Morgunblaðið - 20.12.2014, Side 73
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það ætlar að vera óvinnandivegur að skrifa þessa pistlasvo vel sé, eða reyndar alls
ekki, vandamálið er nefnilega að ég
á erfitt með að stoppa. Þeir gætu
þess vegna verið tíu. Það er óþol-
andi að í dag getur maður ekki bara
flett upp þúsundum jólaplatna með
því að smella nokkrum sinnum á
lyklaborðið, þú átt þess kost að
hlusta á þær allar líka! Þetta eru dá-
semdir og djöfulskapur netvæðing-
arinnar í hnotskurn, takmarkalaust
aðgengi sem er um leið yfirþyrm-
andi.
Sykurhúðun
Á spotifytölti rakst ég t.a.m. á
jólaplötu Shelby Lynne, þeirrar frá-
bæru kántrí/þjóðlagatónlistarkonu,
og platan er mergjuð. Frábært
dæmi um að sumir hlaða í jólaplötur
af listrænum metnaði og þörf, en
ekki bara vegna dollarans. Lögin
eru strípuð; í hráum blús-, blágresis-
og á stundum appalasíuanda og yfir
öllu einlæg túlkun Lynne. Minnir
sumpart á stórgóða plötu Dylans í
þessum efnum. Þá fann ég líka jóla-
plötu Sheryl Crow sem ég var hálf-
partinn búinn að gleyma, stórgott
stöff. Arrrg, ég þarf að glósa svona
hjá mér!
En, ég ætlaði reyndar að byrja
á því að fara í dreggjarnar og enda
á gæðunum og skal það nú gjört.
Nema hvað, ekki ná allir jafn góðri
lendingu og Lynne og hér er t.d. ein
sem vara ber við. Haldið þið að Billy
gamli Idol hafi ekki slengt í sosum
eina hátíðarplötu og útkoman er al-
gert jóla-járnbrautarslys. Hrein
hörmung. Og það þarf ekki mikið til
að gleðja mig í þessum geira. Hún
fer ekki einu sinni hringinn. Og það
er erfitt að festa fingurinn nákvæm-
lega á hvað það er sem fór úrskeiðis.
Því að Idol hefði alveg getað raulað
sig í gegnum þetta með svalheitin að
vopni en einhverra hluta vegna féll
hún hinum megin við línuna. Enda-
laust gæti ég talið upp, Michael
Bolton fer algerlega yfir um á sinni
og eftir situr eyrnavítissódi og Mich-
ael McDonald, sá frábæri söngvari,
var eitthvað að misskilja. Mary J.
Blige og Michael Bublé kunna hins
Dásemdir jólatónlistarinnar: Síðari hluti
vegar að sykuhúða af smekkvísi.
Hvar eru skilin þarna? Vandi er um
slíkt að spá.
Hjartans mál
En jæja, vindum okkur í ger-
semarnar. Ég vil byrja á að nefna
jólaplötu Bobs Dylans, Christmas in
the Heart, sem er hreint út sagt
stórkostleg. Það er einhver mögnuð
stemning á henni, hún er hlý og
notaleg og væmni eða yfirkeyrsla
heyrist ekki. Dylan syngur þessi lög
af raunverulegri ástríðu og ein-
lægni og gleymum því ekki að Dylan
er gangandi alfræðiorðabók um am-
eríska alþýðutónlist, og gildir einu
um hvaða blæbrigði hennar er að
ræða. Og úr þeim arfi spretta þau
jólalög sem hann reynir sig við.
Jólaplata Stings, If on a winters
night …, sprettur úr sams konar
viðhorfi mætti segja og eftirfarandi
velti ég fyrir mér í mikilli langloku
um Dylan fyrir réttum fimm árum:
„Getur verið að við það að búa til
svona plötur, sem eru ekki „alvöru“
plötur heldur sniðnar að ákveðnu
formi sem löng og traust hefð er fyr-
ir, hafi losnað um þessa tvo menn?
Þeir hafi slakað á, leyft sér að vera
hæfilega hispurslausir og við það
hafi þessi góði og öruggi andi mynd-
ast?“
Ég neyðist til að hætta, plássins
vegna, en nefni líka jólaplötu Low,
tvo frábæra safndiska frá Rhino
(Hipster’s Holiday og Doo Wop
Christmas), Josh Groban (í alvöru!)
og svo meistara eins og Nat King
Cole og Bing Crosby, en ekki hvað.
Þrjú á palli og plata þeirra Hátíð fer
að höndum ein er þá mikill og góður
gestur á aðfangadag og Plata Sig-
urðar Guðmundssonar og Memfis-
mafíunnar, Nú stendur mikið til, og
Majonesjól þeirra Bogomils Fonts
og Samúels J. Samúelssonar – þetta
eru meistaraverk og ekkert annað.
Gleðileg jól, kæru lesendur. Ég
lofa tíu pistlum á næsta ári sem
munu hefja göngu sína um miðjan
október.
»Ég vil byrja á aðnefna jólaplötu Bobs
Dylans, Christmas in
the Heart, sem er hreint
út sagt stórkostleg
Ósköpin öll af skelfilegri jólatónlist
eru þarna úti Kjörgripirnir eru þar
í stöflum líka, íslenskir og erlendir
Sá rámi „Fyrst ætla ég
að sigra heiminn, svo ætla
ég að gefa út jólaplötu.“
sem við þekkjum ekki eða í það
minnsta ekki í þeim búningi sem
þær bera og fyrir vikið verður lest-
urinn enn skemmtilegri.
Frágangur á bókinni er allur til
fyrirmyndar, myndirnar mjög
skemmtilegar og þýðingin víðast vel
heppnuð. Ástæða er til að þakka að-
standendum bókarinnar fyrir þessa
þörfu útgáfu.
Kærkomið „Þetta sagnasafn er kærkomið áhugasömum um þjóðleg fræði
og almenn skemmtilesning,“ segir m.a. í rýni um Orkneyskar þjóðsögur.
MENNING 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
12
16
16
-EMPIREJÓLAMYNDIN 2014
POWERSÝNING
KL. 10
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
L
L
NIGHT AT THE MUSEUM 3 Sýnd kl. 2 - 4:30 - 5:50 - 8
EXODUS Sýnd kl. 7 - 10 (P)
MOCKINGJAY PART 1 Sýnd kl. 7 - 10
BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 2 - 4:30
MÖRGÆSIRNAR 2D Sýnd kl. 1:50 - 3:50
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar (lau&sun)
7