntaður guðfræðingur og við-
skiptafræðingur. „Menntun mína nota ég ekki beint við
gerð verksins en nýt góðs af henni enda er Dýrmundur
með ákveðnar skoðanir á trúmálum og lætur þjóðfélags-
málin ekki fram hjá sér fara í umræðunni.“
Jón segir þó vert að taka það sérstaklega fram að hans
eigin skoðanir samræmist ekki þeim sem Dýrmundur læt-
ur frá sér fara.
Sagan af þessum einstaka karakter sem á rætur sínar í
sjálfri þjóðarsálinni er eflaust ekki sú síðasta en Jón neitar
því ekki að í honum blundi önnur bók um þennan sérstaka
mann. „Ég á aðrar sögur af honum sem ekki var pláss fyr-
ir í þessari bók og því mögulegt að fleiri sögur rati á
prent.“ vilhjalmur@mbl.is
Sveitamaðurinn
sem allir þekkja
Gamansögur Hugmyndin að Dýrmundi segir Jón að
komi úr gömlum íslenskum gamansögum.
Dýrmundur er fyrsta skáldsaga Jóns Pálssonar
Íslendingar, bú-
settir í Hollandi,
boða til aðventu-
tónleika í Frí-
kirkjunni í
Reykjavík á
morgun, sunnu-
daginn 21. des-
ember, klukkan
17.00. Fram
koma þau Hákon
Bjarnason pían-
isti, Hrafnhildur Árnadóttir sópr-
an, Guja Sandholt messósópran,
Þóra Margrét Sveinsdóttir víólu-
leikari og Melkorka Ólafsdóttir
flautuleikari. Auk þess ætla tveir
meðlimir úr sönghópnum Olgu að
leggja þeim lið í tveimur lögum.
Öll eru þau búsett í Hollandi þar
sem þau stunda nám eða eru að
ljúka námi. „Við erum mjög virk í
tónlistarsenunni í Hollandi en
vegna búsetu komum við ekki mjög
oft fram á Íslandi og þess vegna eru
þessir tónleikar mjög spennandi
fyrir okkur,“ segir Guja.
Mafían í
Fríkirkjunni
Fríkirkjan í
Reykjavík
Rithöfundarnir
Hjörtur Mart-
einsson, Oddný
Eir Ævarsdóttir,
Soffía Bjarna-
dóttir, Þórarinn
Eldjárn og Þórdís
Gísladóttir lesa
úr verkum sínum
á Gljúfrasteini á
morgun, sunnu-
daginn 21. desember. Um er að ræða
síðasta aðventuupplestur vetrarins
en allir umræddir rithöfundar hafa
sent frá sér ný skáldverk á árinu.
Hjörtur ljóðabókina Alzheimer-
tilbrigðin, Oddný Eir skáldsöguna
Ástarmeistarann, Soffía skáldsög-
una Segulskekkju, Þórarinn Eldjárn
ásamt Sigrúnu Eldjárn barnabókina
Tautar og raular og Þórdís Gísla-
dóttir ljóðabókina Velúr. Dagskráin
hefst 16:00.
Aðventuupplestur
Þórarinn Eldjárn
Jólatónleikar
Boudoir-
sönghópsins fara
fram í Fella- og
Hólakirkju á
morgun, sunnu-
daginn 21. des-
ember, klukkan
17:00. Þar verður
flutt falleg og há-
tíðleg söng-
dagskrá í anda jólanna, lög sem
margir kannast við og önnur minna
þekkt en spennandi. Frumflutt
verða einnig tvö ný jólalög eftir tón-
skáldið Julian Hewlett, sem einnig
er stofnandi og stjórnandi kórsins.
Sérstakur gestur á tónleikunum er
hinn enski euphonium-leikari og
bassasöngvari Ian Wilkinson, sem
bæði mun spila á hornið og syngja
einsöng með sönghópnum.
Boudoir-tónleikar
Julian Hewlett
Jólakvartett söngkonunnar Kristjönu Stefánsdóttur heldur árlega jóla-
djasstónleika sína í Tryggvaskála á Selfossi í kvöld kl. 21 og segir í tilkynn-
ingu að jóladjassinn hafi um árabil verið partur af jólastemningu Sunn-
lendinga. Kvartettinn skipa auk Kristjönu þeir Vignir Þór Stefánsson
píanóleikari,
Smári Kristjánsson bassaleikari og Gunnar Jónsson trommuleikari.
Jóladjassgeggjarar Ég verð heima um jólin með Kvartetti Kristjönu Stefáns.
Miðasala og nánari upplýsingar á midi.is og
í Gamla bíói 2 klst. fyrir sýningar s: 563 4000
Winter Solstice, tónleikar
» Lau. 20. des kl. 20.00
Skötuveisla með Andreu Gylfa
» Þorláksmessa - 23. des kl. 11.30
Jólaball með Bó&Co
» Fös. 26. des kl. 23.00
Veistu hver ég var, diskóball
» Lau. 27. des kl. 23.00
Síðasti séns, tónleikar
» Þri. 30. des kl. 21.45
Nýárs gala kvöld í Gamla bíó
» Fim. 1. jan 2015 kl. 18.00
Jóladjass í Tryggvaskála