Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Drög aðnýrriþings- ályktunartillögu um framkvæmda- áætlun í mál- efnum innflytj- enda hefur verið sett inn á vef vel- ferðarráðuneytisins. For- senda áætlunarinnar er að ná fram því markmiði laga um málefni innflytjenda „að stuðla að samfélagi þar sem allir geta verið virkir þátt- takendur óháð þjóðerni og uppruna“. Þar er eins og fram kom í frétt í Morgunblaðinu á gamlársdag gert ráð fyrir að vægi móðurmálskennslu verði aukið hjá nemendum í leik-, grunn- og framhalds- skólum og um leið er talað um að bæta þurfi íslensku- kennslu fyrir innflytjendur. Ástæður fyrir þingsálykt- unartillögunni eru marg- víslegar. „Íslenskt samfélag hefur þróast ört síðustu ára- tugi, 2,6% þjóðarinnar voru með erlent ríkisfang árið 2000 en 6,7% árið 2013,“ seg- ir í drögunum. „Sé önnur kynslóð innflytjenda talin með er hlutfallið 9,1% af þjóðinni. Hlutfall barna af erlendum uppruna hefur einnig hækkað töluvert frá aldamótum. Fjöldi leik- og grunnskólabarna með erlent ríkisfang hefur sjöfaldast. Nú hafa 11% leikskólabarna og 6% grunnskólabarna ann- að móðurmál en íslensku. Talið er að innflytjendur hefji síður framhalds- skólanám en önnur ung- menni og að brotthvarf nem- enda af erlendum uppruna sé einnig mikið í framhalds- skólum. Á vinnumarkaði eru innflytjendur 8% af vinnuafli landsins en atvinnuleysi meðal innflytjenda mælist meira en almennt gerist og virðist sem ekki dragi jafn- hratt úr atvinnuleysi hjá þeim og öðrum á atvinnu- leysisskrá.“ Kennsla í móðurmálinu er mikilvæg. Með móðurmálinu myndast tengsl við rætur og uppruna, sem getur orðið kjölfesta í lífinu. Staðgóð íslenskukunnátta er lykilforsenda fyrir því að innflytjendur og börn þeirra tengist og nái árangri í ís- lensku samfélagi. Sérstaka áherslu þarf að leggja á að önnur kynslóð innflytjenda sitji ekki eftir. Það getur munað um það þegar ís- lenska er ekki töluð inni á heimilinu. Innflytjendur rífa sig oft upp með rótum til að leita betra lífs og bera þá ekki síst hagsmuni barna sinna fyrir brjósti. Iðulega skapast hins vegar vandamál þegar önnur kynslóð inn- flytjenda nýtur ekki sömu tækifæra og jafnaldrar hennar. Reynslan erlendis sýnir að njóti önnur kynslóð innflytjenda hvorki jafnra tækifæra á við aðra í menntakerfinu né á vinnu- markaði sé það ávísun á erf- iðleika. Ísland er ekki ónæmt fyrir þessum vanda. Hér hefur hann komið fram í því að mun færri börn af erlendum uppruna fara í framhalds- skóla miðað við það sem al- mennt gerist. Í drögunum segir að árið 2012 hafi 80% barna af erlendum uppruna farið í framhaldsskóla strax eftir grunnskóla miðað við 98% almennt. Segir einnig að stefnt sé á að þessi munur verði horfinn árið 2018. Straumur innflytjenda til Íslands hófst mun síðar en í löndunum í kringum okkur. Í Þýskalandi var lengi litið á innflytjendur, sem gesti á vinnumarkaði. Til marks um það var að börn þeirra fengu ekki þýskan ríkisborg- ararétt. Þessir gestir höfðu hins vegar ekki í hyggju að fara og börn þeirra áttu í mörgum tilfellum hvorki rætur í landi foreldra sinna né í fæðingarlandi sínu. Mörg þeirra urðu útlend- ingar alls staðar. Margvísleg vandamál hafa skapast í innflytjendamálum í Evrópu, sem hægt er að læra af og koma í veg fyrir. Það ætti að veita Íslend- ingum forskot að vera eftir á í þessum efnum. Sú þróun, sem hér er að verða í skóla- kerfinu og á vinnumarkaði og nefnd er hér fyrir ofan, er til marks um að það forskot hafi ekki verið nýtt sem skyldi. Tungumálakunnátta leysir ekki öll þessi vandamál, en vegur þyngra en flest annað. Án tungumálsins lokast margar dyr. Skortur á ís- lenskukunnáttu getur staðið í vegi fyrir menntun og tak- markað tækifæri á vinnu- markaði. Hún getur skipt sköpum um það hvort nýir íbúar á Íslandi verða áhorf- endur eða þátttakendur. Íslenskukunnátta getur skipt sköpum um það hvort nýir íbúar á Íslandi verða áhorfendur eða þátttakendur } Tungumál og tækifæri F yrir hálfum mánuði skrifaði ég pistil undir fyrirsögninni „Við er- um hvít þjóð“, sem setti ákveðin spurningarmerki við hvort ís- lenskt samfélag væri byggt á „kristnum gildum“ og hver þau yfirhöfuð væru. Viðbrögðin við henni voru að megninu til já- kvæð. Í Morgunblaði gærdagsins var í að- sendri grein vikið að þessari grein minni á gagnrýninn hátt með beinum hætti, og ann- arri, að ég tel, með óbeinum hætti. Til að leiðrétta þann misskilning sem virðist hafa komið fram í þessum skrifum, þá er rétt að hafa eitt á hreinu. Mér er slétt sama um hvort grunnskólabörn fara í kirkjuheimsóknir á skólatíma eða ekki. Persónan Jesús Kr. Jósepsson var, hvort sem hann var skáldsagnagóðmenni eins og Atticus Finch í sögu Harper Lee, To Kill a Mockingbird, eða góðmenni af holdi og blóði eins og við hin, augljóslega mikið góðmenni. Heim- spekikenningar hans um mannvirðingu, ást og kærleik eru mjög áhugaverðar og til eftirbreytni. Ef hann væri uppi í dag væri hann örugglega frábær náungi, umhverf- ismeðvitaður, snauður raftónlistarmaður sem boðaði náungakærleik, umhverfisvernd og frjálslyndi. Eftirfarandi er hins vegar að öllum líkindum ekki hið rétta um manninn: Hann var eingetinn, gat gengið á vatni, gat breytt vatni í vín. Hann var kannski trésmiður, en örugglega ekki bruggari – gat ekki margfaldað mat og reis ekki upp frá dauðum, þó svo hann kunni að hafa verið í hressilegu dái eftir vistina á krossinum. Það dregur á engan hátt úr því hversu góður boð- skapur mannsins um kærleik var. Kristin kirkja málar sig út í horn þegar hún reynir, í upplýstu og vísindalegu samfélagi, að halda fram fullum fetum að Jesús hafi verið ofur- mannlegur eingetinn sonur ósýnilegs manns á himnum, sem skapaði alheiminn á einni viku, og talar þar af leiðandi fyrir daufum eyrum. Sigurjón Árni Eyjólfsson nálgast þetta ágætlega í bók sinni Trú, von og þjóð, þar sem hann segir þjóðkirkjuna eiga erfitt með að horfast í augu við að hún er hluti íslenskrar menningar, ekki farvegur hennar. Boðskap- urinn er í fornum og fráhrindandi hugtakaheimi, mót- aður af 3.500 ára heimsmynd sem erfitt er að laga að „af- helguðu“ samfélagi. Það má vel vera að á einhverjum tíma hafi kristin trú og kirkja verið þess valdandi að sam- félag manna þróaðist í átt til betri vegar. Að sama skapi má benda á að kirkjan lagði sennilega sitt af mörkum til að hægja á framförum í vísindum þegar máttur hennar var hvað mestur á öldum áður. Hvað sem því líður, þá trúi ég því heilshugar að mann- fólkið sé gott af innri hvötum, ekki af ótta við eilífa vist í neðra, eða loforð um farsælt eftirlíf á himnum. Slík góð- mennska er ekki raunveruleg góðmennska, heldur ein- göngu lærð hegðun, sprottin af ótta eða loforði um verð- laun. gunnardofri@mbl.is Gunnar Dofri Pistill Jesús var örugglega frábær gæi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Fulltrúar Verkfræðinga-félag Íslands hafa afhentríkisstjórninni tillögur aðstefnumótun um rafbíla- væðingu Íslands ásamt aðgerða- áætlun og greinargerð sem starfs- hópur á vegum RFVÍ vann. Um er að ræða heildstæða áætlun um hvernig fjölga megi rafbílum á Ís- landi með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og nýta sem best endurnýjanlegar og vistvænar orkulindir til að knýja samgöngutæki. Markmið stefnumót- unarinnar er að hlutdeild endurnýj- anlegrar orku verði 10% árið 2025 sem samsvarar því að 25 þúsund raf- bílar verði í notkun í landinu. Leggja til ívilnandi aðgerðir Lagt er til að veittar verði íviln- anir til langs tíma eins og t.d. afnám aðflutningsgjalda og virðisauka- skatts á rafbílum. Sérstök áhersla er lögð á að ívilnanir séu til langs tíma, en talið er hæpið að fyrirtæki leggi í uppbyggingu kostnaðarsamra inn- viða eins og rafhleðslustöðva eða þjónustu um allt land til að mæta þörfum vegna rafbílavæðingar ef mikil óvissa er um hvort ívilnanir standi. Þá er einnig lagt til að lands- mönnum verði kynntir vistvænir val- kostir í samgöngum og að skipuð verði verkefnisstjórn til að hafa eft- irlit með og fylgja eftir aðgerðaáætl- un um rafbílavæðingu Íslands, en Ís- land er talið vera í lykilstöðu sem land sem getur framleitt „grænt eldsneyti“. Tillögurnar, sem má nálgast í heild sinni á vfi.is, verða teknar til frekari úrvinnslu í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og tengdar þeirri vinnu sem unnin hefur verið undir merkjum grænnar orku, en til- lögurnar eru í takt við stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar, þar sem fram kemur að nýta beri vistvæna orkugjafa enn frekar við samgöngur og að hvatt verði til þess að dregið verði úr notkun jarðefnaeldsneytis. Verðið til fyrirstöðu Kjartan T. Hjörvar, formaður Rafmagnsverkfræðingadeildar Verkfræðingafélags Íslands (RFVÍ), segir hátt verð rafbíla og fáar hleðslustöðvar vera mestu hindr- unina. „Ákveðin fræðsla þarf að eiga sér stað um rafbíla, en verðið hefur mest að segja og síðan tækifæri til að hlaða rafbílana. Byggja þarf upp innviði til að fólk geti nýtt sér rafbíl- ana almennilega. Þá er verið að tala bæði um hleðslustöðvanetið og hleðslur í fjölbýlishúsum. Í nýjum hverfum er gert ráð fyrir slíkum lögnum við fjölbýlishús, en það er spurning hvernig sé best að nálgast það í eldri og rótgrónari hverfum,“ segir Kjartan. Sú drægni sem flestir þurfa Ein helsta gagnrýnin á rafbíla hefur verið drægni þeirra. Rafbílar komast ekki jafn langt á einni hleðslu og bifreið sem er drifin áfram af bensíni. Þá kemst rafbíllinn Nissan LEAF t.d. aðeins 225 km á hleðslu að hámarki, en best stendur sig Tesla Model S sem kemst rúma 475 km á einni hleðslu. „Drægni á rafbílum í dag er í raun og veru sú drægni sem flestir þurfa langflesta daga. Í norskri skýrslu um rafbíla kom fram að fólk fer að meðaltali fimm ferðir á ári sem eru lengri en drægni bílsins. Slíka rannsókn ætti kannski að gera hér á landi, þar sem mögulega eru fleiri Íslendingar með sumarbústað eða ferðast meira,“ segir Kjartan en Noregur er fremstur í flokki í notkun rafbíla miðað við höfðatölu, en um 30 þúsund rafbílar eru á götum Noregs. 25.000 rafbílar verði í notkun árið 2025 Grænna Ísland Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Kristinn Andersen, formaður VFÍ, takast í hendur við athöfnina. Um 80-90% rafbíla í Noregi og Bandaríkjunum fá hleðslu í heimahúsi. Hins vegar kemur fram í tillögunum að talið er nauðsynlegt að setja upp og hafa hleðslustöðvar sýnilegar til að almenningur leggi í að raf- bílavæðast. Líftími rafhleðslu- stöðvar er um 10-15 ár og kost- ar 2-4 milljónir að koma henni upp. Áætlað er að 100 slíkar stöðvar um land allt muni því kosta um 300 milljónir auk raf- lína. Í Noregi var nýlega lokið við uppsetningu víðtæks nets hraðhleðslustöðva um landið allt með um 40-60 km millibili. Örar framfarir hafa verið í gerð rafhlaðna í bíla og nýjasta kyn- slóð slíkra rafhlaðna kemst 1.000 km á hleðslu og tekur nokkrar mínútur að hlaða. Endanleg þróun þessara rafhlaðna mun þó taka nokkur ár. Kosta 2-4 milljónir RAFHLEÐSLUSTÖÐVAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.