Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 16
HANNES PÉTURSSON eitthvað eftir Hertz. Hann var formsnillingur, og ættu þeir sem leita að fyrirmyndum ýmissa bragarhátta í verkum íslenzkra skálda á 19. öld að glugga í rit hans. Til dæmis er hátturinn á ljóði Steingríms Thorsteinssonar í dalnum sá sami og á ljóði eftir Hertz úr Gamle melodier („Jeg gik mig ud en Sommerdag at höre“), og íyrr hafði Jón Thoroddsen ort Draum undir hætti sem kemur fyrir í einu þekktasta leikriti Henriks Hertz, Svend Dyrings Hus (sömdu 1836, „Hr. Peder kasted’ Runer over Spange“). En hvernig sem í þessu kann nú að liggja mun öruggt, að íslenzk skáld á seinni tímum hafi oftast nær fundið sér nýja bragarhætti í bókmenntum Norðurlandamanna, ekki þurft lengra að leita. Mikill höfundur fullyrti, hef ég heyrt, að Jónas Hallgrímsson kynni ítölsku með sérstökum ágætum, hefði lesið Dante, Petrarca og fleiri menn; rökin voru þau, að hann orti terzínur, stönzur og sonnettur. Það gleymdist alveg, að þeir bragarhættir blöstu við Jónasi í meðförum skandínavískra höfuðskálda. Af leikritum Henriks Hertz varð eitt víðfrægast: langur, ljóðrænn einþátt- ungur í bundnu máli, Kong Renés Datter. Verkinu er fúndinn staður í Suður-Frakklandi (Provence) á miðri 15. öld, þegar enn voru riddaratímar. Þar segir einkum frá ungri stúlku sem er blind, en öðlast að lokum heila sjón. I rómuðu ritgerðasafni, Gudernes Tungemaal (1911), hlóð Hans Brix á leikritið lofi þess eðlis sem aðeins hlotnast snilldarverkum, og svipað hafði Georg Brandes gert í ritsmíð um Hertz árið 1868. Kong Renés Datter var frumflutt í Konunglega leikhúsinu í Kaupmanna- höfn 5. apríl 1845, en gefið út tvívegis það ár og birtist síðan aftur og aftur á prenti í Danmörku næstu áratugi (10. prentun 1914). Verkið hóf þegar sigurför um Evrópulönd og Norður-Ameríku. Einnig nýtti Tsjækovskí sér texta þess í óperu sem ber nafn aðalpersónunnar, Jolanthe. Drepið er hér á þetta verk Henriks Hertz framar öðru til mótvægis því, hve Gröndal fer ljótum orðum um höfundinn í ljóðabréfi sínu 1860, en líka til þess að minna á að Hertz skóp fleira sem íslendingum kemur við en sviðspersónuna Skalholt: KongRenésDatter hreif nefhilega Jónas Hallgríms- son umfram önnur skáldverk danskrar tungu. í síðasta sendibréfi sínu (ef eklci eru taldar tvær stuttar orðsendingar), dagsettu í Kaupmannahöfn 21. apríl 1845, skrifar hann Þórði Jónassyni yfirdómara í Reykjavík: „„Kong Renés Datter“ eftir Hertz verð ég að senda þér með einhvurju móti undir eins og það kver kemur úr prentun; þessi leikur (romantisk drama i 1 akt) er það yndislegasta sem ég veit til hafi oltið upp úr Dönum.“7 Jónas var semsé í Konunglega leikhúsinu á einni fyrstu sýningu einþátt- ungsins nýja eftir Hertz. Hins vegar dó hann nokkrum vikum síðar, og því kom aldrei til þess að hann sendi Þórði vini sínum leikritið nýprentað. Auðskilið er eftir lestur skáldritsins fræga um hina skapandi innri sjón, 6 TMM 1998:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.