Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
Gleðilegt ár
Við þökkum viðskiptin á liðnum
árum og hlökkum til að hitta
ykkur á nýju ári.
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
p.s. útsalan er byjuð
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera
á sterum án árangus. Reynt
var að skipta um fæði sem bar
heldur ekki árangur. Eina sem
hefur dugað er Polarolje fyrir
hunda. Eftir að hann byrjaði að
taka Polarolje fyrir hunda hefur
heilsa hans tekið stakkaskiptum.
Einkennin eru horfin og hann er
laus við kláðann og feldurinn
orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
Sími 698 7999 og 699 7887
Náttúruolía sem
hundar elska
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
NIKITA
hundaolía
Selolía fyrir
hunda
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Þetta var býsna gott, það er ekki
hægt að neita því, og báturinn var
eiginlega hálfur í kafi á landleið-
inni,“ segir Elís Pétur Elísson á
Breiðadalsvík, en skömmu fyrir jól
komu hann og Björn Hermannsson
úr línuróðri með 6,3 tonn. Það
væri í sjálfu sér ekki í frásögur
færandi nema vegna þess að þeir
félagarnir róa á Ella P, sem er
skráður aðeins 7,5 tonn að stærð.
Elís viðurkennir að þetta hafi
verið „dúndur róður“ en honum er
ofar í huga að veturinn hefur til
þessa verið líflegri í byggðalaginu
heldur en í langan tíma. Hann seg-
ist vona að botninum sé náð og
bjartari tímar séu framundan á
Breiðdalsvík.
Elís segir að mjög vel hafi
fiskast í haust þegar gefið hafi á
sjó og það sé ekki tilviljun að stór
hluti flotans sæki austur fyrir land
á þessum tíma. Eftir ágætt veður í
október og nóvember hafi tíðarfar
hins vegar verið sérlega erfitt fyr-
ir minni bátana í desember. Þeir á
„Ellanum“ hafi aðeins tvívegis
komist á sjó í mánuðinum, ekki
hafi verið möguleiki að róa oftar.
Fiskur á nánast hverjum krók
Í mettúrnum á bátnum skömmu
fyrir jól hafi verið fiskur á nánast
hverjum krók og góður fiskur þeg-
ar dýpið var um og yfir 100 metr-
ar. „Við fengum 220 kíló á bala,
það er gott en ekkert svakalegt.
Þetta þætti ekki tiltökumál á
beitningavélabátunum sem oft hafa
gert rosagóða róðra á haustin
hérna fyrir austan,“ segir Elís og
bætir því við að fiskurinn hafi ver-
ið grynnra í haust heldur en áður.
Fiskurinn er unninn í fisk-
vinnslu sem Ísfiskur í Kópavogi
rekur nú á Breiðdalsvík. Sjálfur
rekur Elís fyrirtækið Goðaborg
sem sér um löndunarþjónustu,
slægingu, beitingu, uppstokkun,
þjónustu við bátana og fiskmark-
aðinn á staðnum. Átta manns
vinna hjá Goðaborg og sami fjöldi
hjá Ísfiski. Elís segir að samstarfið
hafi gengið vel.
Hyggjast kaupa stærri
bát og aflaheimildir
Hann segir að þeir sem standi
að útgerð Ella P séu að undirbúa
kaup á stærri bát og aflaheim-
ildum, en nú sé mikið leigt af
heimildum. Í haust hafa þrír bátar
lagt upp hjá Ísfiski á Breiðdalsvík,
auk aðkomubáta sem hafa landað
þar. Yfir strandveiðitímann á
sumrin leggja 14-15 bátar upp hjá
Ísfiski.
Í Breiðdalshreppi búa um 180
manns, flestir á Breiðdalsvík, og
er hreppurinn hluti af verkefni
Byggðastofnunar sem nefnist
„brothættar byggðir“. Stofnunin
hefur lagt staðnum til 150 tonna
viðbótaraflamark vegna þessa
verkefnis auk 90 tonna byggða-
kvóta. Elís segir að þetta skipti
miklu máli, en enn vanti þó meira
upp á til að góð kjölfesta fáist í
veiðar og vinnslu og kaupi menn
aflaheimildir skerði það almennan
byggðakvótann. Hann rifjar upp
að á sínum tíma hafi tveir skuttog-
arar verið gerðir út frá staðnum
með drjúgar heimildir, en þær séu
á bak og burt.
Miðað við allt önnur umsvif
Á Breiðdalsvík er 2.100 fermetra
fiskvinnsluhús og var það miðað
við allt önnur og meiri umsvif
heldur en nú eru á staðnum. Því
hefur húsið verið hólfað niður og
er fiskvinnslan í um 800 fermetra
nýstandsettu rými. Þar er einnig
nýr ráðstefnusalur, trésmíðaverk-
stæði og bátaverkstæði. Byggða-
stofnun á húsnæðið og segir Elís
að stofnunin eigi þakkir skildar
fyrir sína aðkomu að breytingum á
húsinu.
„Þetta er allt að eflast hjá okkur
og nú er að færast líf í fiskvinnslu-
húsið,“ segir Elís. „Sameiginlegt
átak heimamanna, fyrirtækja og
stofnana hefur skilað því að mér
finnst flest vera á uppleið hérna.
Breytingin á húsinu á mikinn þátt
í þessu og ég held að menn hafi
áttað sig á því að það varð að
byrja á einhverju raunhæfu í at-
vinnuuppbyggingunni. Menn geta
síðan hnoðað við það þegar þeir
verða komnir með einhverjar afla-
heimildir,“ segir Elís.
Öflug ferðaþjónusta
Hann bætir því að auk útgerðar
og fiskvinnslu hafi ferðaþjónusta
eflst mjög í hreppnum. Þar séu nú
um 100 gistirými og í fyrrasumar
hafi ferðaþjónustubátur verið tek-
inn í notkun og hafi hann verið
vinsæl afþreying. Fleira sé í bí-
gerð og hugur í mönnum á þessu
sviði eins og fleirum.
„Hálfur í kafi á landleiðinni“
Félagarnir á smábátnum Ella P með 6,3 tonn í línuróðri Ekki tilviljun að stór hluti flotans sækir
austur fyrir land Hefur trú á bjartari tímum framundan á Breiðdalsvík Átak í uppbyggingu
Ljósmynd/Helga Arnardóttir
Dúndurróður Félagarnir Elís Pétur Elísson og Björn Hermannsson á Ella P koma til hafnar með metafla og eins og sjá má er báturinn vel siginn.
Breytingar Elís Pétur Elísson, út-
gerðarmaður, (t.h.) og Friðrik
Árnason, hótelstjóri á Breiðdalsvík.