Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 126

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 126
RITDÓMAR með gróteskri uppbyggingu. Uppbygg- ingin er aftur gerð grótesk, eða bundin jörðinni, með hringlaga tíma (tíma náttúrunnar), óræðri sjálfsmynd og ófrjálsri hvað varðar formgerðir og við- tökur. Það sem máli skiptir hér er til- hneigingin til að bregðast hefðbundnum væntingum viðtakenda og virðist mér verkið markvisst byggt upp með það fyrir augum. „hver er þessi ég sem aðrir sjá?“ í fyrsta kafla bókarinnar The Female Grotesque: Risks, Excess and Modernity, álítur Mary Russo að kvenleg gróteska einkennist oft og einatt af álíka uppbygg- ingu og er á Ertu. Hin gróteska kven- mynd ákvarðast fyrst og fremst af líkama sínum, og allt það sem sá líkami setur fram einkennist síðan af gróteskri stöðu hennar í því samfélagslega umhverfi sem hún lifir og hrærist í. Allt það sem konan lætur frá sér fara markast af líkama hennar og er lesið sem slíkt. Við hljótum að geta fallist á að það skipti sköpum hvort feitur eða grannur kvenmaður ger- ist klámfenginn í tali. Til að bregða betri birtu á þessa leiðarkenningu sína tekur hún fyrir nærtækt dæmi um mismun- andi menningarlegan lestur á feitum og grönnum kvenlíkömum. Á sjöunda ára- tugnum fór líkamslag örmjórra stúlkna að vísa til hugmynda um kvenfrelsi og þá einkum frelsis þeirra kvenna sem vígreif- ar skunduðu út úr eldhúsinu og hlutu, samkvæmt öllum kokkabókum, að grennast á þeirri leið. Nú til dags er ör- mjór kvenlíkami aftur á móti stimplaður sem samfélagslegt sjúkdómseinkenni, eða lystarstol, og er gjarnan álitinn und- irokaður af karllegum hugmyndum um æskilega kvenmynd. Samskonar tví- ræðni hefur einkennt lestur á feitum kvenlíkömum. Til skamms tíma var ofát kvenna talið tákn um sálfræðilega bæl- ingu og samfélagslegt framkvæmdaleysi, en um þessar mundir hlýtur það að telj- ast býsna róttækt ef kvenmaður ákveður að hlaupa í spik. Kenningar Russo um gróteskar kvenmyndir grundvallast á slíkum menningarbundnum „lestri“ á kvenlíkamann, og reyndar á allri sam- félagslegri hegðun hans. Hún álítur í framhaldi af því að konan lifi í stöðugri hættu við að „falla“ af stalli menningar- legrar upphafningar sem ásættanleg kvenmynd. Óskaplega lítið þarf út af að bera til þess að konan falli og verði að gróteskri kvenmynd, og getur hún þá jafnan sjálfri sér um kennt líkt og átti við um Evu í Edengarði forðum daga. Stundum nægir að fitna dálítið eða grennast örlítið of mikið. Sú kvenmynd sem heldur dagbókina í Ertu, einkennist af því að falla hvernig sem á hana er litið. Það er nánast sama hvaða nálgun eða teoría er notuð til að henda reiður á henni, hún sleppur alltaf undan eða fellur, líkt og hin auðtrúa Eva á sínum tíma, út frá gildum viðkomandi hugmyndafræði. Samkvæmt Russo er eitt megineinkennið á kvenlegri grótesku einmitt þessi stöðuga hætta sem vofir yfir kvenlíkamanum, konan á það stöðugt á hættu að verða upppvís að því að hafa til að bera einkenni sem eru á skjön við ríkjandi kvenmyndir hverju sinni. Með öðrum orðum felst kvenleg gróteska í því að menningin les eða túlk- ar líkama konunnar og þar sem skil- greiningarnar breytast frá tíma til tíma er líkami konunnar aldrei „réttur“. Kvenlíkaminn er alltaf við það að falla úr háloftum upphafningarinnar, hættir að passa inn í skilgreiningar, og hittir þá fyrir hina grótesku móðurjörð sem vel að merkja hefur oft og einatt verið lögð að jöfnu við gróteskar kvenmyndir eins og skessur. Menningarleg staða konunn- ar hvílir þannig á fúllkomlega gróteskum forsendum. Kvenmyndin í Ertu skilgreinir sjálfa sig sem læsilegan líkama frá fyrstu síðu. Hún er stöðugt í sjónmáli annarra sem túlka athafnir hennar og orðræðu út frá sköpulaginu: 116 TMM 1998:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.