Morgunblaðið - 20.12.2014, Síða 76

Morgunblaðið - 20.12.2014, Síða 76
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 354. DAGUR ÁRSINS 2014 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Henti Fréttablaðinu í bunkum 2. Falin myndavél sýnir brot Apple 3. Átta börn fundust stungin til bana 4. Fann ferðafélaga með rétt nafn  Dúettinn My Bubba, skipaður hinni sænsku My Larsdotter og Guðbjörgu Tómasdóttur, lék í Det store Jule- show, árlegum jólatónlistarþætti danska ríkisútvarpsins, DR, sem sýndur verður á RÚV annað kvöld kl. 20.45. Sinfóníuhljómsveit DR sá um tónlistarflutning og ýmsir norrænir listamenn stigu á svið, m.a. Zara Larsson og Christopher frá Svíþjóð, Donkeyboy frá Noregi, Nik og Jay og Caroline Castell frá Danmörku og My Bubba. Guðbjörg segir það hafa verið óvænt og ánægjulegt fyrir þær My að vera beðnar að spila í þættinum. „Við vorum að spila með Damien Rice þeg- ar við fengum fréttirnar og áttum að stíga á svið í hinu margrómaða Apollo Theatre í New York um kvöldið svo við höfðum ekki mikinn tíma til að hugsa um þetta. Við sögðum bara já,“ segir Guðbjörg. My Bubba í jólatón- listarþætti DR  Listavefurinn Blouinartinfo birti í vikunni lista með átta lögum sem myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart- ansson segist hlusta á í vinnustofu sinni. Lögin átta eru „None But the Lonely Heart“ með Frank Sinatra, „Nenni“ með Teiti Magnússyni, „I Remember“ með Molly Drake, „Form- idable“ með Stromae, „New Career in a New Town“ með David Bowie, „Battle Cry“ með Angel Haze, „Nulla in mundo pax sincera“ eft- ir Vivaldi og „Blue Christmas“ með Elvis Presley og Martinu McBride. Sinatra og Teitur á vinnustofu Ragnars FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 15-23 m/s með snjókomu en síðar slyddu eða rigningu. Hægari og þurrt fyrir norðan og austan fram eftir degi. Hiti 0 til 7 stig. Á sunnudag Suðvestlæg eða breytileg átt víða 3-10 m/s og él en snjókoma með köflum á Norðaustur- og Austurlandi. Frost 0 til 7 stig. Á mánudag Norðaustan 10-18 m/s norð- vestantil og á annesjum nyrst. Hægari vindur annars staðar á landinu fram á kvöld. Snjó- koma um landið fyrir norðan en stöku él syðra. Hiti breytist lítið. Keflavík missti í vikunni Bandaríkja- manninn William Graves til Ísraels og var án Damon Johnson og Arnars Freys Jónssonar vegna meiðsla en náði samt sem áður að vinna tíu stiga sigur á slöku liði Hauka í gærkvöld, 95:85, í Dominos-deildinni í körfu- knattleik. Keflavík komst þar með upp í 5. sæti deildarinnar í þessum síðasta leik fyrir jólafrí. »2 Graves til Ísraels en Keflavík vann Elsa Sæný Valgeirsdóttir hafði með sér tvær peysur á verðlaunaafhendingu eftir fyrri hluta keppnistímabilsins í blaki. Hún var valin besti þjálfarinn í Mizuno-deild karla og tók við þeim verðlaunum í HK-peysu en skipti svo yfir í Stjörnu-peysuna og tók við verðlaunum sem leikmaður. Hún segir veturinn vissulega hafa verið skrýtinn en gengið furðuvel. »1 Varð að vera fljót að hafa fataskipti Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í knattspyrnu, er afar ánægður með að hafa brotið ísinn og skorað sín fyrstu mörk fyrir spænska liðið Real Socie- dad. Hann kann mjög vel við nýjan þjálfara liðsins, Skotann David Moyes og segir að nú þurfi hann að standa undir því trausti sem sér hafi verið sýnt og sanna að hann eigi heima í liðinu. »3 Ánægður með að hafa brotið ísinn og skorað Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hátíð ljóss og friðar er handan við hornið og í Tungu í Neskaupstað er nánast allt tilbúið. „Ég á bara eftir að ryksuga,“ segir Unnur Bjarna- dóttir, sem fæddist í húsinu 1933 og hefur búið í því síðan, í liðlega 81 ár, en á jóladag halda hún og eiginmað- urinn Ásgeir Lárusson upp á 60 ára brúðkaupsafmæli. Að sjálfsögðu í Tungu sem hefur verið þeirra sam- eiginlega heimili alla tíð. Frá því þau hófu búskap hafa þau skreytt húsið fyrir jólin. „Fyrstu jólin var lítill peningur til en við reyndum að gera eins og við gát- um,“ segir Ásgeir, sem er á tíræð- isaldri og nýbúinn að koma skreyt- ingunum fyrir með aðstoð eiginkonunnar, sem sér alfarið um gluggaskreytingarnar innanhúss og ýmislegt annað. „Ég get haldið á ýmsu og eitthvað klifrað, held í spotta fyrir manninn þegar við er- um komin út fyrir hússins dyr,“ seg- ir Unnur. „Hún er eitilhörð og dug- leg,“ segir Ásgeir eða Geiri Lár í Tungu eins og hann er kallaður. Mikil vinna Ásgeir segir að skreytingarnar taki sinn tíma. „Þetta er heilmikið verk,“ segir hann og bætir við að hann fái ljósin að mestu í Neskaup- stað og fylli svo á þegar hann eigi leið um Reykjavík. „Það fara þó- nokkuð margir dagar í þetta og ég tala ekki um þegar maður er orðinn svona fullorðinn.“ Áréttar að hann fari ekki upp í eins háa stiga og áður og sæti lagi þegar veður sé gott. „Þetta tekst samt einhvern veginn alltaf og lukkast ágætlega. Og ég hef aldrei orðið fyrir skaða.“ Foreldrar Unnar bjuggu í Mið- firði og fluttu litla húsið þaðan í Neskaupstað 1923, en Ásgeir byggði svo við það og yfir það. „Húsið hét Hóll í Miðfirði en hér var sandmelur, sem myndaði tungu og þess vegna var húsið nefnt Tunga,“ segir Unnur. „Hér hefur alltaf verið góður andi og ég hef aldrei getað hugsað mér að flytja.“ Þegar Ásgeir var 75 ára hætti hann að vinna en hann var fulltrúi bæjarfógeta í Neskaupstað í 40 ár auk þess sem hann var fréttaritari Morgunblaðsins í 15 ár. „Það var gríðarlega mikið að gera hérna þeg- ar norsk-íslenska síldin var við dyrnar hjá okkur,“ rifjar hann upp með glampa í augum. „Þá lágu 70 til 80 skip inni á firðinum og því nóg að gera hjá mér fyrir utan fasta- starfið.“ Hann ekur um á 14 ára gömlum Subaru og er ánægður með gripinn. „Hann hefur aldrei klikkað. Það eina sem ég hef þurft að gera er að skipta einu sinni um geymi.“ Eiga bara eftir að ryksuga  Hafa skreytt Tungu í Neskaup- stað saman í 60 ár Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Skreytingar Unnur Bjarnadóttir og Ásgeir Lárusson hafa komið upp öllum skreytingum inni og úti. Upplýstur skógarlundur Tunga er vel skreytt að vanda á jólum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.