Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 28
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Síðasta ár bar mikið á neikvæðum fréttum úr heilbrigðisgeiranum. Fjölmiðlar sögðu m.a. frá biluðum tækjum, vöntun á nýjustu lyfjum og vaxandi álagi á starfsfólki. Áfram virtust heilbrigðisstarfs- menn sækja í störf í öðrum löndum og loks í októberlok að læknar hófu verkfallsaðgerðir. Þrátt fyrir allt þetta segir Páll Matthíasson, forstjóri Landspít- alans, að í heild hafi árið verið gott fyrir spítalann og margt sem horfi til betri vegar. „Þannig fékk spít- alinn inn nýtt fé til rekstrar árið 2014, að ég held í fyrsta sinn frá aldamótum. Þá var einnig áfram gefið allverulega inn í fé til tækja- kaupa. Í raun má segja að á árinu hafi skapast möguleiki á ákveðinni viðspyrnu.“ Bæta umgjörðina Viðbótarfjármagninu sem spít- alinn fékk hefur m.a. verið varið til að bæta starfsskilyrði. Nefnir Páll bætta aðstöðu í búningsher- bergjum og endurnýjun á fatnaði. „Við settum einnig í forgang að bæta mötuneyti spítalans og að- gengi starfsfólks að mat á öllum tímum sólarhringsins. Fé var einn- ig varið í samgöngustyrki og bætta aðstöðu fyrir hjólafólk en fyrir það fékk spítalinn viðurkenningu Reykjavíkurborgar og Hjóla- færni.“ Aukin áhersla á bættan aðbún- að er liður í að bæta starfsumhverfi spítalans. Páll segir launamálin að- eins einn hluta af því sem dregur að eða fælir frá starfsmenn. Starfs- ánægja mótist t.d. af því hvort læknar og hjúkrunarfólk hafi gott aðgengi að tækjum, og að vaktir séu þannig skipulagðar að álag verði ekki óhóflegt og óvænt útköll í lágmarki. Viðeigandi húsakostur skipti líka máli. „Og þar sjáum við líka ákveðna viðspyrnu því að í fjárlögum ársins 2015 er gert ráð fyrir allverulegu fjármagni til að undirbúa áfram byggingarverkefni á lóð Landspítalans með það fyrir augum að árið 2021 verði risinn meðferðarkjarni, rannsóknakjarni og sjúkrahótel, auk húss heilbrigð- isvísindasviðs háskólans.“ Öflugt vísindastarf laðar að Páll neitar því ekki að Land- spítalinn eigi erfitt með að vera samkeppnisfær í launum. Kjörin geti verið betri bæði erlendis og í einkarekstri. Á móti kemur að á spítalanum eru flóknustu og mest krefjandi verkefnin og öflugt vís- indastarf, en hvort tveggja ætti að draga að öflugt fólk. Páll hvetur samningsaðila í kjaradeilu lækna til að ná sanngjarnri niðurstöðu sem skapi frið. Í framhaldinu þurfi svo að vinna að því að endurskoða launastrúktúr heilbrigðiskerfisins því þar vilji oft koma í ljós mis- ræmi milli umbunar, álags og af- kasta. „Kerfið þarf að umbuna betur fyrir flóknustu og erfiðustu starf- semina. Í dag er raunin sú að skurðlæknir getur haft mun meira upp úr krafsinu með því að fjar- lægja æðahnúta á eigin stofu úti í bæ frekar en að fjarlægja lunga eða nýra inni á spítalanum, sem er samt margfalt flóknara og áhættu- samara verkefni. Sjúkrahúslæknar á bakvöktum eru á þannig taxta að ef þeir þurfa fyrirvaralaust að koma á spítalann og bjarga manns- lífum dugar tímakaupið oft ekki fyrir barnapíu.“ Fé fylgi verkefnum Páll segir að þótt rekstri spít- alans sé bjargað fyrir horn með auknum fjárframlögum þá sé nauð- synlegt, sérstaklega í ljósi þess að álag og afköst Landspítalans vaxi ár frá ári, að finna nýja leið til að fjármagna spítalann. „Sem dæmi jókst álag á spítalann á síðasta ári um 1-3,5% eftir því hvaða starfsemi er skoðuð, en á sama tíma jókst kostnaðurinn af rekstrinum um 0,4% og framleiðnin því aukist sem nemur mismuninum. Það er frábær árangur en virkar samt eins og við séum ekki að standa okkur – af því að rekstrarhalli varð og við erum A-hluta ríkisstofnun á föstum fjár- lögum.“ Páll segir slíkt módel fastra fjárlaga henta illa þar sem um sé að ræða heilbrigðisþjónustu; þjón- ustu sem fólk telji sig eiga rétt á og sem ekki sé auðvelt að skerða. Flestar þjóðir Evrópu hafi farið þá leið að tengja hluta af fjármögnun spítala afköstum – þannig hækki fjárframlögin ef t.d. skurð- aðgerðum fjölgi – innan vel skil- greindra marka. „Við vonumst til þess að geta, í samvinnu við Sjúkratryggingar og velferð- arráðuneytið stigið á árinu fyrstu skref í að nota svokallað DRG-kerfi til að bæta fjármögnun Landspít- ala, þannig að fé fylgi verkefnum, á sama tíma og „kaupandinn“ eða stjórnvöld hafi meiri stjórn á út- gjöldum.“ Lágt hlutfall til heilbrigðismála Páll leggur síðan áherslu á að það þurfi að vera langtímamarkmið að auka það fé sem rennur til heil- brigðisþjónustunnar. Ísland ver 8,9% af vergri þjóðarframleiðslu til heilbrigðismála en hlutfallið lækk- aði síðustu árin fram til 2014. Þetta er ekki mikið í samanburði við miklu hærri tölur í nágrannalönd- unum, eða allt frá 9,3% í Noregi, með tvöfalt hærri þjóðartekjur, upp í 12,3% í Hollandi. Þetta hlut- fall er því of lágt á Íslandi að mati Páls. „Á sama tíma og það er verk- efni starfsfólks heilbrigðisþjónust- unnar að veita sem besta þjónustu á sem hagkvæmastan hátt þá hlýt- ur það að verða verkefni stjórnmál- anna að finna leiðir til að veita meira fé til heilbrigðisþjónust- unnar, til að snúa við þeirri lang- tíma undirfjármögnun sem er rót vanda heilbrigðiskerfisins.“ Loks möguleiki á viðspyrnu  Þarf niðurstöðu í launamálum til að skapa frið, en í framhaldinu endurskoða launastrúktúr heilbrigðiskerfisins. Morgunblaðið/Golli Vaktin Læknar og annað starfsfólk á bráðamóttöku. Ástand heilbrigð- ismála hefur verið mjög í deiglunni og leynast áskoranirnar víða. Samhengi „Við vonumst til þess að geta stigið á árinu fyrstu skref í að nota svokallað DRG-kerfi, þannig að fé fylgi verkefnum,“ segir Páll Matthíasson. 28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015 0 kr. útborgun Langtímaleiga Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun, tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald. Losnaðu við vesenið með langtímaleigu Kynntu þér málið í síma 591-4000 Á R N A S Y N IR Á síðasta ári bar nokkuð á um- fjöllun um kostnaðinn af nýjum lyfjum og dýrum meðferðum við sjaldgæfum sjúkdómum. Páll seg- ir eitt af verkefnunum á þessu ári, og þeim næstu, að ræða vandlega hvort og hvernig á að forgangs- raða í þessum efnum. Mörg þeirra nýju lyfja sem komið hafa á mark- að á undanförnum árum eru geysidýr og óhjákvæmilegt að upp komi erfið álitamál. „Til eru lyf þar sem ársskammt- urinn kostar 110 milljónir, eða álíka og allar heilaskurðaðgerðir spítalans á einu ári. Hvaða ákvörðun á að taka þegar þarf að ráðstafa takmörkuðum fjár- munum? Er réttlætanlegt að kaupa lyf fyrir einn sjúkling fyrir svona háa upphæð ef þarf að taka fjármunina annars staðar frá? Við svo erfiðum spurningum eru ekki einhlít svör, en það er mikilvægt að opin og málefnaleg umræða um gildi og forgangsröðun eigi sér stað á milli fagfólks, stjórn- valda og almennings, því þetta er ekki ákvörðun sem heilbrigð- isstarfsfólk getur eitt setið uppi með.“ Þarf umræðu um erfiðar ákvarðanir Morgunblaðið/Sverrir Pillur Sum nýjustu lyfin geta verið óhemjudýr. Þarf að velja og hafna. FRAMUNDAN 2015 JANÚAR FEBRÚAR MARS APRÍL MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚST SEPTEMBER OKTÓBER NÓVEMBER DESEMBER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.