Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Afnám vörugjalda var einn af há- punktum síðasta árs að mati Andr- ésar Magnússonar. Hann segir Sam- tök verslunar og þjónustu hafa sett afnám vörugjalda á oddinn und- anfarin þrjú ár og hafi verið löngu timabært að taka lög um vörugjöld til vandlegrar skoðunar. „Vörugjöld- in, sem sett voru sem bráðabirgða- skattur á 8. áratugnum eru gott dæmi um það sem Milton Friedman sagði þegar hann orðaði það svo að fátt væri varanlegra en tímabundið ríkisverkefni.“ Andrés segir vörugjöldin sér- lega slæman skatt sem komi þó neytandanum aldrei fyrir sjónir. „Vörugjöld hafa allt það til að bera sem einkennir slæma skattheimtu, mismunar vöruflokkum og atvinnu- greinum, eru óskilvirk, ógagnsæ og dýr í framkvæmd. Nú heyra almenn vörugjöld sögunni til en ekki má gleyma að áfram eru innheimt sér- stök vörugjöld af vöruflokkum á borð við bíla, eldsneyti, áfengi og tóbak.“ Afnám vörugjalda ætti að leiða til þess að neytendur muni sjá lægra verð á ýmsum vörum á þessu ári enda gat skatturinn verið mjög hár á sumum vörutegundum. „Áhrifin verða sennilega greinilegust í stærri raftækjum þar sem algengt var að lögð væru á allt að 25% vörugjöld. Byggingarefni ætti líka að lækka í verði en þar hafa vörugjöld verið um 15%.“ Kaupa neytendur? En hvernig gengur seljendum? Eru einhver teikn á lofti um að árið framundan verði gott eða slæmt? Hvað segir Andrés um orðróm þess efnis að jólaverslunin hafi verið und- ir væntingum og neytendur haldi fast um pyngjuna? „Tölurnar benda til þess að jóla- verslunin nú hafi verið hér um bil eins og jólin þar á undan. Vonbrigði sumra verslunareigenda stafa senni- lega af því að reiknað hafði verið með 4-5% aukningu milli ára. Mögu- lega hafa vonskuveður sett strik í reikninginn en svo getur líka verið að hinn almenni neytandi sé farinn að halda að sér höndum.“ Að jólasala verslana hafi valdið vonbrigðum getur líka verið til marks um að neyslan sé að færast í auknum mæli til netverslana. „Rót- tækar breytingar eru að eiga sér stað í innkaupahegðun fólks og ákveðnir hópar orðnir mjög duglegir að versla á netinu. Sýna kannanir til dæmis að önnur hver flík sem fólk undir 24 ára aldri kaupir er fengin í netverslun erlendis. Andrés leggur á það áherslu að gerðir verði skynsamlegir kjara- samningar á árinu sem nú er hafið og varar við óhóflegum kröfum um launahækkanir. „Gera þarf kjara- samninga sem færa fólki raunveru- lega kjarabót. Síðustu kjarasamn- ingar, og lítil verðbólga, hafa fært hinum almenna borgara umtals- verða kaupmáttaraukningu og miklu skiptir að fylgja áfram þeirri stefnu sem þá var mörkuð.“ Hver veit svo nema ytri áhrifa- þættir á borð við lækkað heims- markaðsverð olíu gefi aukið svigrúm til samninga og meiri hagvaxtar. „Lækkandi eldsneytisverð hefur í för með sér minni kostnað fyrir at- vinnulífið allt. Ómögulegt er samt að segja til um hvert olíuverðið stefnir eða hversu lágt það mun haldast út árið, og greinilegt að mikil spákaup- mennska á sér stað á olíumarkaði.“ Óþarfa ríkisstarfsemi Af verkefnunum framundan á árinu hjá SVÞ nefnir Andrés að þrýsta verði á stjórnvöd um aukna hagræðingu og útvistun verkefna. „Fjöldamörg verkefni eru í dag á könnu hins opinbera en væru betur falin einkaaðilum. Nefna má sem dæmi að ríkið rekur endurskoð- unarfyrirtæki, Ríkisendurskoðun og að auki stóra þýðingamiðstöð. Þau verkefni sem þar er sinnt væru bet- ur komin hjá almennum endurskoð- unar- og þýðingafyrirtækjum.“ Morgunblaðið/Ómar Áherslurnar „Síðustu kjarasamningar, og lítil verðbólga, hafa fært hinum almenna borgara umtalsverða kaupmátt- araukningu og miklu skiptir að fylgja áfram þeirri stefnu sem þá var mörkuð,“ segir Andrés Magnússon. Verður að gera skyn- samlega kjarasamninga  Samtök verslunar og þjónustu vilja þrýsta á stjórnvöld um aukna hagræðingu í ríkisrekstri og útvistun verkefna FRAMUNDAN 2015 JANÚAR FEBRÚAR MARS APRÍL MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚST SEPTEMBER OKTÓBER NÓVEMBER DESEMBER Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899 Póstfang: vfs@vfs.is Netsíða: www.vfs.is RMT200S Fjölnota tifvél sem sagar og pússar Festing: Stjarna Tifhraði: 10.000 - 20.000 Tif/mín. Hreyfing: 3,0° Fylgir: Taska og fylgihlutir. RB 5133 0018 18 12.900,- Tilboð ERT1400RV Fræsari Mótor: 1400W. Festing: 6mm., 1/4" og 8mm. Hraðar: 14000-31500 Sn/mín. Færsla: 55mm. RB 5133 0005 54 18.900,- Tilboð RCD1802LL Borar: Tré, járn og stein. Bit: Mínus, stjarna, Torx og toppar Fylgir: 2 x 1.5 Ah Lithium Rafhlöður, Hleðslutæki og Taska. RB 5133 0020 63 18 V. Hleðsluborvél með verkfæratösku 24.900,- Tilboð LLCDI18022 Hleðsluhöggborvél Patróna: 13mm. Átak 50 Nm. Hraðar: 0-400/1550 Sn/mín. Fylgir: 2 x 1.5 Ah 18V. Lithium Rafhlöður, Hleðslutæki og Taska. RB 5133 0019 31 28.900,- Tilboð R4SDL13C ER 4V Hleðsluskrúfjárn Bitahaldari: Segull með lás. Lýsing: LED Hraðar: 0-180 Sn/mín. Rafhl: 1.3 Ah Lithium Hleðslutæki og fylgihl. RB 5133 0019 61 5.990,- Tilboð H a u ku r 1 0 .1 4 Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hrl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakt.is Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is • Öflug og vaxandi heildverslun með vinsælar vörur fyrir stórmarkaði. Ársvelta 250 mkr. • Sérverslun með veiðivörur og útivistarfatnað. Mörg góð einkaumboð. Ársvelta 80 mkr. Góð afkoma. • Stórt og rótgróið fyrirtæki í framleiðslu matvæla. Er nú með 14 eigin verslanir og hratt vaxandi sölu og hagnað. Ársvelta um 700 mkr. og Ebitda 135 mkr. • Rótgróið innflutningsfyrirtæki með kælitæki, viftur, blásara og skyldar vörur. Ársvelta er vaxandi, nú 140 mkr. og afkoma góð. Eigandi vill hætta vegna aldurs en er til í að starfa eitthvað áfram með nýjum eiganda, ef þess er óskað. • Stórt og vinsælt hostel á góðum stað í miðbæ Reykjavíkur. Góð velta og afkoma. • Þekkt sérverslun með heilsurúm. Mikil sérstaða. Ársvelta 130 mkr. og vaxandi. • Ein stærsta heildverslun landsins með leikföng. Þekkt einkaumboð. Ársvelta 150 mkr. • Rótgróin lítil heildverslun með snyrtivörur. • Lítið fyrirtæki með álagningarháar vörur sem það flytur sjálft inn. Hentar vel aðilum sem eru með dreifingu á eigin vörum í stórmarkaði. • Ferðaskrifstofa með bílaleigu. Góð fyrirtæki sem bjóða upp á spennandi ferðir allt árið á eigin bílum. Velta 300 mkr. og vaxandi. Ágæt afkoma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.