Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 77
MENNING 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
Viðamikil sýning á verkumeftir Jón Óskar Haf-steinsson (f. 1954) í Lista-safni Íslands ber yfir-
skriftina Jón Óskar – Ný verk.
Listamaðurinn leggur undir sig sali
1, 2 og 4 og er því hér um að ræða
fremur ítarlega kynningu á því sem
hann hefur verið að fást við á síðustu
áratugum, en elstu „nýju“ verkin á
sýningunni eru raunar frá 10. áratug
síðustu aldar. Þarna getur að líta
málverk, teikningar og verk unnin
með blandaðri tækni. Teikningin er
leiðarstef í verkunum en verkin
byggjast að talsverðu leyti á graf-
ískri „endurvinnslu“ á myndasögum
úr smiðju teiknara eins og G. Th.
Rotman, Walt Disney og Charles M.
Schultz, í bland við sjálfsprottna
teikningu Jóns Óskars.
Áhorfandinn getur auðveldlega
týnt sér í sérstæðum og dularfullum
myndheimi listamannsins – sem þó
er jafnframt kunnuglegur. Hvert
verk er þéttriðið net lína sem hverf-
ast gjarnan um fígúru eða um auðan
flöt fyrir miðju. Vaxblandaðir olíu-
litir gefa stóru málverkunum sér-
staka áferð. Í þeim liggja svartar og
gráar línur á muskulegum grá- eða
brúntóna fleti og er myndrýmið yf-
irleitt grunnt. Sparleg notkun lita
lyftir verkunum og kallar fram nýjar
víddir, gott dæmi um það er hið vel-
heppnaða verk „Leitin að G. Th.
Rotman“ sem jafnframt nýtur sín
vel á grænmáluðum vegg í sal 1. Þar
svífur yfir vötnum furðulegur og
heillandi heimur myndasagna Rot-
mans um Dísu ljósálf, Alfinn álfa-
kóng og Dverginn Rauðgrana (sem
komu fyrst út í íslenskri þýðingu á 3.
áratug síðustu aldar). Hér er raunar
um að ræða landslagsverk því að þar
sést einungis „baksvið“ eða umhverfi
persónanna í þessum listilega teikn-
uðu sögum Rotmans. Það er einkum
hið dularfulla og ævintýralega and-
rúmsloft í sögunum sem skilar sér til
sýningargestsins og höfðar til
ímyndunarafls hans og minninga úr
barnæsku.
Frásögnin í voldugum verkum
eins og „Crossing the Delaware“ og
„Hannes at the Tate“ í sama sal er
óræðari. Áhorfandinn sem gefur sér
tíma til að leyfa skynjuninni að
hvarfla um línuspilið er teygir sig
þvers og kruss um flötinn, gefur sig
jafnframt á vald þeirri frásögn sem
fólgin er í hinu spunakennda ferli við
tilurð verksins. Í sal 2 má sjá smærri
verk eftir listamanninn og blekteikn-
ingar sem varpa ljósi á þörf hans fyr-
ir að prófa sig áfram með ólík efni og
aðferðir – oft með endurteknum
stefjum í mismunandi útfærslum.
Tæknileg færni fer þá saman við til-
raunamennsku og eilítið kæruleys-
islegt yfirbragð. Sýningin veitir að
þessu leyti innsýn í vinnubrögð lista-
mannsins og hvernig myndheimur
hans byggist á ímyndum úr prent-
miðlum sem þegar eru á sveimi í
menningunni – en færist þó gjarnan
undan nokkurri augljósri merkingu.
Sýningin Jón Óskar – Ný verk er
óvenjustór einkasýning á „nýjum
verkum“ eftir núlifandi íslenskan
listamann í þjóðarlistasafninu. Um-
fang sýningarinnar er raunar meira í
takti við það sem gerist á yfirlitssýn-
ingum safnsins á verkum einstakra
listamanna (þar sem lengra tímabil
er undir). Verkafjöldinn er tals-
verður og fyrir vikið verður
heildarmyndin dálítið einhæf, þrátt
fyrir að „magn“ sé „einkennandi fyr-
ir verklag hans“, eins og lesa má í
fremur rýrum sýningartexta á vegg í
sal 1, en þar segir einnig: „Verkin á
sýningunni eru risastór og agnar-
smá, og allt þar í milli“. Umfangið og
samhengið, og þar með skilaboð
safnsins um vægi Jóns Óskars í ís-
lenskri listasögu, kalla á meiri grein-
ingu og upplýsingar um áherslur og
aðferðir listamannsins.
Myndir og sagnir
Morgunblaðið/Einar Falur
Dularfullur „Áhorfandinn getur auðveldlega týnt sér í sérstæðum og dularfullum myndheimi listamannsins - sem
þó er jafnframt kunnuglegur,“ segir m.a. um sýningu Jóns Óskars í Listasafni Íslands.
Listasafn Íslands
Jón Óskar – Ný verk
bbbmn
Til 8. febrúar 2015. Opið þri.-sun. kl. 11-
17. Aðgangur kr. 1.000. 67 ára og eldri,
öryrkjar, hópar 10+ kr. 500. Ókeypis að-
gangur er fyrir 18 ára og yngri.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Morgunblaðið/Kristinn
Umfangsmikil Hluti af sýningu Jóns Óskars í Listasafni Íslands.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Ríkharður H. Friðriksson, gítarleik-
ari, og Gunnar Kristinsson, slag-
verks- og hljómborðsleikari, skipa
hljómsveitina Icelandic Sound
Company sem gaf nýlega út hljóm-
plötuna Icelandic Sound Company I.
Platan býður upp á einstakan hljóm
sem kemur einhverjum eflaust
spánskt fyrir sjónir, sér í lagi þeim
sem hlusta aðallega á popp- eða
rokktónlist, að sögn Ríkharðs.
„Risastórt gong og tam-tam safn
Gunnars er víðfrægt og setur sterk-
an svip á hljóminn. Hljóðfærin hans
og rafmagnsgítarinn minn eru síðan
send í gegnum alls kyns tölvur og
hljóðbreytitæki þannig að tónlistin
hljómar á endanum oft talsvert líkar
raftónlist en akústískri tónlist.“
Spuninn einkennir tónlist hljóm-
sveitarinnar en Ríkharður segir þá
ekki semja lög. „Hljómsveitin er
hrein spunasveit. Við semjum ekki
lög og hefur aldrei einu sinni tekist
að koma okkur saman um neina
beinagrind eða reglur áður en við
förum á svið. Þetta verður alltaf
hreinn spuni, innblásinn af augna-
blikinu. Við Gunnar smullum ein-
hvern veginn saman í þessari pæl-
ingu og þessu sándi, algerlega
ósjálfrátt og án umhugsunar, eins og
við hefðum verið að spila saman alla
okkar ævi. Urðum sannkallaðir sálu-
félagar við fyrsta samspil; náðum
strax samhljómi sem var einstakur.“
Upptökur af tónleikum
„Spunahljómsveit er eðlilega ekki
að taka upp lög í stúdíói. Töfrarnir
verða aðeins til í hita augnabliksins á
tónleikum. Þeir ganga misvel eins og
gengur og því er eðlilegasti útgáfu-
mátinn að taka upp alla tónleika og
velja síðan úr bestu bitana. Disk-
urinn er semsagt samsettur af tón-
leikaupptökum sem okkur fannst
gefa góða mynd af okkur, auk þess
sem við komum að í einhverri mynd
öllum þeim gestum sem hafa spilað
með okkur,“ segir Ríkharður en til-
gangurinn með plötunni var fyrst og
fremst að gera einhvers konar sam-
antekt af því sem hljómsveitin er bú-
in að vera að gera á tónleikum á síð-
astliðnum tíu árum. „Okkur langaði
til að skilja eitthvað eftir okkur á
föstu formi. Fyrst við vorum ekki að
gera verk sem væri hægt að skrifa
niður á nótur fyrir framtíðina, vild-
um við skilja eftir einhverja góða
heimild um þessi fyrstu tíu ár okkar.
Því fannst okkur tilvalið að gefa út
úrval af tónleikaupptökum.“
Óráðinn tónlistarskali
Ríkharður er m.a. þekktur fyrir
að spila með Fræbbblunum en tón-
list þeirra er í anda pönk og rokk en
tónlistina á nýju plötu Ríkharðs seg-
ir hann geta fallið undir klassík eða
raftónlist. „Ég hef enga hugmynd
um hverjir eru endarnir á skalanum
og þaðan af síður hvað er miðjan. Ég
veit hins vegar að mig langar til að
gera marga mismunandi hluti í tón-
list af mismunandi ástæðum. Ég
kem ekki upphaflega úr rokkinu;
lærði fyrst vísnatónlist hjá móður
minni og síðan klassískan gítarleik
og tónsmíðar í tónlistarskólum, þar
sem ég fékk góðan grunn til að gera
ansi margt í tónlist. Allt hitt kom
seinna.“
Ástríðan fyrir tónlistinni er aug-
ljós hjá Ríkharði sem segist vinna
með smáatriði í gítarleik, spuna og
rafhljóð í Icelandic Sound Company
og að samstarfið í Fræbbblunum
komi af hreinni ánægju af að spila
skemmtilega rokktónlist fyrir fólk
sem kann að meta hana. „Fyrir utan
þetta þá loka ég mig inni í stúdíói og
geri hreina raftónlist, oftast byggða
á hljóðum sem ég hef tekið upp út
um allt.“
Framandi tónlist á nýjum diski
Engar hefðbundnar laglínur eru í
verkum Ríkharðs og Gunnars og
kann einhverjum að þykja tónlistin
einkennileg. „Það er einfaldlega
vegna þess að þetta er ekki popp eða
rokk, meira að segja talsvert langt
frá því og jafnvel handan við það
sem flestir rokk- eða poppaðdá-
endur myndu geta kallað tónlist. Við
erum ekki að spila laglínur og
sjaldnast reglulega rytma, heldur
gengur allt út á hreint hljóð. Þaðan
kemur nafnið á sveitinni, að kalla
þetta „Sound Company“. Á tón-
leikum okkar eru engin lög, heldur
framleiðum við síbreytilegan hljóð-
skúlptúr sem þróast í ýmsar áttir
meðan á tónleikum stendur. Það er
ekkert til að syngja með, dansa við
eða dilla sér með; bara hreint hljóð í
flæði. Þetta er reyndar jafnvel
ennþá meira framandi fyrir klass-
íska hlustendur því þeir vilja fá sínar
laglínur líka, auk þess sem þessi raf-
magnaði hljómur okkur er þeim
mjög framandi.“
Rafmögnuð spunatónlist
Icelandic Sound
Company gefur
út upptökur af
spunatónleikum
Tvíeyki Ríkharður og Gunnar, Icelandic Sound Company. Ríkharður segir ISC hreina spunasveit.
Morgunblaðið/RAX
Gleði Ríkharður og Gunnar með þýska orgelleikaranum Kirsten Galm og
Agli Ólafssyni barítónsöngvara fyrir tónleika sem haldnir voru í Hallgríms-
kirkju í maí árið 2007. Tónleikarnir voru á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.