Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 30
Skattar, gjöld og b
Staðgreiðsla
Staðgreiðsla skatta 2015 er reiknuð í þremur þrepum.
Útreikningur fyrir mánaðartekjur er sem hér segir:
Af fyrstu 309.140 kr. ............................... 37,30%
Af næstu 527.264 kr. .............................. 39,74%
Af fjárhæð umfram836.404 kr. ............ 46,24%
Frádráttur vegna lífeyrisréttinda
Heimill frádráttur vegna greiðslu launþega til almennra
lífeyrisréttinda er 4% af iðgjaldsstofni. Frádráttur vegna
séreignarsparnaðar er 4%.
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er 50.902 kr. á mánuði.
Skattlagning barna
Börn fædd 2000 og síðar greiða 6% af tekjum
yfir 180.000 kr.
Laun frá fleiri en einum launa-
greiðanda
Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa
að gæta þess að rétt hlutfall sé notað við útreikning á stað-
greiðslu. Fari laun yfir 309.140 kr. hjá einum launagreiðanda
þarf að reikna 39,74% staðgreiðslu af launum hjá öðrum
launagreiðendum, eða eftir atvikum 46,24%.
Tryggingagjald
Tryggingagjald er 7,49%.
Fjársýsluskattur
Fjársýsluskattur er 5,5%.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%.
Framtal og álagning
Barnabætur
Barnabætur með fyrsta barni hjóna eru 194.081 kr. ogmeð
hverju barni umfram eitt 231.019 kr. Með fyrsta barni
einstæðs foreldris eru þær 323.253 kr. ogmeð hverju barni
umfram eitt 331.593 kr.
Skerðingarmörk vegna tekna eru 4.800.000 kr. hjá hjónum
og 2.400.000 kr. hjá einstæðu foreldri. Bæturnar skerðast um
4% af tekjum umfram þessi mörk fyrir eitt barn, 6% fyrir tvö
börn og 8% ef börnin eru þrjú eða fleiri.
Viðbótargreiðsla með hverju barni yngra en 7 ára er 115.825
kr. og skerðist um 4% af tekjum umfram ofangreindmörk.
Vaxtabætur
Hámark vaxtabóta er 400.000 kr. fyrir einhleyping,
500.000 kr. fyrir einstætt foreldri og 600.000 kr.
fyrir hjón/sambúðarfólk.
Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta geta ekki orðið hærri
en 7% af eftirstöðvum skulda vegna íbúðarkaupa og að
hámarki 800.000 kr. hjá einhleypingi, 1.000.000 kr. hjá