Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1997, Side 111

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1997, Side 111
RITDÓMAR í fáum ljóða bókarinnar er vísað berum orðum til kunnuglegra kennileita eða persóna, aftur á móti eru margvísleg nöfn jurta tilgreind (sum þeirra hugvits- samleg smíð höfundar), og ekki er skort- ur á dýrum, húsmunum og búshlutum í ljóðunum. Gyrðir Elíasson hefur ekki valið sér að yrkja um ys og þys aldarinnar, ærandi popp- og tæknimenningu okkar tíma, ljóð hans eru ekki andsvar við atburðum líðandi stundar, heldur hverfast þau um hljóðláta hugarveröld einstaklings, beyg hans og ástarþrá, vonbrigði, söknuð og gleði. Ljóðin eru ort til hugarhægðar, huggunar. Skáldið fylgist, oft í svefhi eða vökudraumi, með föstum gangi dægr- anna, dagrenningu, sólsetri, það finnur minningar vakna, það „dreymir í leiðslu lífsins draum“. í svefnljóði, sem kallast Svefninti og lífið, segir í niðurlagsorðum: „Ekki er mark að draumum,“ hugsar hann í svefhinum, en þessi draumur er einsog lífið: Hann rætist um leið og hann er dreymdur Galdur Ekkert skáld hér á landi hefur nú undan- farin ár verið eins kennt við galdur í rit- dómum og umsögnum sem Gyrðir (honum hefur að því leyti verið líkt við skáld fornaldar, sem voru: seiðkarlar, völvur, spámenn). Ég er ekki viss um, að Gyrði þyki þessi ldisjukennda stílgald- urseinkunn gagnrýnenda góð. Samt er eins og hann treysti um of á töframátt í ljóðagerð sinni, telji að stemmningar, þó snjallar séu, og myndir einar sér - án bragíþróttar - hafi í sér nægan mátt til að bera uppi heilt ljóðasafn. Gyrðir Elíasson er þjóðlegur höfund- ur, margt í list hans tengist sögu og nátt- úru íslands og er það vel, en að þessu sinni lýsir hann árstíð sem hið ytra er framandleg skynjun íslendings, Indian Summer. Sú birta er helst einkennir indíánasumar, innan dyra sem utan, er dauflýsi, móska í ýmislegri mynd eða rökkurhúm. Á nokkrum stöðum er beinlínis vikið að móðusýn: „Daggar- móða fellur á/ gleraugun hans, en hann/les áffam“, segir í ljóðinu Eldritið. „f móðu glerjanna/ sígur sólarbátur/ að landi“ (Milli fjalls ogfjöru). Og í móðu vindlareyks breytast kvistir í viði „hægt í stjörnur,/ daufstirni á/ himin-/ gólfinu“ (/ vinnustofunni). Á hinn bóginn er sól- skinið í ljóðum bókarinnar oft undarlega bjart, ofurbirta. Nú er ekki leyfilegt að gera aðrar kröf- ur til skálda en að þau séu trú sjálfum sér, og það er Gyrðir sannarlega. Hann lýsir veröld sinni með næmum augum fagur- kera og er að jafnaði smekkvís í skáldskap sínum. Hins vegar er stundum engu lík- ara en að hálf-vélvirk „listræn tilfinning" taki af honum ráðin, ljóðin fari næstum að yrkja sig sjálf. Dæmi um þetta er lita- notkun, myndsýn hans sums staðar: græni lampinn í græna húsinu - skugginn af rauða timburhúsinu - í dumbungi tveir menn í dökkbláum peysum - glampar á stál við bláa húsið - á klöppum leikur maður á harmóniku í kvöldlogni - konur standa á trébryggju og veifa hvítum nærfötum í logni - lækn- ir á hvítum slopp sest í gula og græna brekku - hvíthærður strákur með svartar gleraugnaumgjarðir - tungl yfir bláu þaki á vornótt — ljós silast ofan hlíðina einsog gömul kona beri stormlukt í logn- inu - frammi á klöppum kona með strá- hatt - kona úr gula húsinu hengir upp dökkan kjól - gul hús í túni sem enn er grænt - tungl birtist einsog lukt bakvið kínverskan skerm ... Hámarki nær „listræn tilfinning“ af þessu tagi í ljóði, sem þó er sniðuglega saman settur mánudagsblús og nefnist Einlitur dagur (annað blátt ljóð í sama dúr er í bókinni og heitir Einlit nótt): TMM 1997:3 109
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.